Morgunblaðið - 22.03.2022, Side 24
Reykjavík Þórir Rúnar fæddist 16.
nóvember kl. 13.49 á Landspítalanum í
Reykjavík. Hann vó 3.452 g og var 50
cm langur. Foreldrar hans eru
Stefanía Ósk Þórisdóttir og Auðunn
Rúnar Gissurarson.
Nýr borgari
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2022
30 ÁRA Stefanía er Reykvíkingur
og hefur alltaf búið í Árbænum.
Hún er kennari í Selásskóla og
fimleikaþjálfari hjá Fylki. Hún spil-
aði fótbolta með meistaraflokki
Fylkis og Hauka. Áhugamálin eru
íþróttir, bakstur, fjölskyldan, vinir
og ferðalög.
FJÖLSKYLDA Stefanía er í sam-
búð með Auðuni Rúnari Gissurar-
syni, f. 1991, lyfjafræðingi hjá Vi-
stor. Sonur þeirra er Þórir Rúnar,
f. 2021. Foreldrar Stefaníu eru
Þórir Sigfússon, f. 1959, vinnur hjá
VÍS, og Margrét Gunnarsdóttir, f.
1963, lærður þjónn, rak prent-
smiðju í mörg ár en starfar í dag í
prentsmiðjunni Litróf. Þau eru bú-
sett í Reykjavík.
Stefanía Ósk Þórisdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Sannan vinskap má ekki hafa í flimt-
ingum. Hafðu það að leiðarljósi og trúðu því
að þú sért ábyrgur fyrir eigin lífi.
20. apríl - 20. maí +
Naut Kýldu á verkefni sem þú hefur beðið
með þótt ekki sé víst að allt gangi upp. Þitt
innra stýrikerfi beinir þér í átt að snilldar-
lausnum.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þetta er dagurinn til þess að láta
ljós sitt skína. Félagslífið stendur með mikl-
um blóma um þessar mundir. Njóttu þess.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Það er alveg sama hverju þú vilt
halda fram, hlutirnir gerast ekki að ástæðu-
lausu. Gættu þess að vanda framkomu þína
í orði og á borði.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Það er engu líkara en að samstarfs-
menn þínir vilji halda þér utan við ákveðið
verkefni. Farðu varlega í að samþykkja nokk-
uð.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Leggðu þig fram um að njóta dagsins
með góðu fólki. Áður en þú einangrast alveg
skaltu eyða tíma þínum í að finna út það
sem þú átt sameiginlegt með öðrum.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Enginn getur unnið hvíldarlaust án þess
að tapa áttum og týna lífssýn sinni. Láttu
aðra ekki slá þig út af laginu.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú ert með mörg járn í eldinum
og mátt halda vel á spöðunum til þess að
koma öllu í höfn. Ef þú helgar þig göfugum
málstað tekst þér það sem þú ætlar þér.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þótt gott sé að hafa reglurnar á
hreinu, verður þú líka að geta gripið til sér-
stakra ráðstafana, þegar óvæntir atburðir
verða. Fólk tekur eftir þér, hver sem ástæð-
an er.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Allt það sem þú gerir til að bæta
heilsu þína í dag mun skila góðum árangri.
Reyndu að taka því rólega í dag og sýndu
öðrum þolinmæði.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú verður að geta þagað yfir
leyndarmáli, ef þú vilt halda vináttu gamals
félaga. Kannski fær hann óvæntar fréttir
sem slá hann út af laginu.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Næstu vikur verða fullar af alls kyns
skemmtilegri afþreyingu. Reyndu að um-
bera erfitt fólk þótt það geti verið þreytandi
á stundum.
stjóri Háaleitisskóla í Reykjanesbæ.
Friðþjófur var bæjarfulltrúi í
Hafnarfirði frá 2018 en hætti um ára-
mótin þegar hann flutti í Reykja-
nesbæ. „Í tæp 17 ár starfaði ég með
Samfylkingunni en söðlaði um nú í
vor og tek nú þátt sem frambjóðandi í
undirbúningi kosningabaráttu með
Framsókn hér í Reykjanesbæ. Sumir
myndu segja að hver vegur að heim-
an sé vegurinn heim. En ég starfaði
með Framsóknarflokknum hér á ár-
um áður sem ungur maður og var
m.a. ritari ungra framsóknarmanna í
2003 er hann var ráðinn til starfa við
Hjallaskóla, fyrst sem deildarstjóri
elsta stigs en frá því í október 2003
sem aðstoðarskólastjóri. Skólaárið
2008-09 starfaði hann sem skólastjóri
Hjallaskóla og í október 2009 tók
hann við stöðu skólastjóra Smára-
skóla. Því starfi sinnti hann til loka
árs 2018 er hann gerði hlé á störfum
sínum til að ljúka meistaranáminu.
