Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 70

Morgunblaðið - 03.03.2022, Side 70
70 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is stalogstansar.is VARAHLUTIR Í KERRUR 2012 2021 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Þetta er mér mjög mikilvæg hvatning, ekki síst þar sem útgáfa verksins er aðeins hálfnuð núna og ég því á miðri leið. Jafnframt er það mikill heiður að hljóta þessa viðurkenningu,“ segir Aðalheiður Guðmundsdóttir, sem í gær hlaut viðurkenningu Hagþenkis fyrir framúr- skarandi rit á árinu 2021. Viðurkenninguna fær hún fyrir fyrstu tvö bindin í verkinu Arfur aldanna sem Háskólaútgáfan gaf út, en bindin tvö nefnast Handan hindarfjalls og Norð- vegur. Fær Aðalheiður 1.250.000 krónur að launum. Viðurkenning Hagþenkis var að þessu sinni afhent í 36. sinn, en hún hefur verið veitt árlega síðan 1987. Viðurkenningin telst til virt- ustu og veglegustu verðlauna sem fræðimönn- um og höfundum kennslugagna geta hlotnast. Öll fræðirit og prentuð námsgögn eða önnur miðlun fræðilegs efnis til almennings sem komu út á íslensku árið 2021 komu til greina við veitingu viðurkenningarinnar óháð útgef- anda eða tilnefningum. Aðalheiður er prófessor í íslenskum bók- menntum fyrri alda við Háskóla Íslands og var áður dósent í þjóðfræði við sama skóla. Helstu áherslur Aðalheiðar í kennslu og rannsóknum eru norrænar miðaldabókmenntir, bók- menntasaga, fornaldarsögur, þjóðkvæði og rímur, danssaga og saga galdurs. Eftir Aðal- heiði liggja bækur á borð við Úlfhams sögu frá 2001 og Strengleika frá 2006, auk þess sem hún er einn af sex höfundum nýrrar bók- menntasögu, Íslenskar bókmenntir: Saga og samhengi, frá 2021. Hún hefur sent frá sér fjölda fræðigreina um norrænar miðaldabók- menntir og skáldskap síðari alda. Metnaðarfull og heildstæð nálgun Að vanda stóð viðurkenningarráð Hag- þenkis að valinu á verðlaunabók ársins, en í því sátu að þessu sinni Auðunn Arnórsson, Árni Einarsson, Halldóra Kristinsdóttir, Súsanna Margrét Gestsdóttir og Svanhildur Óskars- dóttir. Í ávarpi sem Svanhildur flutti fyrir hönd ráðsins við afhendinguna í gær rifjaði hún upp að Aðalheiður hefði sinnt rannsóknum á fornaldarsögum og skyldu efni í um aldar- fjórðung og öðlast ómetanlega yfirsýn um sög- urnar og fyrri rannsóknir á þeim. „Í ritinu Arfur aldanna setur hún sér það metnaðarfulla markmið að fjalla á heildstæðan hátt um upp- runa fornaldasagna, efnivið, útbreiðslu og bók- menntaleg einkenni. Þetta er ekkert smáræði, því sögurnar draga langan slóða. Rætur þeirra liggja í sameiginlegum germönskum sagnaarfi sem rekja má aftur á þjóðflutningatímann í Evrópu og landfræðilega verður að ferðast bæði suður í álfu og langt í austurveg til þess að ná utan um dreifingu og þróun sagnaminna sem að endingu öðluðust framhaldslíf í íslensk- um frásögnum. Bækurnar tvær sem verðlaunaðar eru í dag, Handan Hindarfjalls og Norðvegur, fjalla ein- mitt um baksvið fornaldarsagnanna á megin- landi Evrópu annars vegar og í Svíþjóð, Noregi og Danmörku hins vegar. Í þeim opnar Aðalheiður lesendum sýn á fjölbreytt og heillandi samanburðarefni, allt frá króníkum á latínu og germönskum hetjukvæðum til út- skurðar, vefnaðar og myndsteina. Hún dregur á ljósan hátt saman rannsóknir fyrri fræði- manna (ritaðar á ýmsum tungumálum) um leið og hún segir frá nýjum aðferðum til þess að nálgast þennan arf, til dæmis þeim sem taka mið af kenningum um minni eða um lifandi flutning og áhrif áheyrenda á sköpun sögu- efnis,“ sagði Svanhildur og minnti á að bindin tvö væru einungis fyrri hluti verksins Arfur aldanna. „Í þeim tveimur bindum sem óútkom- in eru ætlar Aðalheiður að færa sig til Íslands og fjalla um endursköpun þessa forna sagna- efnis á Íslandi, um heimsmynd sagnanna og bókmenntaleg einkenni,“ sagði Svanhildur og tók fram að hvatning væri mikilvægur þáttur í Viðurkenningu Hagþenkis. Sagði hún viður- kenningarskjal ársins því bæði vera „verðlaun fyrir afbragðsgóðar bækur tvær og brýningu um að láta ekki deigan síga“. Umfangið hefur bæði kosti og galla Aðalheiður segir að frá því að hún byrjaði að vinna að verkinu fyrir um tíu árum hafi hún í raun samtímis unnið að öllum bindunum fjór- um. „Þótt síðari bindin tvö séu þannig vel á veg komin er líklega talsvert í útgáfu þeirra enn, enda er rannsóknin bæði umfangsmikil og tímafrek,“ segir Aðalheiður og rifjar upp að vinnan hafi hafist þegar hún var rannsókna- stöðustyrkþegi hjá Rannís og síðar í tíma- bundinni rannsóknarstöðu Sigurðar Nordals hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. „Á