Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2020, Blaðsíða 9
9
var óvenju stór og manni fannst sem gítar-
leikarinn næði varla utan um hljómkassann.
En hvílíkur hljómur sem fyllti salinn. Það
var hreint ótrúlegt. Við sem á hlýddum,
urðum ekki varir við hljóðnema eða magn-
arakerfi af neinu tagi. Aðeins þennan gríðar-
lega stóra gítar sem var greinilega gott hljóð-
færi svo ekki sé dýpra í árinni tekið.
- Meðan á dvölinni stóð gerðum við okkur
ferð til Mónakó á frönsku rívíerunni sem er
skammt frá ítölsku landamærunum, og auð-
vitað var mikill áhugi hjá okkur að skoða hið
fræga spilavíti í Monte Carlo. Einhver miðl-
aði þeim upplýsingum til okkar að aldurs-
takmarkið þar væri 21 ár sem hentaði mér
ekki sérlega vel þar sem mig vantaði þá rúm-
lega eitt ár í það. Góður ferðafélagi minn
sem náð hafði réttum aldri, lánaði mér þá
nafnskírteinið sitt og í framhaldinu lagði ég
þetta nýtilkomna nafnnúmer mitt á minnið
sem dugði mér til að líta herlegheitin augum.
Engum sögum fór þó af því hvort einhverjir
okkar manna græddu eða töpuðu einhverj-
óneitanlega var gaman að koma á þennan
sögufræga stað.
- Nokkrir kórfélagar voru á gangi í miðborg
Nice og sáu þar dýrindis pelsa og samkvæmis-
kjóla á gínum í glugga stórverslunar einnar,
sem var greinilega af fínni sortinni. Datt þá
einhverjum þeirra í hug að þarna væri kjörið
færandi hendi og gleðja konurnar sem heima
sátu með glæsilegri flík sem ætti sér fáa líka
heima á Íslandi. Þeir gengu inn upplitsdjarfir
og fullir ákafa en það breyttist fljótlega, því
þrátt fyrir einhverja tungumálaerfiðleika
komust þeir fljótt að því að eins og einn
þokkalegur pels í þessari búð myndi líklega
kosta hátt í siglfirsk meðalárslaun eða svo.
Hópurinn dró sig þá í framhaldinu og á afar
varfærnislegan hátt í hlé, en skoðaði þó dýrð-
ina af kurteislegri yfirvegun meðan hann
fikraði sig hægt en örugglega til dyra. Ekki
fóru frekari sögur af tilraunum þeirra Vísis-
manna til pelsakaupa á franskri grund svo
vitað sé.
Kampakátir forsvarsmenn Vísis með verðlaunin frá Cannes.
Bjóráhugamenn af Hverfisgötunni Gunni Þórðar og Svenni Björns.
Biggi Villa, Baldi Júll, Gestur Frímanns, Ingvar Björns, Tommi Jóhanns
og Gunnar Þórðarson.