Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2020, Blaðsíða 16
16
Lífið á Sigló um miðja síðustu öld
Á miðri mynd er nýbyggt hús Útvegs-
banka Íslands og til hægri er matvöru-
verslun Kaupfélags Siglfirðinga og
Kjötbúð Siglufjarðar undir sama þaki.
Lengst til vinstri er hús Kaupfélags
Siglfirðinga, höfuðstöðvarnar með
vefnaðarverslun og skóbúð á götuhæð,
en skrifstofur á 2. hæð ásamt íbúð
kaupfélagsstjóra á 2. og 3. hæð. Þarna
eru aðal kennileiti götulífsins á Sigló,
hornin fjögur: Kaupfélagshornið
er til vinstri, en Bankahornið, Kjöt-
búðarhornið og Thórahornið, lengst
til hægri.
Siglufjarðarkirkja rís tignarleg sementsgrá
og ómáluð uppi á Brekkunni og þar má
sjá Jóakimshúsið, Pálsbæinn, Lindarbrekku
og Hótel Siglufjörð.
Í hlíðinni vestan Kirkjunnar standa
hús Þráins Sigurðssonar og Kjartans
Bjarnasonar í síðasta sólargeisla
dagsins, þar sem kvöldskugginn læðist
niður hlíð Hafnarfjallsins. Fólkið safn-
ast saman sólarmegin við verslanirnar
og sjómenn af síldveiðibátum ganga
glaðir með matvörurnar áleiðis um borð,
því nú er svartur sjór af síld á Grímseyjar-
sundi.
Ragnar Páll Einarsson listmálari