Morgunblaðið - 22.03.2022, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 22.03.2022, Qupperneq 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2022 en alltaf varstu handviss um að maður hefði ekkert borðað og hvattir mann til að fá sér meira. Þú varst með fallega rödd og sönglaðir gömul revíulög á meðan þú lagaðir matinn. Mér þótti röddin þín líka mjög svæfandi en oft lastu fyrir mig bækur í gegn- um símann á kvöldin og lagðir ekki á fyrr en ég var komin í draumalandið. En við heyrðumst næstum daglega um daginn og veginn, svo leiðbeindirðu mér ungri um hvernig ætti að baka draumatertu, bóndakökur, djöfla- tertu og lengi gæti ég talið. Þú varst alltaf lekker, hárið nýlagað, neglurnar lakkaðar, húðin silki- mjúk og nýstraujuð föt. Ég gleymi því aldrei hvað það var spennandi að skoða skartgripina þína, skóna og alla fínu munina. Allt var fínt í kringum þig og hvað þá kristallarnir í glugganum. Elsku amma mín, ég get rifjað upp endalaust af dýrmætum minningum. Þú varst engin venjuleg kona. Þú varst svo kraft- mikil, hlý og falleg. Þú kenndir mér svo óteljandi margt og ég óska þess að ég verði jafn góð amma og þú. Eins og við sögðum alltaf: Guð geymi. Bjarney María Bjarnadóttir. Elsku amma Dúna. Nú kveðj- um við þig, sem snertir hjörtu svo margra og margir munu sakna. Amma var mikil félagsvera, elskaði að segja sögur og spjalla og hafði mikinn áhuga á fólki. Dýrmætar þóttu mér frásagnir hennar frá uppvaxtarárunum á Holtinu við svo ólík skilyrði því sem við búum við í dag, en amma var alin upp á Grímsstaðaholtinu þegar þar voru ennþá smábænd- ur með túnskika og útróður og fiskverkun í hjöllunum við Ægi- síðuna. Í húsinu sem Eyjólfur langafi byggði við Smyrilsveg 28 bjó amma með foreldrum sínum og stórum systkinahópi, með kýr og hænur í garðinum. Eftir bú- skapartíð sína í Þristinum við Eiði á Seltjarnarnesi og svo á Dunhaganum keyptu amma og afi síðan æskuheimili ömmu við Smyrilsveginn og bjuggu þar til ársins 1989. Það var fastur liður í gegnum tíðina að fara í sunnudagskaffi til ömmu og afa, fyrst á Smyrilsveg- inn og síðar á Aflagrandann. Þar voru á borðum hnallþórur og kök- ur sem amma bakaði og fjall af pönnukökum sem hún steikti á tveimur pönnukökupönnum í einu. Allt þar til afi fluttist inn á Grund en þá fór amma til hans og sat hjá honum upp á hvern ein- asta dag í tæp þrjú ár þar til afi kvaddi. Amma hafði mikinn húmor og var síung í anda. Mér er minn- isstætt þegar við Vésteinn fórum að heimsækja hana síðasta vor til þess að segja henni að við ættum von á öðru barni um haustið. Þá mættum við ömmu í anddyrinu á Grund, skælbrosandi að grínast við starfsfólkið þar sem hún var nýkomin til baka frá því að kaupa sér bland í poka og íspinna í Kjöt- borg uppi á horni, þá 95 ára göm- ul. Kristín dóttir mín hafði gaman af því að heimsækja ömmu Dúnu á Grund, sækja vatn með klaka fyrir hana og fá að keyra jeppann hennar eins og amma kallaði göngugrindina sína. Eins og gengur voru heimsóknirnar ekki margar síðastliðin tvö ár á tímum heimsfaraldurs. Vegna þess er ég þakklát fyrir að hafa náð dýr- mætri stund með ömmu nokkrum dögum áður en hún kvaddi og sýna henni nýjasta fjölskyldu- meðliminn. Amma var orðin rúm- liggjandi og bersýnilega veik- burða en það eina sem hún hugsaði um var að hafa ofan af fyrir og skemmta dætrum mín- um. Ég horfi á Smyrilsveg 28 út um stofugluggann heima og hugsa til ömmu. Mikið vildi ég fá að heyra hana segja fleiri sögur frá sinni löngu ævi. Stök æsku- minning kemur upp í hugann frá sólardegi í garðinum við Smyr- ilsveginn, um rifsberjarunna, kofann og róluna þar sem í minn- ingunni var hægt að róla svo hátt að tærnar snertu himininn. Pönnukökur með sykri, kjöt- hringur og kapall. „Einkall úti að slá“ og „Þessi datt í sjóinn“. Hvíl í friði elsku amma. Guð geymi, eins og þú sagðir alltaf við okkur. Guðrún Meyvantsdóttir. „Hún Dúna frænka var að kveðja.