Morgunblaðið - 22.03.2022, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2022
Hrafnar Óðins tjáðu sig um
borgarstjóra í Viðskipta-
blaðinu í liðinni viku og sögðu þar
að Dagur væri „alla jafna óhrædd-
ur við að sitja undir flassi ljós-
myndara við borða-
klippingar og
undirskrift samn-
inga fyrir hönd
borgarinnar. Nú
styttist í
borgarstjórnar-
kosningar og Dag-
ur hefur verið með
pennann á lofti sem
aldrei fyrr. Frá mánaðamótum
hafa fjölmiðlum borist tilkynn-
ingar um hvorki meira né minna
en tíu viðburði og samninga sem
Dagur hefur verið viðstaddur – og
enn eru tvær vikur eftir af mars-
mánuði.“
- - -
Huginn og Muninn sögðu einn-
ig: „Um tímamótasamninga
hefur verið að ræða á ýmsum svið-
um hjá Degi á borð við nýjan
„tónlistarkjarna í Árbæ, „sam-
ræmda sorphirðu á höfuðborgar-
svæðinu“, „Betri borg fyrir börn í
Reykjavík“, „djarft, hlýlegt og
rómantískt“ Lækjartorg og
„áframhaldandi samvinnu um sam-
félagslegan viðskiptahraðal“ við
Háskóla Íslands“.
- - -
Þá sögðu hrafnarnir að athygli
vekti „að hinir oddvitarnir í
meirihlutasamstarfinu, Dóra Björt
Guðjónsdóttir, Líf Magneudóttir
og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, hafa
hvergi verið nefndar á nafn í til-
kynningunum, enda fremur kall-
aðar út þegar svara þarf fyrir erf-
iðari mál og Dagur er sagður utan
þjónustusvæðis“.
- - -
Eins og sést á þessari lýsingu
hafa útsvarsgreiðendur í
Reykjavík ástæðu til að fagna því
að fjölmenn áróðurs- og kynning-
ardeild borgarstjóra vinni vel fyr-
ir kaupinu sínu.
Dagur B.
Eggertsson
Vel heppnuð
kynningarherferð
STAKSTEINAR
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 1001 - VÍÐÞEKKT ÞÆGINDI
Byggt á fyrsta DUX rúminu sem var framleitt árið 1926, þetta er sannarlega það sem draumar eru byggðir á.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
Þrjár litlar stúlkur settu upp leik-
ritið Kattholt í íþróttahúsinu á Þórs-
höfn á laugardaginn og allur ágóði
átti að renna í Rauða krossinn til
styrktar Úkraínu.
Leikendur og hugmyndasmiðir
voru þær Dögun Rós Steinarsdóttir
og Helena Potrykus, sem eru átta
ára, og hin sex ára gamla Aleks-
andra Potrykus. Til aðstoðar og í
miðasölu var sú fjórða, Írena Móey
Þorsteinsdóttir. Stúlkurnar höfðu
einnig samið við starfsmann íþrótta-
hússins, Odd Skúlason, um að taka
að sér hlutverk pabbans, Antons í
Kattholti, og því góða boði gat hann
ómögulega hafnað.
Emil og Ída fóru á kostum og
sungu hástöfum heilu söngvana um
Emil og skammastrik hans og þeytt-
ust um gólfið svo áhorfendur veltust
um af hlátri. Þessar litlu stúlkur
sýndu mikla hugkvæmni við leik-
gerðina; þær sömdu handritið alfar-
ið sjálfar og alla söngvana kunnu
þær utan að.
Rúmur mánuður er síðan þær
ákváðu að setja upp leikritið, al-
gjörlega að eigin frumkvæði, og
þeim fannst íþróttahúsið kjörinn
vettvangur. Þær voru alveg sjálf-
bjarga með allt og með allt á hreinu
en fengu svo foreldrana til að aug-
lýsa viðburðinn á facebook en þær
höfðu sjálfar gert fína auglýsingu.
Bæði börn og fullorðnir drifu sig á
sýninguna en ágóðinn varð rúmlega
eitt hundrað þúsund krónur og
hlakka litlu leikkonurnar til að fara í
bankann og leggja inn peningana, til
að hjálpa bágstöddum í Úkraínu.
Krakkar settu
upp Kattholt
- Ágóðinn rennur til styrktar Úkraínu
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Uppselt Allir miðar á Kattholt
seldust upp hjá miðasölukonunum.
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
Norðurhluti miðbæjar Akureyrar
mun innan tíðar taka breytingum.
Byggingafélagið SS-Byggir keypti í
lok síðasta árs húsið við Geislagötu 5
þar sem Arion banki var síðast til
húsa og hyggst hækka það um tvær
hæðir. Næsta hús norðan við, Borg-
arbíó, hefur verið selt og hefur kaup-
andinn, BB-Byggingar, áform um
uppbyggingu á reitnum.
Skipulagsráð Akureyrarbæjar
hefur tekið jákvætt í erindi frá T.
Ark arkitektum sem sent var inn
fyrir hönd lóðarhafa en í erindinu er
óskað eftir því að húsið verði allt að
fimm hæðir og sú efsta inndregin.
Eins kemur fram í erindinu að gert
verði ráð fyrir íbúðum á annarri til
fimmtu hæð hússins og að á jarðhæð
verði verslun og þjónusta. Loks er
óskað eftir heimild til að byggja sól-
skála mót suðri fyrir verslun og
þjónustu.
Húsið við Geislagötu hefur staðið
autt um tíma eða frá því Arion banki
flutti starfsemi sína á Glerártorg.
BB Byggingar hafa keypt næsta
hús, Borgarbíó, og stefna að því að
byggja upp á þeim reit verslunar- og
þjónusturými sem og íbúðir. Fram
hefur komið að ein hugmynd nýrra
eigenda sé að rífa núverandi hús
Borgarbíós og byggja nýtt í staðinn.
Breytingar fram undan á Akureyri
- Uppbygging áformuð í miðbænum
Stækkun Til stendur að hækka hús-
ið við Geislagötu 5 um tvær hæðir.