Morgunblaðið - 03.03.2022, Síða 76

Morgunblaðið - 03.03.2022, Síða 76
SealyWASHINGTON heilsurúm með classic botni Sealy SEATTLE heilsurúm með classic botni Sealy PORTLAND heilsurúm með classic botni Virkilega vönduð dýna og hentar fólki á öllum aldri. Washington heilsudýnan er með einstaklega vönduðu, tvöföldu svæðaskiptu pokagormakerfi, kantstyrkingum og vandaðri yfirdýnu sem færir þér enn meiri þægindi og stuðning við líkamann. Ótrúlega vönduð og góð dýna á frábæru verði. Fæst í 160/180/200x200 og 180x210 cm. Verðdæmi 160 x 200 cmm/Classic botni og löppum Fullt verð: 269.900 kr.Tilboð: 215.920 kr. Verðdæmi 180 x 200 cmm/Classic botni og löppum Fullt verð: 194.900 kr.Tilboð: 155.920 kr. Virkilega vönduð dýna. Millistíf heilsudýna með pokagormum sem gefa fullkominn stuðning. Henni er skipt upp eftir svæðum þannig að það er meiri stuðningur þar sem við erum þyngri eins og öxlum ogmjöðmum. Náttúrulegt Talalay latex í bland við mismunandi svamptegundir gefa henni gott loftflæði. Virkilega vönduð dýna sem hentar fólki á öllum aldri. Fæst í 120/140/160/200 x 200 cm. Gæði á góðu verði. Portland er með góðum og sterkum pokagormum og kant- styrkingum. Millistíf dýna með pillow top úr mismunandi stífum svamplögum og trefjalagi. Mýkt á móti stífum og góðum gormum. Mjúkt og gott bómullaráklæði sem andar einstaklega vel. Dýna sem hentar öllum sem vilja gæða vörumerki og vandaða vöru. Fæst í 120/140/160/200 x 200 cm. Verðdæmi 120 x 200 cmm/Classic botni og löppum Fullt verð: 160.900 kr.Tilboð: 128.720 kr. www.DORMA.is Verð og vöruupplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur. Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði „Í faraldursmyrkri“ er yfirskrift tónleika Caput-hópsins í Norðurljósasal Hörpu í kvöld, miðvikudag. Tónleikarnir eru á dagskrá Myrkra músíkdaga og hefjast klukkan 20. Flutt verða tónverk eftir íslensk tónskáld, Hauk Tómasson, Gísla Magnússon, Báru Gísladóttur, Kristján Guðjónsson, Hauk Þór Harðarson, Halldór Smárason og Bergrúnu Snæbjörnsdóttur. Guðni Franzson stjórnar. Caput hefur starfað frá árinu 1988 og hefur frá upp- hafi sérhæft sig í flutningi samtímatónlistar. Caput flytur verk íslenskra tónskálda „Í faraldursmyrkri“ FIMMTUDAGUR 3. MARS 62. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik mátti þola naumt 29:30-tap á útivelli gegn Tyrklandi í undankeppni Evrópumótsins í gær. Ísland var yfir nánast allan leikinn en Tyrkland skoraði tvö síðustu mörkin og komst yfir í fyrsta og eina skiptið í stöðunni 30:29. »66 Tyrkir skoruðu síðustu tvö mörkin ÍÞRÓTTIR MENNING Inga Þóra Pálsdóttir ingathora@mbl.is „Við höldum að allir hafi gott af því að gleyma í smástund öllu ruglinu sem er í gangi og koma í íþróttasal- inn í Versló og fá smá glimmer- sprengju í andlitið,“ segir Bjarni Kristbjörnsson sem leikur Bill í söngleiknum Mamma Mia Here V.Í. Go Again sem nemendamótanefnd Verslunarskóla Íslands setur nú upp. Stefnt var að því að frumsýna verkið í byrjun febrúar en vegna heimsfaraldursins Covid-19 neydd- ist hópurinn til að fresta frumsýn- ingunni. Fyrsta almenna sýningin verður á sunnudaginn. ,,Þetta hefur gengið lygilega vel miðað við aðstæður. Þetta small allt saman á réttum tíma,“ segir Guð- ríður Jóhannsdóttir sem leikur Donnu í söngleiknum. Fjöldi nemenda kemur að upp- setningu verksins. Bjarni segir hóp- inn mjög náinn og mikla stemningu vera í honum. „Við æfum saman á daginn og förum saman í partí á kvöldin.“ Selma Björnsdóttir, sem er flest- um landsmönnum kunn, leikstýrir söngleiknum. Guðríður og Bjarni segja hana hafa kennt þeim margt og það vera mikinn heiður að vinna með henni. ,,Hún er stútfullur visku- brunnur,“ segir Guðríður. Morgunblaðið/Eggert Gleði Til skoðunar er að fjölga sýningunum. ,,Miðarnir seljast eins og heitar lummur,“ segir Bjarni sem leikur Bill. Landsmenn hafi gott af smá glimmersprengju - Selma Björnsdóttir leikstýrir söngleik nemenda í Versló Morgunblaðið/Eggert Efnileg Bjarni og Guðríður hafa komið að fjölda leiksýninga í Versló og hafa bæði áhuga á leiklistarnámi að menntaskólanáminu loknu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.