Morgunblaðið - 22.03.2022, Page 10

Morgunblaðið - 22.03.2022, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2022 2022 SVEITARSTJÓRNAKOSNINGAR Morgunblaðið/Árni Sæberg Sveitarfélagið Skagafjörður Skagafjörður er eitt helsta landbúnaðar- og matvælaframleiðsluhérað landsins, en þar hefur mikill uppgangur verið undanfarin ár. Því fylgja hins vegar ýmsir vaxtarverkir og það eru helstu viðfangsefnin í sveitarfélaginu. DAGMÁL Andrés Magnússon Stefán E. Stefánsson Í upphafi tíunda áratugarins blés ekki byrlega fyrir atvinnulífinu í Skaga- firði. Þessa minnist Magnús Svavars- son vel en hann hefur í yfir fjörutíu ár sinnt vöruflutningum á svæðinu. Hann er í dag framkvæmdastjóri Vörumiðlunar sem er umsvifamikið fyrirtæki í Skagafirði og raunar vítt og breitt um landið. Bendir hann á að þá hafi atvinnuleysi verið töluvert og að ýmis atvinnurekstur hafi hopað vegna samfélagsbreytinga. Nú sé öld- in önnur og allir sem vilji hafi vinnu og húsnæði sé af skornum skammti á svæðinu. Meðvituð ákvörðun um atvinnuuppbyggingu Vörumiðlun er í eigu Kaupfélags Skagfirðinga en Magnús bendir á að þar á bæ hafi meðvituð ákvörðun ver- ið tekin um að sækja fram í stað þess að láta hluti drabbast niður. Sjávar- útvegur hafi verið efldur og komið hafi verið í veg fyrir að mjólkurfram- leiðsla flyttist frá Sauðárkróki. Undir þetta tekur Ásta Pálmadótt- ir en hún er einn af eigendum Steypu- stöðvar Skagafjarðar. Þau eru raunar þrjú sem koma að rekstrinum, systk- ini sem lengi hafa átt aðkomu að rekstrinum en á undan þeim faðir þeirra þriggja. Ásta hefur reyndar fjölbreytta reynslu að baki, var sveit- arstjóri í Skagafirði á árunum 2010 til 2018. Magnús og Ásta segja að þótt upp- byggingin hafi verið mikil þá eigi samfélagið enn mikið inni og þau hafa augljóslega mikla trú á framtíðar- möguleikum Sveitarfélagsins Skaga- fjarðar þar sem gengið verður til kosninga líkt og í öðrum sveitar- félögum landsins 14. maí. Í áhugaverðu samtali við þau í Kosninga-Dagmálum, sem nálgast má á mbl.is og helstu hlaðvarps- veitum, segja þau frá þessum tæki- færum, hvernig framleiðsla hefur orðið þungamiðja í atvinnulífi sam- félagsins og hvernig enn megi finna tækifæri til þess að bæta þetta ríflega 4.000 manna samfélag. Byltingarkenndar breytingar - Vörn hefur verið snúið í sókn í Skagafirði - Samfélag sem byggir á umfangsmikilli framleiðslu - Næg störf í boði fyrir vinnufúsar hendur - Enn mikil tækifæri í uppbyggingu á komandi árum Morgunblaðið/Brynjólfur Löve Dagmál Magnús Svavarsson í Vörumiðlun og Ásta Björg Pálmadóttir í Steypustöðinni og fyrrverandi sveitarstjóri. *Drægnimiðast við uppgefnar tölur framleiðanda samkvæmt nýjumWLTP staðli um drægni í raunvegulegum aðstæðum. BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 Bílasala Reykjaness Reykjanesbæ www.bilasalareykjaness.is 419 1881 RENAULT EXPRESS Fyrir kröfuharða fagaðila 5ÁRAÁBYRGÐ TILAFGREIÐSLUSTRAX! www.renault.is Renault Express Dísil (5,1 l/100 km*), beinskiptur, Verð: 3.056.451 kr. ánvsk. Verð: 3.790.000 kr. E N N E M M / S ÍA / N M 0 1 0 1 2 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.