Skólaárið 2019-2020 gegndi hann
starfi deildarstjóra unglingadeildar í
Hraunvallaskóla. Frá því haustið
2020 hefur hann starfað sem skóla-
F
riðþjófur Helgi Karlsson
fæddist 22. mars 1972 í
Reykjavík en flutti
nokkurra mánaða gam-
all með foreldrum sín-
um norður á Blönduós þar sem faðir
hans hafði verið ráðinn sýslumanns-
fulltrúi, en hann er þaðan. Þar bjó
Friðþjófur til fimm ára aldurs er fjöl-
skyldan flutti til Reykjavíkur.
„Við fluttum í Breiðholtið, bjugg-
um efst í Fellahverfinu alveg upp við
Rjúpnahæðina sem var m.a. leik-
völlur okkar krakkanna ásamt Ell-
iðaárdalnum. Ekki amalegir leik-
vellir. Á þessum tíma er Breiðholtið
að byggjast upp og voru mörg börn í
hverfinu. Oft var verið langt fram eft-
ir sumarkvöldum í alls konar leikjum
og ekki síst fótbolta. Ætli megi ekki
segja að maður hafi allt að því sofið
með boltann í fanginu.
Ég byrjaði að sparka með Leikni
en fljótlega lá leiðin í Val þar sem ég
æfði og spilaði upp í 2. flokk. Og mað-
ur tók yfirleitt alltaf strætó ofan úr
Breiðholti og niður á Hlíðarenda og
þótti ekkert tiltökumál þótt ungur
væri. Ég segi það stundum að það
hafi verið mikil gæfa að alast upp í
Breiðholtinu í allri þeirri fjölbreyttu
mannlífsflóru sem þar bjó. Mótaði
það m.a. mínar stjórnmálaskoðanir
en ég er mjög upptekinn af því að öll
börn fái jöfn tækifæri m.a. til náms og
þroska og ekki síst til lífs almennt.“
Friðþjófur gekk í Fellaskóla og síð-
ar Seljaskóla. Eftir útskrift úr grunn-
skóla lá leiðin í Menntaskólann við
Sund þaðan sem hann útskrifaðist
sem stúdent vorið 1993. Að stúdents-
prófi loknu hóf hann nám við Kenn-
araháskóla Íslands og brautskráðist
þaðan með B.ed.-gráðu í grunnskóla-
kennarafræðum 1997 og D.ed. í
skólastjórnun árið 2001. Árið 2019
lauk hann M.ed.-prófi í menntunar-
fræðum með áherslu á stjórnun.
Eftir útskrift úr framhaldsdeild
Kennaraháskólans vorið 2001 hóf
Friðþjófur störf sem aðstoðar-
skólastjóri Vinnuskóla Reykjavíkur
þar sem hann stýrði m.a. starfs-
manna- og launamálum ásamt því að
vinna að starfsþróunar- og skipulags-
málum. Hann starfaði sem skóla-
stjórnandi í Kópavogi frá því haustið
Hafnarfirði um tíma.“ Friðþjófur hef-
ur tekið mikinn þátt að öðru leyti í fé-
lagsmálum. Hann sat m.a. í stjórn
Æskulýðssambands Íslands 1999-
2002 og var fulltrúi skólastjóra í
skólanefnd Kópavogs 2013-2014.
Hann hefur gegnt trúnaðarstörfum
fyrir Skólastjórafélag Íslands og
landshlutasamtök þess og átti meðal
annars sæti í samninganefnd SÍ.
„Við fjölskyldan höfum gaman af
því að fara á skíði og reynum að fara
þegar færi gefst. Við erum einmitt á
leiðinni norður á Akureyri í þessari
viku m.a. til að njóta þeirra góða
skíðasvæðis í Hlíðarfjalli sem og
menningarlífs. Á sumrin þykir okkur
gaman að ferðast um landið okkar
með fellihýsi í eftirdragi og elta sól-
ina. Eins höfum við gaman af ferða-
lögum erlendis og erum m.a. á leið á
ráðstefnu evrópskra skólastjórnenda
á Kýpur í maí. Við ætlum svo að prófa
húsaskipti í fyrsta skipti í sumar og
þá liggur leiðin til Edinborgar.
Ég er mikill áhugamaður um
skóla- og æskulýðsmál, mannrækt,
heilsueflingu, íþróttir og útivist ásamt
því að hafa áhuga á sögu, stjórn-
málum og náttúru landsins okkar. Og
svo má ekki gleyma því að ég er mik-
ill FH-ingur og harður stuðnings-
maður Manchester United.
Fram undan er svo brúðkaup okk-
ar Laufeyjar sem verður 28. maí og
Friðþjófur Helgi Karlsson, skólastjóri og fv. bæjarfulltrúi – 50 ára
Stórfjölskyldan Samankomin í tilefni af 70 ára afmæli Sigurborgar móður Friðþjófs árið 2020.
Breiðholt hafði mótandi áhrif
Jól 2021 Börn, makar og barnabörn. Jökulsárlón Laufey og Friðþjófur.
Til hamingju með daginn
Hækk
aðu
í leð
innig