Morgunblaðið - 03.03.2022, Qupperneq 72
72 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2022
Þrátt fyrir að sprengjum rigni í Úkra-
ínu halda stóru alþjóðlegu uppboðs-
húsin árleg voruppboð sín á myndlist
þessa dagana. Christie’s stóð fyrir
viðamiklu uppboði á myndlist 20. og
21. aldar sem í senn var haldið í Lond-
on og Sjanghæ. Samkvæmt The Art
Newspaper fékkst hátt verk fyrir verk
margra listamanna. Kaupendur frá
Bandaríkjunum og Kína voru áber-
andi en til þess tekið að rússneskir
safnarar hafi ekki verið að bjóða í
verk.
Sérstaka athygli vakti að metverð
var greitt fyrir málverkið Refir eftir
þýska myndlistarmanninn Franz
Marc (1880-1916), 42,6 milljónir
punda, um 7,2 milljarðar króna.
Hæsta verð sem áður hafði verið
greitt fyrir verk eftir Marc var um
tveir milljarðar króna.
Marc var lykilmaður í þýska ex-
pressjónismanum um og eftir alda-
mótin 1900 og einn stofnfélaga lista-
mannahópsins vinsæla Der Blaue
Reiter. Þrátt fyrir að vera meðal vin-
sælustu listamanna Þýskalands þegar
fyrri heimsstyrjöldin hófst var Marc
kvaddur í herinn og féll í bardaganum
við Verdun.
Refir þykir meðal áhrifamestu
verka Marcs. Á árunum 1928 til 1940
var það í eigu bankamanns af gyð-
ingaættum og eiginkonu hans. Þau
neyddust til að flýja Þýskaland nas-
ismans og seldu málverkið til að greiða
fargjaldið til Síle. Fyrir sjö árum höfð-
uðu afkomendur þeirra mál gegn Mu-
seum Kunstpalast í Düsseldorf, þar
sem málverkið var sýnt, og urðu lyktir
þess þær að verkinu var skilað til fjöl-
skyldunnar sem selur það nú.
Meðal annarra tíðinda af uppboðinu
má nefna að flennistórt þrískipt mál-
verk eftir Francis Bacon, sem sagt er
að stjörnuarkitektinn Norman Foster
hafi selt, var slegið hæstbjóðanda fyrir
38,4 milljónir punda með gjöldum, um
6,4 milljarða króna. Þá var málverk
eftir Lucian Freud, Girl with Closed
Eyes, selt fyrir 15,1 milljón punda, um
2,6 milljarða króna.
AFP
Sögulegt Málverkið Refir eftir Franz Marc var selt fyrir um 7,2 milljarða króna. Verkinu var í fyrra skilað til
afkomenda hjónanna sem seldu það á sínum tíma til að geta flúið ógnarstjórn nasista í Þýskalandi.
Metverð fyrir Marc
- Hátt verð fyrir
myndlist en Rúss-
ar ekki meðal
kaupenda nú
Flennistórt Starfsmaður Christie’s gengur hjá Triptych 1986-7 eftir Franc-
is Bacon. Verkið var slegið hæstbjóðanda fyrir um 6,4 milljarða króna.
Kvartett Þorgríms Jónssonar
bassaleikara kemur fram á hádeg-
istónleikum í Fríkirkjunni í Reykja-
vík í dag, fimmtudag. Hefjast þeir
kl. 12 og standa í um hálfa klukku-
stund. Í kvartettinum leika, auk
Þorgríms, Rögnvaldur Borgþórs-
son á gítar, Tómas Jónsson á píanó
og Magnús Trygvason Eliassen á
trommur.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og
taka um hálfa klukkustund. Grímu-
skylda er á staðnum en einnig er
hægt að hlýða á tónleikana í gegn-
um facebook-viðburð tónleikarað-
arinnar Á ljúfum nótum í Fríkirkj-
unni.
Þorgrímur er djassáhugamönn-
um að góðu kunnur og hefur leikið
með rjóma íslenskra tónlistar-
manna um árabil. Árið 2016 sendi
hann frá sér sína fyrstu sólóplötu
sem fékk góðar viðtökur; hún var
valin plata ársins og Þorgrímur
tónhöfundur ársins í flokki jazz og
blús á Íslensku tónlistarverðlaun-
um fyrir árið 2016. Í ágúst síðast-
liðnum kom svo út hans önnur sóló-
plata sem ber nafnið Hagi. Sú plata
hefur einnig fengið góðar viðtökur
víða um lönd.
Kvartett Þorgríms í Fríkirkjunni
Bassaleikarinn Þorgrímur Jónsson fer fyr-
ir kvartetti sínum á tónleikunum í dag.
