Morgunblaðið - 03.03.2022, Page 72

Morgunblaðið - 03.03.2022, Page 72
72 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022 Þrátt fyrir að sprengjum rigni í Úkra- ínu halda stóru alþjóðlegu uppboðs- húsin árleg voruppboð sín á myndlist þessa dagana. Christie’s stóð fyrir viðamiklu uppboði á myndlist 20. og 21. aldar sem í senn var haldið í Lond- on og Sjanghæ. Samkvæmt The Art Newspaper fékkst hátt verk fyrir verk margra listamanna. Kaupendur frá Bandaríkjunum og Kína voru áber- andi en til þess tekið að rússneskir safnarar hafi ekki verið að bjóða í verk. Sérstaka athygli vakti að metverð var greitt fyrir málverkið Refir eftir þýska myndlistarmanninn Franz Marc (1880-1916), 42,6 milljónir punda, um 7,2 milljarðar króna. Hæsta verð sem áður hafði verið greitt fyrir verk eftir Marc var um tveir milljarðar króna. Marc var lykilmaður í þýska ex- pressjónismanum um og eftir alda- mótin 1900 og einn stofnfélaga lista- mannahópsins vinsæla Der Blaue Reiter. Þrátt fyrir að vera meðal vin- sælustu listamanna Þýskalands þegar fyrri heimsstyrjöldin hófst var Marc kvaddur í herinn og féll í bardaganum við Verdun. Refir þykir meðal áhrifamestu verka Marcs. Á árunum 1928 til 1940 var það í eigu bankamanns af gyð- ingaættum og eiginkonu hans. Þau neyddust til að flýja Þýskaland nas- ismans og seldu málverkið til að greiða fargjaldið til Síle. Fyrir sjö árum höfð- uðu afkomendur þeirra mál gegn Mu- seum Kunstpalast í Düsseldorf, þar sem málverkið var sýnt, og urðu lyktir þess þær að verkinu var skilað til fjöl- skyldunnar sem selur það nú. Meðal annarra tíðinda af uppboðinu má nefna að flennistórt þrískipt mál- verk eftir Francis Bacon, sem sagt er að stjörnuarkitektinn Norman Foster hafi selt, var slegið hæstbjóðanda fyrir 38,4 milljónir punda með gjöldum, um 6,4 milljarða króna. Þá var málverk eftir Lucian Freud, Girl with Closed Eyes, selt fyrir 15,1 milljón punda, um 2,6 milljarða króna. AFP Sögulegt Málverkið Refir eftir Franz Marc var selt fyrir um 7,2 milljarða króna. Verkinu var í fyrra skilað til afkomenda hjónanna sem seldu það á sínum tíma til að geta flúið ógnarstjórn nasista í Þýskalandi. Metverð fyrir Marc - Hátt verð fyrir myndlist en Rúss- ar ekki meðal kaupenda nú Flennistórt Starfsmaður Christie’s gengur hjá Triptych 1986-7 eftir Franc- is Bacon. Verkið var slegið hæstbjóðanda fyrir um 6,4 milljarða króna. Kvartett Þorgríms Jónssonar bassaleikara kemur fram á hádeg- istónleikum í Fríkirkjunni í Reykja- vík í dag, fimmtudag. Hefjast þeir kl. 12 og standa í um hálfa klukku- stund. Í kvartettinum leika, auk Þorgríms, Rögnvaldur Borgþórs- son á gítar, Tómas Jónsson á píanó og Magnús Trygvason Eliassen á trommur. Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund. Grímu- skylda er á staðnum en einnig er hægt að hlýða á tónleikana í gegn- um facebook-viðburð tónleikarað- arinnar Á ljúfum nótum í Fríkirkj- unni. Þorgrímur er djassáhugamönn- um að góðu kunnur og hefur leikið með rjóma íslenskra tónlistar- manna um árabil. Árið 2016 sendi hann frá sér sína fyrstu sólóplötu sem fékk góðar viðtökur; hún var valin plata ársins og Þorgrímur tónhöfundur ársins í flokki jazz og blús á Íslensku tónlistarverðlaun- um fyrir árið 2016. Í ágúst síðast- liðnum kom svo út hans önnur sóló- plata sem ber nafnið Hagi. Sú plata hefur einnig fengið góðar viðtökur víða um lönd. Kvartett Þorgríms í Fríkirkjunni Bassaleikarinn Þorgrímur Jónsson fer fyr- ir