“ Þessi boð fengum við í síðustu viku, ekki kannski hægt að segja þau óvænt, því Dúna náði hæsta aldri tíu systkina, varð 96 ára á síðasta ári. Hún stóð keik af sér erfiðleika og mótbyr í lífinu og hélt alla tíð baráttugleði og góða skapinu, og þrátt fyrir að hafa haft nóg að takast á við sjálf var hún ávallt reiðubúin að styðja aðra sem bágt áttu. Endalaust var gaman að heyra hana segja frá æskuárum á Holt- inu (Grímsstaðaholt), uppátækj- um og prakkarastrikum, og svo líka sáru augnablikunum. Hún hélt alla ævi uppi fjörinu í kring- um sig, frá bernsku til síðustu ár- anna, jafnvel á Grund skemmti hún jafnt íbúum sem starfsfólki. Mjög kært var á milli foreldra okkar og hennar frænku okkar og fengum við sannarlega að njóta þess á margan hátt, m.a. á afmælisdögum okkar mátti telja nokkuð víst að fyrsta símtal þess morguns yrði frá Dúnu þar sem hún var að óska okkur til ham- ingju með daginn og síðan var spurt um hagi okkar og rifjaðir upp gamlir tímar. Það er með miklu þakklæti sem við kveðjum hana Dúnu frænku okkar og sendum börn- um hennar og öðrum aðstand- endum innilegar samúðarkveðj- ur. Systkinin í Grundargerði 6, Helena Ásdís Brynjólfs- dóttir, Ólafur Brynjólfsson, Eyjólfur Brynjólfsson, Kristín Brynjólfsdóttir, Sverrir Brynjólfsson og Dagný Brynjólfsdóttir. Elsku Dúna mín, góða ferð í sumarlandið, ég veit að þar bíður Tóti þinn eftir þér, tekur þig í fangið og leiðir þig til þeirra sem farin eru á undan. Víst er að söngheftin verða tekin upp, gít- arinn og nikkan ekki langt undan og fallega söngröddin þín mun hljóma. Dúna hefur verið samofin mínu lífi frá fæðingu sem telur nú rúm 70 ár. Á Eiði 2 við Nesveg áttum við heima í húsi sem oftast var kallað þristurinn af því að í því voru þrjár íbúðir, raðhús, hvert um sig var 36 fermetrar. Þarna bjargaði eflaust miklu að við krakkarnir vorum mikið úti enda nóg við að vera, fjaran heillandi og á þessum árum var ekki búið að byggja svo mikið á Nesinu. Dúna og mamma mín voru mágkonur en þær voru líka bestu vinkonur, gerðu allt saman, bökuðu saman fyrir jól og páska, tóku slátur og fóru saman í Þvottalaugarnar í Laugardaln- um, þar sem þær urðu óvænt kvikmyndastjörnur hjá þýskum fréttamönnum. Ekki vitum við hvernig þeir skildu þær eða þær þá, en alla vega fengu þær sendar ljósmyndir frá þessum atburði. Dúna rak lengi bókabúð fyrst á Dunhaga 23 og seinna á Víðimel. Öllum fannst gaman að koma í búðina til hennar. Hún hafði létta lund, var alltaf brosandi, hafði gaman af að ræða við fólk og oft miðlaði hún fróðleik. Við hjónin áttum því láni að fagna að eyða stundum með Dúnu í gegnum tíð- ina. Eftir að hún flutti á Grund fórum við Hafþór einu sinni í viku til hennar. Ég setti þá gjarnan rúllur í Dúnu og greiddi henni, Hafþór og Dúna sáu um sögu- stundir. Þannig græddum við öll þrjú, við ræddum um allt milli himins og jarðar. Hún sagði okk- ur frá uppvaxtarárum sínum og þar kom vel í ljós sá kærleikur og ást sem hún bar til foreldra sinna og systkina. Dúna talaði mikið um það ríkidæmi sem hún átti í börn- um sínum og afkomendum öllum. Hún talaði oft um hvað börnin og tengdabörnin