Myndlistarsýningin Dans litanna
var opnuð í Gallerí Fold síðastliðinn
laugardag. Á sýningunni má finna
ný verk Þorsteins Helgasonar, en
henni lýkur 12. mars.
Í þessum nýju verkum birtist sú
þróun sem hefur átt sér stað í
myndstíl Þorsteins. Síðustu tvo ára-
tugi hefur hann, eins og segir í til-
kynningu, „skapað sér nafn í ís-
lenskri málaralist með litríkum
abstrakt verkum sem byggja á líf-
legum takti, sterkri uppbyggingu
og strúktúr. Verkin hafa sterka
hrynjandi og litaflæði þar sem
formin dansa á striganum, sem er
kannski engin tilviljun þar sem
Þorsteinn er áhugamaður um jazz,
sjálfur tónskáld og píanóleikari.“ Í
nýrri verkum hans má finna bjart-
ari og ljósari liti en oft áður og
sterkari andstæður.
Þorsteinn er menntaður arkitekt.
Hann er meðeigandi í ASK arki-
tektum, einni stærstu arkitekta-
stofu landsins, en málar samhliða
hefðbundnum störfum sínum í arki-
tektúr.
Litagleði Bjartir litir eru áberandi í nýjum verkum Þorsteins Helgasonar.
Sýnir abstrakt verk
„með líflegum takti“
Rússneski hljómsveitarstjórinn Valery Gergiev hefur á
undanförnum árum verið sá allra uppteknasti í faginu
og verið ýmist aðalhljómsveitastjóri eða sérstakur
gestastjórnandi margra þekktra sinfóníuhljómsveita.
Hann hefur um langt árabil verið mikill vinur Pútíns
Rússlandsforseta og eftir að innrás Rússa í Úkraínu
hófst, hafa yfirstjórnir þeirra hljómsveita, sem hann
vinnur fyrir og ekki eru í Rússlandi, krafist þess að Ger-
giev fordæmi innrásina. Sem hann hefur ekki gert. Af
þeim sökum hætti umboðsmaður hans til margra ára og í
kjölfarið var Gergiev rekinn frá Fílharmóníuhljómsveit-
inni í München, Scala-óperunni í Mílanó, hljómsveit Festspielhaus í Baden-
Baden og Elbfílharmóníunni í Hamborg.
Í The Guardian er haft eftir fyrrverandi umboðsmanni Gergievs, að
hann sé mestur núlifandi hljómsveitarstjóra, og heiðvirður maður. En
hann vilji ekki eða geti ekki fordæmt glæpi rússneskra stjórnvalda.
Hljómsveitir reka Valery Gergiev
Valery Gergiev
Fyrstu gestir ársins í fyrirlestra-
röðinni Umræðuþræðir í Listasafni
Reykjavíkur – Hafnarhúsi í kvöld,
fimmtudag, eru Krist Gruijthuijsen,
forstöðumaður KW Institute for
Contemporary Art í Berlín, og
Anna Gritz, sýningarstjóri KW.
Fyrirlestur þeirra hefst klukkan
20.
Í erindinu „KW Institute for Con-
temporary Art Then and Now“
munu Gruijthuijsen og Gritz fjalla
um sögu og stefnu KW og kynna
framtíðarsýn sem tekst á við bæði
breyttar þarfir listamanna og
áskoranir liststofnana í menningar-
umhverfi samtímans.
Gruijthuijsen er margreyndur
sýningarstjóri og listgagnrýnandi
og hefur starfað sem forstöðumað-
ur KW Institute for Contemporary
Art í Berlín frá árinu 2016. Anna
Gritz er sýningarstjóri KW og tek-
ur senn við sem forstöðumaður
Haus am Waldsee í Berlín.
Gestir frá Berlín í Umræðuþráðum
Fyrirlesarar Krist Gruijthuijsen og Anna
Gritz eru margreyndir sýningarstjórar.
Vinir
fá sérkjör
Skráning á icewear.is
FUNI dúnúlpa
Kr. 33.990.-
Þín útivist - þín ánægja
HVÍTANES Merínó hálsklútur
Kr. 4.990.-
HVÍTANES Merínó ennisband
Kr. 2.990.-
ATLI softshell buxur
Kr. 17.900.-
BRIMNES
meðalþykk
göngusok
Kr. 2.15
ir
kar
0.-
HVÍTANE
Merínó lambhúshetta
Kr. 4.990.-
S
ASOLO Falcon
Kr. 29.990.-
HVÍTANES Merino peysa
Kr. 13.990.-
HVÍTANES Merino peysa
Kr. 13.990.-
HVÍTANES merino buxur
Kr. 11.990.-
SANDEY Flíshanskar
Kr. 2.990.-