Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2020, Blaðsíða 8

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2020, Blaðsíða 8
 8 Elías Þorvaldsson Drógu sig varfærnislega í hlé þegar Eitt af því sem mér finnst einna minnis- stæðast frá ferðinni til Cannes árið 1968, er tékkneski söngvarinn sem ég heyrði til þegar hann var á æfingu ásamt undirleikara sínum í sama sal og Tom Jones kom fram í. Þessi söngvari hét Karel Gott (14. júlí 1939 - 1. Okt. 2019) og var á þessum tíma mjög þekktur og vinsæll í heimalandi sínu. Um hann er það að segja að hann hefur löngum verið talinn einn farsælasti tónlistamaður í Tékkóslóvakíu og síðar Tékklandi. Hann var alls 42 sinnum valinn besti karlkyns söngv- ari landsins í hinum tékknesku Nightingale þjóðlagatónlistarverðlaununum, var þekktur undir nafniu Gullna röddin frá Prag og seldi að því er talið er einhvers staðar milli 50 og 100 milljónir platna um allan heim á ferlin- um. Þetta var því enginn smá karl sem var þarna að syngja á risastóru sviði með undir- leikara sem spilaði aðeins á kassagítar, en í þessu tilfelli var það gítarleikarinn og hljóð- færið sem hann lék á sem heillaði mest af því sem fyrir augu og eyru bar. Þessi gítar Hátíðarkvöldverðurinn eftir verðlaunaveitinguna. Gestur Frímanns, Gunnar Þórðarson, Tómas Jóhannsson, og bræðurnir Theódór og Baldvin Júlíussynir gæta þess að verðlaunagripurinn sé í augsýn.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.