Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - May 2020, Page 18
18
Þyrping húsa við Hverfisgötuna með siglfirska gaflinum. Steindu
húsin fremst eru Hverfisgata 5 til hægri, sem Sverre A. Tynes
teiknaði, og svo Hverfisgata 7, sem Jón Jóhannesson teiknaði.
Skíðastrákarnir eru staddir í garðinum fyrir ofan Lindargötu 18.
Þeir eru bræðurnir Sveinn og Gunnar Aðalbjörnssynir. Milli þeirra
er Raggi Tona, vinur úr næsta húsi. Myndina tók Arnþór Þórsson.
Skýringarmynd af húsi með siglfirska gaflinum sem finna má
í skýrslu Kanon arkitekta. Eitt af því sem einkennir mörg stein-
steypt hús á Siglufirði frá fjórða áratug 20. aldar er hvernig
gaflveggir þeirra eru teknir upp fyrir þakið. Ekki er ólíklegt
að hér sé um að ræða áhrif frá Reykjavík en mörg hús með
gaflsveigðum brúnum voru reist fyrir efnameiri fjölskyldur
frá 1912 í vesturhluta miðborgarinnar. Eins og skýringarmynd-
in sýnir eru gaflbrúnirnar yfirleitt kantaðar á siglfirsku hús-
unum en ekki sveigðar eins og algengara var í Reykjavík.
Uppruninn úr dönsku nýbarokki.
Er til einhver sérstakur siglfirskur
gafl? Alltaf heyrir maður eitthvað
nýtt. Ég rakst á þessa nafngift í
skýrslu arkitekta þar sem meðal
annars var fjallað um steinhús á
Siglufirði sem byggð voru á fjórða
áratug síðustu aldar.
Húsin hafa áberandi einkenni sem
lýsir sér í skreyttum göflum og
kvistum. Hús af svipuðu tagi finn-
ast í mörgum sveitarfélögum víða
um land en Siglufjörður sker sig
úr að því leyti hversu mörg þessi
hús eru. Arkitektarnir hikuðu því
ekki við að nefna þetta stíleinkenni
„siglfirska gaflinn“.
Glöggt er gests augað.
Óþekkt sérstaða
Fjallabyggð fékk Kanon arkitekta
ehf. til að gera byggða- og húsa-
könnun á Siglufirði. Út kom
skýrsla um verkefnið og nefnist
hún: „Húsaskráning Siglufjarðar
1. áfangi 2012/13 – Uppfært 2017“.
Ég rakst á skýrsluna á netinu fyrir
tilviljun og þótti merkilegt að
húsagerð á Siglufirði skuli hafa
þessa sérstöðu.
Sérstaklega í ljósi þess að ég ólst
upp í miðri þyrpingu húsa, sem
eru dæmigerðir fulltrúar fyrir
siglfirska gaflinn, og tók ekki
eftir neinu.
Margir Siglfirðingar sem ég ræddi
við komu líka af fjöllum. Þeir
höfðu ekki heldur gert sér grein
fyrir þessari sérstöðu bæjarins.
Það er því ekki úr vegi að gera
nánari grein fyrir því hvernig
þau hús líta út sem státa af
siglfirska gaflinum.
Siglfirski gaflinn
– hvað er nú það?