kvartetti sínum á tónleikunum í dag. Myndlistarsýningin Dans litanna var opnuð í Gallerí Fold síðastliðinn laugardag. Á sýningunni má finna ný verk Þorsteins Helgasonar, en henni lýkur 12. mars. Í þessum nýju verkum birtist sú þróun sem hefur átt sér stað í myndstíl Þorsteins. Síðustu tvo ára- tugi hefur hann, eins og segir í til- kynningu, „skapað sér nafn í ís- lenskri málaralist með litríkum abstrakt verkum sem byggja á líf- legum takti, sterkri uppbyggingu og strúktúr. Verkin hafa sterka hrynjandi og litaflæði þar sem formin dansa á striganum, sem er kannski engin tilviljun þar sem Þorsteinn er áhugamaður um jazz, sjálfur tónskáld og píanóleikari.“ Í nýrri verkum hans má finna bjart- ari og ljósari liti en oft áður og sterkari andstæður. Þorsteinn er menntaður arkitekt. Hann er meðeigandi í ASK arki- tektum, einni stærstu arkitekta- stofu landsins, en málar samhliða hefðbundnum störfum sínum í arki- tektúr. Litagleði Bjartir litir eru áberandi í nýjum verkum Þorsteins Helgasonar. Sýnir abstrakt verk „með líflegum takti“ Rússneski hljómsveitarstjórinn Valery Gergiev hefur á undanförnum árum verið sá allra uppteknasti í faginu og verið ýmist aðalhljómsveitastjóri eða sérstakur gestastjórnandi margra þekktra sinfóníuhljómsveita. Hann hefur um langt árabil verið mikill vinur Pútíns Rússlandsforseta og eftir að innrás Rússa í Úkraínu hófst, hafa yfirstjórnir þeirra hljómsveita, sem hann vinnur fyrir og ekki eru í Rússlandi, krafist þess að Ger- giev fordæmi innrásina. Sem hann hefur ekki gert. Af þeim sökum hætti umboðsmaður hans til margra ára og í kjölfarið var Gergiev rekinn frá Fílharmóníuhljómsveit- inni í München, Scala-óperunni í Mílanó, hljómsveit Festspielhaus í Baden- Baden og Elbfílharmóníunni í Hamborg. Í The Guardian er haft eftir fyrrverandi umboðsmanni Gergievs, að hann sé mestur núlifandi hljómsveitarstjóra, og heiðvirður maður. En hann vilji ekki eða geti ekki fordæmt glæpi rússneskra stjórnvalda. Hljómsveitir reka Valery Gergiev Valery Gergiev Fyrstu gestir ársins í fyrirlestra- röðinni Umræðuþræðir í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi í kvöld, fimmtudag, eru Krist Gruijthuijsen, forstöðumaður KW Institute for Contemporary Art í Berlín, og Anna Gritz, sýningarstjóri KW. Fyrirlestur þeirra hefst klukkan 20. Í erindinu „KW Institute for Con- temporary Art Then and Now“ munu Gruijthuijsen og Gritz fjalla um sögu og stefnu KW og kynna framtíðarsýn sem tekst á við bæði breyttar þarfir listamanna og áskoranir liststofnana í menningar- umhverfi samtímans. Gruijthuijsen er margreyndur sýningarstjóri og listgagnrýnandi og hefur starfað sem forstöðumað- ur KW Institute for Contemporary Art í Berlín frá árinu 2016. Anna Gritz er sýningarstjóri KW og tek- ur senn við sem forstöðumaður Haus am Waldsee í Berlín. Gestir frá Berlín í Umræðuþráðum Fyrirlesarar Krist Gruijthuijsen og Anna Gritz eru margreyndir sýningarstjórar. Vinir fá sérkjör Skráning á icewear.is FUNI dúnúlpa Kr. 33.990.- Þín útivist - þín ánægja HVÍTANES Merínó hálsklútur Kr. 4.990.- HVÍTANES Merínó ennisband Kr. 2.990.- ATLI softshell buxur Kr. 17.900.- BRIMNES meðalþykk göngusok Kr. 2.15 ir kar 0.- HVÍTANE Merínó lambhúshetta Kr. 4.990.- S ASOLO Falcon Kr. 29.990.- HVÍTANES Merino peysa Kr. 13.990.- HVÍTANES Merino peysa Kr. 13.990.- HVÍTANES merino buxur Kr. 11.990.- SANDEY Flíshanskar Kr. 2.990.-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.