Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2020, Blaðsíða 15
Jóhann Vilbergsson:
Keppti fyrstur karla
í heiminum á Atomic-
skíðum á stórmóti
Sló til að prófa óþekkt skíði
Á þessum tíma voru Atomic skíð-
in nýkomin á markaðinn. Framleið-
endur þeirra leituðu að þekktum
skíðaköppum til að auglýsa nýju
skíðin á heimsmeistaramótinu en
gripu í tómt. Flestir bestu skíða-
mennirnir voru þá búnir að velja
Kessler skíði sem voru vinsælustu
skíðin. „Ég hafði ekki ennþá valið
mér skíði þegar ég kom á mótið.
Þar sem fáum öðrum var til að dreifa
var ég, óþekktur skíðamaður frá
Íslandi, spurður hvort ég vildi prófa
Atomic skíðin og ég sló til. Á sama
móti keppti einnig þekkt skíðakona
frá Austurríki sem áræddi að reyna
nýju skíðin,“ segir Jóhann Vilbergs-
son þegar hann rifjar þetta atvik upp.
Fékk 14 pör af skíðum
Jóhann reyndist vera eini karlmað-
urinn sem keppti á Atomic skíðum
á þessu heimsmeistaramóti. Hann
varð þannig fyrstur karla til að
keppa á Atomic skíðum á stórmóti
í heiminum.
„Þeir frá Atomic voru mjög
ánægðir með að fá keppanda til að
nota skíðin og þökkuðu mér fyrir.
Þeim var mikið í mun að geta aug-
lýst að keppt hefði verið á skíðum
frá þeim á heimsmeistaramóti. Mér
líkaði vel við skíðin og keppti á
þeim í mörg ár á eftir. Yfirleitt
fengu keppendur 3 pör af skíðum
frá framleiðendum en Atomic gerði
vel við mig. Ég fékk 14 pör af skíð-
um þegar upp var staðið,“ segir
Jóhann.
Hefði ekki komist lifandi niður
Jóhann keppti í svigi og stórsvigi á
mótinu en var einnig skráður í brun-
ið. Honum gekk ágætlega í stór-
sviginu fyrst framan af í brautinni.
Hann var með 10. besta millitímann
en hlekktist síðan á. „Ég meiddi mig
svo á æfingu í bruninu, datt illa og
hálfvankaðist. Daginn eftir var fótur-
inn stokkbólginn og ég varð að hætta
keppni. Ég var feginn því brautin var
löng og erfið. Mér er til efs að ég
hefði komist lifandi niður hana,“
segir Jóhann.
Síðar meir urðu Atomic skíðin mest
seldu skíðin í heiminum. Það er
skemmtilegt til þess að vita að skíða-
maður frá Siglufirði hafi lagt sitt lóð
á vogarskálarnar til að koma þessum
skíðum á kortið.-
Kjartan Stefánsson
Jóhann Vilbergsson skíðakappi frá
Siglufirði hefur gert garðinn frægan.
Hann hefur sem kunnugt er keppt
fyrir Íslands hönd á ýmsum alþjóð-
legum stórmótum, svo sem vetrar-
ólympíuleikum og heimsmeistara-
móti. Hér verður ferill Jóhanns
ekki rakinn heldur rifjað upp
merkilegt atvik sem átti sér stað
í fyrstu keppni hans erlendis, í
heimsmeistarakeppninni í Bad
Gastein í Austurríki árið 1958.
Jóhann var þar í hópi þriggja
íslenskra landsliðsmanna.
Kaffidagurinn og samkomuhald í Grafarvogskirkju
Ágætu félagar.
Undanfarnar vikur hafa verið óvenjulegar og án fordæma í þjóðfélaginu. Kórónuveikifaraldurinn hefur
herjað á þjóðina og brugðist hefur verið við af festu til að vinna bug á honum, m.a. með samkomubanni
og öðrum ráðstöfunum til að hindra framgang veirunnar. Það er ljóst að faraldurinn mun hafa áhrif næstu
vikur eða mánuði eins og staðan er þegar þetta er skrifað. Því er það niðurstaða stjórnar Siglfirðinga-
félagsins, eftir mikla íhugun og ráð sérfróðra aðila sem leitað var til, að falla frá samkomuhaldi í Grafarvogs-
kirkju þann 24.maí nk. Við munum taka ákvörðun síðar hvort eitthvað annað komi í staðinn og verður það
þá kynnt í haustblaði Siglfirðingafélagsins. Einnig má benda á að á næsta ári, 2021 verður félagið okkar
60 ára og þá er tilefni til að gleðjast, hvort heldur verður á Kaffidegi í maí 2021 eða síðar. Um það verður
tekin ákvörðun síðar og kynnt í okkar blaði.
-
Stjórn Siglfirðingafélagsins óskar félagsmönnum og landsmönnum öllum gleðilegs sumars
Fyrir hönd stjórnar, Jónas Skúlason, formaður