Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2020, Blaðsíða 17
Kjörbúðin á Siglufirði, með Aldísi Ólöfu Júlíusdóttur
í broddi fylkingar, hlaut fyrir skemmstu viðurkenn-
inguna Verslun ársins 2019. Að sögn Aldísar, sem tók
við starfi verslunarstjóra í fyrra, eru nokkrir þættir
sem spila inn í þetta val, s.s. sala, og umhirða búðar.
Það voru forréttindi og mikil ánægja Vildarvina Siglu-
fjarðar að fá að koma að gerð þáttanna um sögu Siglu-
fjarðar sem gerðir voru í tilefni 100 ára afmælis bæjar-
ins 2018. Sýning þeirra var á RÚV í janúar og hafa
okkur borist margar fyrirspurnir um hvort og þá hvar
hægt væri að nálgast efnið í heild sinni. Í kjölfar óskar
Skíðafélags Siglufjarðar - Skíðaborgar um styrk til félags-
ins í tilefni 100 ára afmælis þess núna í febr. kviknað sú
hugmynd að gefa þeim þættina „Siglufjörður – saga
bæjar“ og þeir gætu síðan selt þá og þannig klárað að
fjármagna lokaáfangann af barnalyftu í Siglufjarðarskarð,
sem kallast „Töfrateppi“ en sú fjáröflun hefur staðið yfir
lengi. Þessi hugmynd var samþykkt og Vildarvinir
munu sjá um allan framleiðslukostnað á allt að tvö-
hundruð „Minnislyklum“ með þáttunum á, en Skíða-
félag Siglufjarðar -Skíðaborg mun sjá um alla sölu þeirra,
ákveða söluverð og senda þá til viðkomandi. All-
nokkur fjöldi skráðu sig á lista á myndakvöldi Siglfirð-
ingafélagsins í lok febrúar sl. þar sem þessi styrkur til
SSS var formlega afhentur.Fyrirhugað var að hafa þessa
„Minnislykla“ tilbúna til afhendingar um Páskana á
Sigló en í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu og þess var
krafist að allir ferðuðust heima var því frestað. Fyrir þá
sem þegar hafa pantað þættina má ætla að þeir verði
sendir frá SSS í lok sumars.Fyrir þá sem hafa áhuga á
að eignast þættina er bent á að senda tölvupóst á for-
mann SSS - Jón Garðar Steingrímsson –
jongardar79@gmail.com
f.h. Vildarvina Siglufjarðar
Guðmundur Stefán Jónsson
Siglufjörður – saga bæjar