glöddu hana á 95 ára afmælinu í miðju covid og engar heimsóknir leyfðar á Grund. Þau söfnuðu saman af- komendum og nánum vinum, fengu Gissur Pál á staðinn og hann söng fyrir hana þar sem hún sat inni í garðskálanum. Dúna gat umgengist alla, aldur skipti ekki máli. Það sást á Grund hvað unga fólkið sem þar starfaði sótti í að koma í herbergið hennar bara til að tala um allt og ekkert, þessar heimsóknir glöddu hana. Dúna söng með kórnum á Grund meðan heilsa leyfði. Hún tók þátt í tísku- sýningum á Grund, glæsileg var hún þar, það sáum við í sjónvarps- fréttum um kvöldið. Lífið fór ekki alltaf mjúkum höndum um Dúnu. Þegar það var rætt sagði hún: „Það er ekki alltaf til rjómi út á grautinn og enginn græðir á því að vera reiður.“ Þetta er svo sannarlega rétt hjá henni, við eig- um frekar að sá perlum kærleik- ans. Ef Daddi minn hefði lifað hefði hann skrifað grein um um þig og hún hefði eflaust verið betri, en þessi verður að duga. Elsku Dúna mín, takk fyrir allt. Farðu í friði, friður Guðs þig blessi. Elsku Binni, Gunnar, El- ísabet, Meyvant, Bjarni Þór og fjölskyldur. Samúðarkveðjur til ykkar, blessun Guðs fylgi ykkur. Lilja Hjördís. Þau stóðu oftast nær vaktina í Bókabúð Vesturbæjar, fyrst á Dunhaganum en síðan hér á Víði- melnum, Guðrún og Þórólfur. Oftast nær var það þó Guðrún ein, sem maður hitti fyrir, ef mað- ur þurfti að fara í bókabúðina til að kaupa dönsk blöð, bækur, stílabækur eða annað, sem til þurfti. Allt fékkst þar, enda var það fátt af ritföngum, bókum og blöðum, sem maður gat ekki fundið þar, fyrir utan ýmiss konar gjafavörur. Guðrún sá um það, og að maður þyrfti ekki að fara lengra til að kaupa það, sem mann vanhagaði um. Við Guðrún töluðum alltaf eitt- hvað saman, þegar ég kom í búð- ina og lítið var að gera, enda var hún ræðin og vildi kynnast við- skiptavinunum. Það var auðfund- ið. Það var líka gaman að tala við hana, því að hún var býsna fróð um menn og málefni. Kaupkona góð að auki. Það var því alltaf ánægjuefni að koma í búðina til hennar, enda fékk maður þar jafnan góðar móttökur. Við urð- um líka góðar kunningjakonur með tímanum. Það var líka mikil eftirsjá að henni, þegar hún hætti kaup- mennskunni vegna aldurs. Við hittumst þó alltaf við og við í Melabúðinni, enda bjó hún alltaf hérna í Vesturbænum, og því var von á, að maður gæti rekist á hana á förnum vegi. Og þá var spjallað, áður en hvor hélt sína leið. Hin seinni árin hitti ég hana ekki oft, en frétti stundum af henni. Og nú skiljast leiðir að sinni. Þegar ég nú kveð hana hinstu kveðju, þá þakka ég henni fyrst og fremst fyrir góða viðkynningu og kunningsskap gegnum árin og bið henni allrar blessunar Guðs, þar sem hún er nú. Hafi hún kæra þökk fyrir allt og allt. Aðstand- endum öllum votta ég innilega samúð. Blessuð sé minning Guðrúnar Eyjólfsdóttur. Guðbjörg Snót Jónsdóttir. HINSTA KVEÐJA Elsku Dúna. Ég kveð þig með virð- ingu, trausti og trú. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Hinsta kveðja, Guðrún Birgisdóttir. ✝ Anna Dóra Steingríms- dóttir fæddist á Djúpavogi 24. maí 1951. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 3. mars 2022 eftir erfið veikindi. Foreldrar henn- ar voru Stein- grímur Karlsson, f. 7.6. 1910, d. 5.5. 1967, og Þórhalla Björns- dóttir, f. 18.6. 1917, d. 9.8. 1999. Systkini Önnu Dóru eru: Ester Guðlaug Karlsdóttir, f. Anna Dóra giftist Guðjóni Ómari Haukssyni 1968 og slitu þau samvistir eftir 18 ára hjónaband. Börn þeirra eru: 1) Sigurður Haukur, f. 2.8. 