Morgunblaðið - 03.03.2022, Page 76
SealyWASHINGTON
heilsurúm með classic botni
Sealy SEATTLE
heilsurúm með classic botni
Sealy PORTLAND
heilsurúm með classic botni
Virkilega vönduð dýna og hentar fólki á öllum aldri.
Washington heilsudýnan er með einstaklega vönduðu, tvöföldu
svæðaskiptu pokagormakerfi, kantstyrkingum og vandaðri yfirdýnu
sem færir þér enn meiri þægindi og stuðning við líkamann.
Ótrúlega vönduð og góð dýna á frábæru verði.
Fæst í 160/180/200x200 og 180x210 cm.
Verðdæmi 160 x 200 cmm/Classic botni og löppum
Fullt verð: 269.900 kr.Tilboð: 215.920 kr.
Verðdæmi 180 x 200 cmm/Classic botni og löppum
Fullt verð: 194.900 kr.Tilboð: 155.920 kr.
Virkilega vönduð dýna.
Millistíf heilsudýna með pokagormum
sem gefa fullkominn stuðning. Henni er
skipt upp eftir svæðum þannig að það er meiri stuðningur þar
sem við erum þyngri eins og öxlum ogmjöðmum. Náttúrulegt
Talalay latex í bland við mismunandi svamptegundir gefa henni gott
loftflæði. Virkilega vönduð dýna sem hentar fólki á öllum aldri.
Fæst í 120/140/160/200 x 200 cm.
Gæði á góðu verði.
Portland er með góðum
og sterkum pokagormum og kant-
styrkingum. Millistíf dýna með pillow top úr
mismunandi stífum svamplögum og trefjalagi. Mýkt á móti
stífum og góðum gormum. Mjúkt og gott bómullaráklæði
sem andar einstaklega vel. Dýna sem hentar öllum sem
vilja gæða vörumerki og vandaða vöru.
Fæst í 120/140/160/200 x 200 cm.
Verðdæmi 120 x 200 cmm/Classic botni og löppum
Fullt verð: 160.900 kr.Tilboð: 128.720 kr.
www.DORMA.is
Verð og vöruupplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur.
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
„Í faraldursmyrkri“ er yfirskrift tónleika Caput-hópsins
í Norðurljósasal Hörpu í kvöld, miðvikudag. Tónleikarnir
eru á dagskrá Myrkra músíkdaga og hefjast klukkan
20. Flutt verða tónverk eftir íslensk tónskáld, Hauk
Tómasson, Gísla Magnússon, Báru Gísladóttur, Kristján
Guðjónsson, Hauk Þór Harðarson, Halldór Smárason og
Bergrúnu Snæbjörnsdóttur. Guðni Franzson stjórnar.
Caput hefur starfað frá árinu 1988 og hefur frá upp-
hafi sérhæft sig í flutningi samtímatónlistar.
Caput flytur verk íslenskra
tónskálda „Í faraldursmyrkri“
FIMMTUDAGUR 3. MARS 62. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik mátti þola
naumt 29:30-tap á útivelli gegn Tyrklandi í undankeppni
Evrópumótsins í gær. Ísland var yfir nánast allan leikinn
en Tyrkland skoraði tvö síðustu mörkin og komst yfir í
fyrsta og eina skiptið í stöðunni 30:29. »66
Tyrkir skoruðu síðustu tvö mörkin
ÍÞRÓTTIR MENNING
Inga Þóra Pálsdóttir
ingathora@mbl.is
„Við höldum að allir hafi gott af því
að gleyma í smástund öllu ruglinu
sem er í gangi og koma í íþróttasal-
inn í Versló og fá smá glimmer-
sprengju í andlitið,“ segir Bjarni
Kristbjörnsson sem leikur Bill í
söngleiknum Mamma Mia Here V.Í.
Go Again sem nemendamótanefnd
Verslunarskóla Íslands setur nú
upp.
Stefnt var að því að frumsýna
verkið í byrjun febrúar en vegna
heimsfaraldursins Covid-19 neydd-
ist hópurinn til að fresta frumsýn-
ingunni. Fyrsta almenna sýningin
verður á sunnudaginn.
,,Þetta hefur gengið lygilega vel
miðað við aðstæður. Þetta small allt
saman á réttum tíma,“ segir Guð-
ríður Jóhannsdóttir sem leikur
Donnu í söngleiknum.
Fjöldi nemenda kemur að upp-
setningu verksins. Bjarni segir hóp-
inn mjög náinn og mikla stemningu
vera í honum. „Við æfum saman á
daginn og förum saman í partí á
kvöldin.“
Selma Björnsdóttir, sem er flest-
um landsmönnum kunn, leikstýrir
söngleiknum. Guðríður og Bjarni
segja hana hafa kennt þeim margt
og það vera mikinn heiður að vinna
með henni. ,,Hún er stútfullur visku-
brunnur,“ segir Guðríður.
Morgunblaðið/Eggert
Gleði Til skoðunar er að fjölga sýningunum. ,,Miðarnir seljast eins og heitar lummur,“ segir Bjarni sem leikur Bill.
Landsmenn hafi gott af
smá glimmersprengju
- Selma Björnsdóttir leikstýrir söngleik nemenda í Versló
Morgunblaðið/Eggert
Efnileg Bjarni og Guðríður hafa komið að fjölda leiksýninga í Versló og
hafa bæði áhuga á leiklistarnámi að menntaskólanáminu loknu.