þessum tíma lagði ég traustan grunn að verkinu öllu, en eftir að ég hóf störf sem háskólakennari minnkaði eðlilega mjög sá tími sem ég hafði til að sinna rannsókninni. Ef til vill má segja að miðað við tættan tíma háskólakennarans sé verkefni á borð við þetta allt of stórt,“ segir Aðalheiður og bendir á að þótt gert sé ráð fyrir að háskólakennarar sinni rannsóknarskyldu samhliða kennsluskyldu þá geri kerfið ráð fyrir að háskólakennarar geri grein fyrir rannsóknum sínum með reglu- legum greinaskrifum og fyrirlestrahaldi bæði hér- og erlendis. „Rannsóknarskyldan okkar er mæld á hverju ári og möguleikar okkar til að fá styrki til rannsókna ræðst af því sem við erum að birta á um þriggja ára tímabili, Þannig hentar það ekki að vera með stór verkefni sem tekur kannski tíu ár að vinna,“ segir Aðalheiður og bendir á að fræðimenn þurfi ávallt að skoða fyrir hvaða lesendahóp þeir séu að skrifa. „Sem prófessor skrifa ég mikið í erlend rit- rýnd fræðitímarit fyrir tiltölulega þröngan hóp lesenda. Þegar kom að efninu í Arfur aldanna fann ég fljótt að mig langaði til að ná til stærri lesendahóps þar sem um er að ræða arfinn okkar. Ég bind því miklar vonir við að Viður- kenning Hagþenkis hjálpi til við að koma efn- inu til fleiri lesenda.“ Aðalheiður bendir á að vegna tímans sem viðamiklar rannsóknir geta tekið sé alltaf ákveðin hætta á því að hugmyndir úreldist, að aðrir fræðimenn verði fyrri til að rannsaka afmörkuð viðfangsefni og birta niðurstöður sínar, og að þungi verkefnisins beri rannsak- andann jafnvel ofurliði. „Sumir gætu hreinlega bugast yfir því að vera að skrifa svona um- fangsmiklar bækur meðfram öllu öðru. Sökum þessa er hvatning Hagþenkis núna á miðri leið þeim mun mikilvægari,“ segir Aðalheiður og bendir á að umfangið geti vissulega haft sína kosti líka. „Því að afmarkaðir kaflar bókar- innar hafa verið ræddir á ráðstefnum og í nokkrum tilvikum hef ég samið upp úr þeim ritrýndar greinar, þannig að þegar upp er staðið hefur tiltekið efni verið ritrýnt á tvenns konar vettvangi, sem afmarkað rannsóknar- efni sem og í samhengi bókanna. Að auki hlýt- ur verk sem er lengi í smíðum að halda áfram að dýpka allan þann tíma sem það er í mótun,“ segir Aðalheiður að lokum. Til lesenda „Ég bind miklar vonir við að Viðurkenning Hagþenkis hjálpi til við að koma efninu til fleiri lesenda,“ segir Aðalheiður Guðmundsdóttir sem verðlaunuð er fyrir verkið Arfur aldanna. Mikilvæg hvatning á miðri leið - Aðalheiður Guðmundsdóttir hlýtur viðurkenningu Hagþenkis fyrir fyrstu tvö bindin í verkinu Arfur aldanna - Aðalheiður opnar „lesendum sýn á fjölbreytt og heillandi samanburðarefni“ Endurkast er heiti sýningar með verkum Camillu Reuter sem verður opnuð í Borgar- bókasafninu Spönginni í dag, fimmtudag, klukkan 17. Í tilkynningu frá safninu segir að í olíu- málverkum Camillu Reuter endurkastist myndir af líkömum á striga á draumkenndan hátt og er „áhorfendum boðið að njóta fagur- fræðilegrar upplifunar lita, forms og samsetn- ingar. Litir eru í fyrirrúmi, þeir tjá tilfinn- ingar í gegnum líkamann, hreyfingar endurkasta veruleikanum og grípa frum- spekilegan kjarna líkamlegra vídda okkar.“ Camilla Reuter er af finnskum uppruna og útskrifaðist frá myndlistardeild LHÍ árið 2017. Hún er sögð vinna tilfinningaleg verk út frá persónulegu lífi sínu og notar gjarnan vini og fjölskyldu sem myndrænan innblástur fyrir verkin. Sýningin stendur til 31. mars og hana má skoða á afgreiðslutíma safnsins. Camilla Reuter sýnir málverk Endurkast Hluti eins verka Camillu Reuter á sýningunni í bókasafninu í Spönginni. Stjórn Menningarfélags Akureyrar hefur ráðið Evu Hrund Einarsdóttur í starf framkvæmdastjóra. Menn- ingarfélagið rekur Leikfélag Akureyrar, Sinfóníu- hljómsveit Norðurlands, og Menningarhúsið Hof. Eva Hrund er menntaður viðskiptafræðingur með áherslu á fjármál og stjórnun og með MLM-nám í forystu og stjórnun. Hún starfaði um tíu ára skeið sem fjármála- og starfsmannastjóri hjá Lostæti ehf. og hefur setið í bæjarstjórn Akureyrar frá árinu 2014. Alls sóttu 16 manns um starfið. „Eva Hrund hefur góða þekkingu á bæði rekstri og mannauðsmálum sem mun sannarlega nýtast vel í spennandi og krefjandi starfi framkvæmdarstjóra,“ segir Brynhildur Pétursdóttir, formaður stjórnar Menningarfélagsins, í tilkynningu. Eva Hrund tekur við starfinu af Þuríði Helgu Kristjánsdóttur sem sagði starfi sínu lausu í janúar. Eva Hrund stýrir Menningarfélaginu Eva Hrund Einarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.