Morgunblaðið - 22.03.2022, Síða 4

Morgunblaðið - 22.03.2022, Síða 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2022 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Svefn hefur mikil áhrif á andlega og líkamlega líðan og er góður svefn grundvallarþáttur í hamingju og heilbrigði fólks. Þetta kom fram á málþingi í gær þar sem fjallað var um svefn, hamingju og heilbrigði. Tilefnið var alþjóða- dagur svefns þann 18. mars og alþjóðadagur hamingju 20. mars. Málþingið var samstarfs- verkefni Embættis landlæknis, Háskólans í Reykjavík og Svefnseturs hans, Betri svefns og Rannsókna og greiningar. Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sálfræðingur og sviðsstjóri lýðheilsusviðs landlæknis, fjallaði m.a. um áhrif kórónuveirufaraldursins á félagslega heilsu og líðan sem er mikilvæg fyrir hamingju fólks. Kannanir sýna að sam- kennd og góðvild fólks jókst í faraldrinum. Hamingja þjóða reyndist vera nokkuð stöð- ug í gegnum faraldurinn. Ísland var í 3. sæti þjóða á eftir Finnlandi og Danmörku varðandi hamingju á árunum 2019-2021. Ísland var í 2. sæti 2021 og í 4. sæti 2020. Landið hefur verið í einu af efstu fimm sætunum síðan þessi samanburður hófst. Embætti landlæknis hefur vaktað reglulega nokkra helstu áhrifaþætti heilbrigðis hjá landsmönnum 18 ára og eldri mánuð fyrir mánuð frá 2016. Hlutfall þeirra sem meta andlega heilsu sína slæma er kannað reglulega. Niðurstöður desembermánaða frá 2019 til 2021 sýndu að hlutfall þeirra sem mátu andlega heilsu sína slæma jókst úr 33% í 44% meðal 18-34 ára á þessu árabili. Það fór úr 36% árið 2019 meðal 35-54 ára í 21% í desember 2021. Meðal 55 ára og eldri fór það úr 21% í desember 2019 í 22,5% í desember 2021. And- legri líðan yngsta aldurshópsins hrakaði því verulega á þessu tímabili. Margrét Lilja Guðmundsdóttir, sérfræð- ingur hjá Rannsóknum og greiningu, kynnti niðurstöður nýrra rannsókna varðandi líðan og svefn. Hún benti á stórkostlegan árangur við að draga úr vímuefnaneyslu íslenskra barna í 10. bekk á árunum 1998-2021. Hins vegar eru nýjar áskoranir eins og nikótínpúðar, mikil neysla orkudrykkja, of mikill skjátími og margvíslegt áreiti sem spillir fyrir góðum svefni unga fólksins. Erla Björnsdóttir frá Betri svefni fjallaði um mikilvægi þess að sofa vel. Hún líkti góðum nætursvefni við töframeðal sem gerir okkur heilsuhraustari, bæði andlega og líkamlega, og hamingjusamari. Einnig getur það aukið fram- leiðni okkar og lífsgæði og jafnvel lengt líf okk- ar. „Værum við ekki öll til í að taka þessa pillu?“ spurði Erla. Hún sagði mikilvægt að fólk undirbyggi nætursvefn með því að róa sig niður, leggja frá sér skjáina og slaka á áður en það legðist til hvíldar fyrir miðnætti. Góður svefn undirstaða hamingju - Málþing um svefn, hamingju og heilbrigði - Andlegri líðan 18-34 ára hrakaði í heimsfaraldrinum - Samkennd og góðvild fólks jókst almennt í faraldrinum - Ísland í hópi þeirra hamingjusömustu Ljósmynd/Colourbox Svefn Góður nætursvefn er eins og meðal sem bætir alhliða heilsu og stuðlar að hamingju. Fundur! Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, er gestur á opnum hádegisfundi á morgun miðvikudaginn 23. mar kl. 12:00 í Valhöll. Allir velkomnir! , Samtaka eldri sjálfstæðismanna Breytingar á barnaníðsákvæði hegn- ingarlaga eru löngu tímabærar, fram- faraskref og réttarbót. Þetta kemur fram í umsögn embættis ríkislögreglu- stjóra um frumvarp um breytingar á nokkrum ákvæðum almennra hegn- ingarlaga er snerta barnaníð, mismun- un og hatursorðræðu. „Það er mikil- vægt að þarna er bæði verið að hækka refsirammann þannig að hann nálgist það að ná utan um stærstu málin og leiðbeiningar gefnar um mat á alvar- leika brota. Það er líka sérstaklega ástæða til þess að fagna þeim breyt- ingum sem gera á varðandi kynferðis- legar myndasendingar á milli ungs fólks. Það styður skilaboð laganna um mikilvægi samþykkis í kynferðislegum samskiptum og er til þess fallið að skýra réttarvernd,“ segir í umsögn rík- islögreglustjóra. Þar er ennfremur vís- að til skýrslu Maríu Rúnar Bjarnadótt- ir um kynferðislega friðhelgi og umfjöllunar um 15-18 ára ungmenni þar. Minnt er á að huga þurfi að þess- um hóp hvað varðar refsileysi kynferð- islegra samskipta jafningja á svipuðum aldri með samþykki beggja. Í umsögn Ákærendafélags Íslands segir að félagið styðji frumvarpið og sé sammála breytingum sem það feli í sér. „Félagið leggur þó til að sú breyt- ing verði gerð á 3. gr. frumvarpsins að 2. mgr. verði felld inn í 1. mgr. 3. gr., þannig að skoðun myndefnis verði einnig talin upp í 1. mgr. ákvæðisins og ekki gerður neinn greinarmunur á háttsemi, hvað skoðun myndefnis varðar. Þannig eigi grófleikamatið einnig við þegar einungis er um skoðun myndefnis að ræða líkt og hvað önnur atriði varðar sem talin eru upp í 1. mgr. ákvæðisins,“ segir í umsögninni. Nái utan um stærstu málin - Breytingar boð- aðar á almennum hegningarlögum Morgunblaðið/Unnur Karen Lögregla Breytingar hafa verið boðaðar á lögum um barnaníð. Mánudagur 21. mars Karín í Karkív „Í dag er tuttugasti og sjötti dagur innrásar Rússa. Við erum enn á lífi. Stöðugar loftárásir voru í alla nótt og við vorum mjög hrædd. Rússar eru að skjóta langdrægum eldflaugum á borgina og hávaðinn glymur hérna rétt hjá okkur og í fjarska. Þessir villimenn halda óbreyttum borgurum í skelfingu. Þeir eru að eyðileggja allt, drepa fólk og beita sál- fræðilegum þrýstingi til að þvinga okkur til að ganga að kröfum þeirra. Hræðilegar fréttir bárust á laug- ardaginn þegar Boris Romanchenko sem var 96 ára lést í loftárás í Karkív. Hann lifði af helförina í útrýming- arbúðum nasista í seinni heimsstyrj- öldinni, en var drepinn af rússneskri eldflaug og þeir kalla okkur nasista! Samkvæmt upplýsingum frá Ígor Terekóv, borgarstjóra Karkív, voru 972 byggingar eyðilagðar og þar af 778 íbúðabyggingar. Það er ekki hægt að semja neitt við þetta fólk. Eina sem hægt er að samþykkja er að þessi villimannaþjóð Rússland verði afvopnuð og afnasistavædd. Þeir þurfa að fara eftir samningum sem gerðir voru eftir seinni heimsstyrjöldina. Smá hlé frá hörmungunum. Ég sá í dag á netinu að í dag er dagur brúðu- leikara. Ég tengist þeim heimi sjálf og bý til brúður. 23. febrúar sl.voru nokkrar af brúðunum mínum valdar til að vera á listasýningu samtaka listamanna í Karkív. Ég kallaði brúðurnar mínar: „Par á sigurdans- leiknum.“ Auðvitað var sýningin aldrei opnuð, en hún verður opnuð þegar við höfum sigrað hryðjuverkaríkið Rússland.“ Lifði helförina Boris Romanchenko var drepinn af Rússum á föstudag. „Og þeir kalla- okkur nasista!“ Raddir frá Úkraínu Morgunblaðið og mbl.is birta dag- bókarfærslur fólks í Úkraínu þar sem það lýsir dag- legu lífi eftir innrás Rússa og hvernig líf þess hefur breyst. Karín og eiginmaður hennar eru enn í Karkív. Brúður Karine „Par á sigurdans- leik“ voru valdar á listasýningu. Dagur brúðuleikara smá ljós í myrkrinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.