1968, maki Svava Rós Al- freðsdóttir. Börn þeirra eru: Írena Dröfn, Alfreð Breki og Thelma Rán. 2) Kolbrún, f. 16.11. 1970, maki Brynjar Steinarsson. Börn þeirra eru: Jón Steinar, Ástrós og Eyþór Ingi. 3) Árni Þór, f. 12.7. 1972. 4) Guðjón Ómar, f. 27.6. 1983, sambýliskona Malin Anitdatter Karlstad. Börn þeirra eru: Haukur og Anna Dís. Anna Dóra giftist núlifandi maka, Magnúsi Ingvarssyni, hinn 30. desember 1995. Þau áttu ekki börn saman. Anna Dóra verður jarð- sungin frá Keflavíkurkirkju í dag, 22. mars 2022, kl. 13. 6.10. 1939. Ant- onía Björg Stein- grímsdóttir, f. 15.7. 1941. Karl Egill Steingríms- son, f. 21.9. 1942. Árni Björn Stein- grímsson, f. 1.9. 1943. Laufey Jó- hanna Steingríms- dóttir, f. 8.2. 1946. Sigurður Emil Steingrímsson, f. 11.9. 1952, d. 19.10. 2000. Kjartan Steingrímsson, f. 7.9. 1957. Sigurrós Margrét Stein- grímsdóttir, f. 5.10. 1956, d. 9.2. 2020. Elsku Anna Dóra. Það er með mikilli sorg að ég kveð þig í hinsta sinn. Þú varst ekki bara stjúpmóðir mín, þú varst líka góður vinur sem ég gat alltaf leitað til ef eitthvað bjátaði á, þú varst ófeimin við að vera hrein- skilin og sagðir ávallt þína mein- ingu óhikað. Þú varst líka orð- heppin og hafðir einstakt lag við að orða hlutina skemmtilega og með góðri skvettu af húmor og hlátri sem var alltaf handan hornsins. Það var líka gaman að koma í heimsókn. Það var ávallt tekið vel á móti manni, spjallað, hleg- ið, spilað, teiknað, föndrað eða bara kjaftað saman. Þú hafðir ótakmarkaða gleði af því að fá barnabörnin i heimsókn, lékst og talaðir við þau og gafst þeim ávallt tíma. Elsku Anna Dóra. Þú átt skil- ið að fá hvíld og ró eftir hetju- lega baráttu við harðan og grimman andstæðing. Megi guð varðveita þig. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Ingvar. Elsku besta Anna Dóra mín. Í dag kveð ég þig með sorg í hjarta. Mér finnst það svo sárt að vita til þess að þú sért ekki lengur hér hjá okkur, að geta ekki hringt í þig og spjallað endalaust eins og við vorum vanar eða hist þegar við eða þið komuð í heimsókn til Íslands eða til okkar í Noregi. Ég man svo vel eftir okkar fyrstu kynnum þegar ég kynnt- ist Ingvari og þú tókst mig á eintal og sagðir að það væri nú þér að mæta ef ég færi illa með hann. Þú varst alltaf svo hrein- skilin og sagðir hlutina eins og þeir voru. Ég lét nú ekki hræðast og með árunum náðum við svo ótrúlega vel saman og urðum góðar vinkonur og þú tókst á móti mér opnum örmum inn í fjölskylduna. Það er svo ótrúlega margs að minnast. Ferðirnar sem við fór- um saman í, Spánardjammið okkar ógleymanlega, Harry- túrarnir okkar yfir til Svíþjóðar og allt annað skemmtilega sem við fundum upp á saman. Fjölskyldan var þér þó allt og þú varst mjög dugleg að bjóða í mat og halda fjölskyldu- boð. Alltaf var dýrindismatur á boðstólum og svo vel hugsað um okkur. Þegar ömmubörnin voru yngri þá spilaðir þú íslensk jólalög í jólaboðunum og settir allt í botn og þú tjúttaðir á fullu með börnunum og söngst há- stöfum. Enda elskuðu þau þig svo heitt og fannst alltaf gaman að vera með ömmu sinni. Það var alltaf gott að vera í návist þinni, góðsemi þín og hlýhugur þinn geislaði af þér. Alltaf var stutt í djókið og hlát- urinn. Þú varst einstök og með hjarta úr gulli, falleg að innan sem utan. Mikið er ég þakklát fyrir síðasta daginn okkar saman þar sem ég lá við hliðina á þér í rúminu og við kjöftuðum um allt á milli heima og geima. Þó svo að þú værir orðin þetta veik þá varstu alltaf til í smá kjaftastuð. Ég dáist að þér hversu hetjulega þú barðist við