Morgunblaðið - 22.03.2022, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2022
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
„ÞÚ ÞARFT AÐ MÆTA ÚT Á RÓLUVÖLL
KLUKKAN SEX OG SLÁST VIÐ HRAFNKEL.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að hafa jafna
verkaskiptingu.
ÞÚ GETUR EKKI ÞURRKAÐ
GLOTTIÐ AF MÉR!
GLOTTI
ENN
ÉG VEIT ÚR HVERJU
KATTAMATUR ER
EKKI SEGJA
MÉR!
FARÐU ÚT MEÐ SORPIÐ ÁÐUR EN
ÞÚ BORÐAR!
HEYRÐU! HVERT
ERTU AÐ FARA MEÐ
RÓFUSTÖPPUNA?
„ÞAÐ ER EINS GOTT AÐ ÞETTA SÉ EKKI
ENN EITT PÍRAMÍDASVINDLIÐ HJÁ ÞÉR.“
ríkir mikil tilhlökkun hjá okkur fyrir
þessum stóra degi. Við verðum gefin
saman í Innri-Njarðvíkurkirkju og
ætlum að halda dálitla veislu á heimili
okkar að athöfn lokinni. Ég var svo
lánsamur að hitta þessa dásamlegu
konu fyrir rúmum fjórum árum og
hlakka til að eyða ævinni með henni.“
Fjölskylda
Unnusta Friðþjófs er Laufey
Bjarnadóttir, f. 14.8. 1975, ráðgjafi á
velferðarsviði og PMTO-meðferðar-
aðili. Þau eru búsett í Reykjanesbæ,
nánar tiltekið í Njarðvík. Foreldrar
Laufeyjar: Hjónin Erna Lína Alfreðs-
dóttir, f. 9.6. 1955, búsett í Njarðvík,
og Bjarni Júlíus Kristjánsson, f. 6.4.
1953, d. 6.7. 2002. Fyrri maki Frið-
þjófs er Þórey Ósk Sæmundsdóttir, f.
27.9. 1971, grunnskólakennari.
Börn Friðþjófs og Þóreyjar eru: 1)
Hrefna Sigurborg, f. 9.11. 2002, stúd-
ent og starfsmaður við aðhlynningu á
Hrafnistu, búsett í Hafnarfirði; 2)
Karl Sæmundur, f. 23.6. 2005,
menntaskólanemi, búsettur í Hafnar-
firði, 3) Helga Sóley, f. 20.9. 2009,
grunnskólanemi, búsett í Hafnarfirði.
Stjúpbörn Friðþjófs og börn Lauf-
eyjar eru: 1) María Bára Arnars-
dóttir, f. 1994, geislafræðingur, bú-
sett í Njarðvík. Maki: Stefán
Thordersen, slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamaður. Dætur: Sóldís Eva, f.
2012, og Díana Laufey, f. 2017; 2)
Ólína Erna Jakobsdóttir, f. 1998, há-
skólanemi og starfsmaður á leikskóla,
búsett í Njarðvík. Maki: Guðbjartur
Máni Gíslason, stuðningsfulltrúi; 3)
Hermann Borgar Jakobsson, f. 14.2.
2006, grunnskólanemi, búsettur í
Njarðvík.
Systur Friðþjófs eru Guðrún Ingi-
björg Karlsdóttir, f. 11.11. 1973,
framhaldsskólakennari, búsett í
Garðabæ, og dr. Sigrún Nanna Karls-
dóttir, f. 18.9. 1980, prófessor við Há-
skóla Íslands, búsett á Seltjarnar-
nesi.
Foreldrar Friðþjófs eru Karl
Helgason, f. 30.11. 1946, lögfræð-
ingur, fv. ritstjóri og bókaútgefandi,
og Sigurborg Bragadóttir, f. 25.10.
1950. fv. grunnskólakennari. Þau eru
búsett í Kópavogi.
Friðþjófur
Helgi Karlsson
Dagbjört Vilhjálmsdóttir
húsfreyja í Hafnarfirði
Jón Eiríksson
skipstjóri í Hafnarfirði
Svala Jónsdóttir
húsfreyja og talsímakona í Hafnarfirði
Bragi Friðþjófsson
fv. verkstjóri í Hafnarfirði
Sigurborg Bragadóttir
fv. grunnskólakennari,
býr í Kópavogi
Indíana Guðmundsdóttir
verkakona á Siglufirði
Friðþjófur Jónsson
sjómaður og pípulagningameistari í Reykjavík
Sigríður Kristín Jónsdóttir
húsfreyja á Blönduósi
Guðmundur
Bergmann Jónsson
sjómaður á Hólmavík
Helga E. Guðmundsdóttir
húsfreyja og verkakona á Blönduósi
Helgi B. Helgason
lyfjaafgreiðslumaður á Blönduósi
Ingibjörg Friðriksdóttir
húsfreyja í Gautsdal
Helgi Helgason
bóndi í Gautsdal í Geiradalshr., A-Barð.
Ætt Friðþjófs Helga Karlssonar
Karl Helgason
lögfræðingur, fv. ritstjóri og
bókaútgefandi, býr í Kópavogi
Bjarni Maronsson skrifaði mér:
„Í vísnahorni þínu í Morgun-
blaðinu í dag, 19. mars, er vísa úr
vísnasafni Jóhanns í Flögu ort af
Magnúsi Sigurðssyni frá Heiði í
Gönguskörðum.
Í riti Andrésar Valbergs, „100
skagfirskar hringhendur“ frá 1983,
er vísa Magnúsar svona:
Þó að seinast sökkvi í mar
sú er eina vörnin
ekki kveinar ekkjan par
eða veina börnin.
Mjög trúlega rétt svona hjá
Andrési.
Með góðum kveðjum og þökk fyr-
ir Vísnahorn prýðilegt.“
Ég þakka þetta bréf og er skylt
að hafa það sem sannara reynist.
Eggert J. Levy skrifaði mér 20.
mars og sagði: Jafndægur að vori
er vendipunktur birtuskila:
Vorjafndægur dýrmæt stund
dágóð orð vil heyra
sjáum víða létta lund
lengir daginn meira.
Hugarróin blíð og björt
býður öllum stæði
nætur dimman dáldið svört
dvínar skuggaflæði.
Á Boðnarmiði yrkir Skúli Páls-
son „Vorjafndægur 2022 (vik-
hent)“:
Vetrardagar daufir okkur þóttu.
Bráðum verður, börnin mín,
birtan lengri nóttu.
Linnir veiruvá og þungu streði,
fólkið aftur finna mun
fjörið sitt og gleði.
Mannabarna mæða öll mun dvína
þegar sumarsólin há
sælust fer að skína.
Gunnar J. Straumland yrkir „Vor
að vetri til“:
Töfra sólar trauðla skil,
til er slíkur varmi
þegar vor að vetri til
vekur ljóð í barmi.
Töfra sólar trauðla skil,
til er slíkur ylur
þegar vor að vetri til
vonarkvæði þylur.
Tímans hnik ég trauðla skil
þá tilfallandi daga
þegar vor að vetri til
verður lífsins saga.
Bólu-Hjálmar kvað:
Forlög eru úr garði gjörð
svo gildir ekki að slíta;
aldrei mun ég Eyjafjörð
uppfrá þessu líta,
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vendipunktur birtuskila