þennan illvíga sjúkdóm fram að síðustu stundu. Þú ert hetjan mín. Takk fyrir allt elsku tengdó. Minninguna um þig mun ég ávallt geyma í hjarta mér. Elska þig endalaust. Þótt sólin nú skíni á grænni grundu er hjarta mitt þungt sem blý. Því burt varst þú kölluð á ör- skammri stundu, í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða, svo gestrisin, einlæg og hlý. En örlög þín ráðin - mig setur hljóða, við hittumst ei framar á ný. Megi algóður Guð þína sálu nú geyma, gæta að sorgmæddum, græða djúp sár. Þó komin sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. Þín að eilífu, Sigga. Sigríður Katrín Sigurðardóttir. Anna Dóra Steingrímsdóttir Kær frænka hef- ur gengið sinn veg og kannar nú Sum- arlandið. Kynni okk- ar hófust er ég var 5-6 ára. Mér fannst hún stórkostleg frænka, bæði í sjón og raun, að auki var hún kölluð Dídí sem hljómaði mjög vel í mínum eyrum. Ég vissi að afi átti börn og barnabörn sem bjuggu fyrir vestan en þetta fólk var mér fjarlægt því ég þekkti engan. Skyndilega birtist Dídí og minn heimur þandist út. Fjöl- skyldan var búsett á Reykhólum en föðurfólk hennar bjó í Stafni í Reykjadal. Þar var margbýli og stór frændgarður sem eflaust hef- ur ráðið því að hún valdi nám við Laugaskóla. Á ferðum sínum að og frá Laugum gafst tækifæri á að heimsækja afa í Villingadal. Með komu sendiherrans frá Reykhól- Kristín Ingibjörg Tómasdóttir ✝ Kristín Ingi- björg Tóm- asdóttir fæddist 4. maí 1932. Hún lést 24. desember 2021. Útför hennar var gerð 8. janúar 2022. um færðist sá ætt- bogi afa talsvert nær. Í mínum huga hefur hún frá fyrstu kynnum ver- ið tengiliður milli þessara skyld- menna. Mér er enn í minni er hún renndi sér á reip- taglinu niður í súr- heysgryfjuna til að heilsa pabba, hon- um að óvörum. Honum varð loks að orði. „Ertu ekki sár í lófun- um?“. Áratugir liðu uns Hjörvar föðurbróðir minn vakti máls á göngu á slóðir forfeðranna í Djúpadal í Blönduhlíð. Dídí var boðin þátttaka, sem hún þáði. Sigfríður dóttir Hjörvars var þá búsett í Hjaltadal þar sem hefja átti förina. Gengið var upp úr Hvammsdal, yfir fjallið, niður Kattárdal í Heimdal og endað í Djúpadal, ættaróðali Djúpa- dalsættarinnar í nær 400 ár. Upp Hvammsdalinn var á bratt- ann að sækja. Ekki hægði Dídí gönguna nema síður væri. Þeg- ar fundum hennar og Hjörvars bar næst saman mælti hann til frænku sinnar: Upp úr sveit nú flokkur fer fremur heit er sólin. Fjallageit á undan er yfir Streitishólinn. Í Djúpadal biðu höfðinglegar móttökur hjá okkar ágæta frænd- fólki. Þetta var minnisstæður dag- ur og var því ákveðin önnur ferð á sömu slóðir. Að ári var búist til ferðar á ný. Gangan hófst við Valagilsá, gengið upp með ánni, um Kleifar og Fyls- mýrar og um fjöllin niður í Djúpa- dal, sömu leið og Mera-Eiríkur rak stóð sitt til sumarbeitar á Fylsmýrar forðum daga. Enn átt- um við eftir að ganga að Hraunþú- fuklaustri í Vesturdal og að Klóni í Hrollleifsdal, fæðingarstað Krist- ínar ömmu Dídíar. Alltaf var jafn- gaman að vera með Dídí, aðstæð- urnar skiptu ekki máli. Á þessu fjallaflakki okkar var Máni jafnan til taks, bæði árdegis og síðdegis, ók liðinu þangað sem för hófst og sótti það síðan á áfangastað. Dídí valdi ljósmóðurstarfið. Hún bar ætíð umhyggju fyrir náunga sínum, hlúði að sál og lík- ama. Að leiðarlokum þakka ég minni ágætu frænku allar sam- verustundirnar. Við Villingadals- systkini vottum Mána, niðjum Steinunnar frænku og vanda- mönnum samúð okkar. Ingibjörg Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.