Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - mai 2020, Síða 19
19
Eyrargata 6 er dæmigert hús fyrir siglfirska gaflinn.
Hönnuður óþekktur.
Siglfirski
gaflinn er
áberandi á
kvisti Útvegs-
bankahússins.
Hönnuður
Óskar Sveins-
son. Myndin
er tekin eftir
miðja
síðustu öld.
Ljósmyndasafn
Siglufjarðar,
ljósmynd
Kristfinnur
Guðjónsson.
Gamla kaupfélagshúsið, þar sem vefnaðarvörudeildin var, er eitt
þeirra húsa með siglfirska gaflinum sem hafa verið rifin.
Ljósmyndasafn Siglufjarðar, ljósmynd Gestur Fanndal.
Uppruni í dönsku nýbarokki
Í skýrslu arkitektanna er birt skýr-
ingarmynd af dæmigerðu húsi með
siglfirska gaflinum. Þar segir að eitt
af því sem einkenni steinsteypt hús
á Siglufirði sé hvernig gaflveggir
þeirra séu teknir upp fyrir þakið. „
Ekki er ólíklegt að hér sé um að
ræða áhrif frá Reykjavík en mörg
hús með gaflsveigðum brúnum voru
reist fyrir efnameiri fjölskyldur frá
1912 í vesturhluta miðborgarinnar.
Eins og skýringarmyndin sýnir eru
gaflbrúnirnar yfirleitt kantaðar í
siglfirsku húsunum en ekki sveigð-
ar eins og algengara var í Reykjavík.
Þessi stíll er talinn eiga uppruna
sinn í dönsku nýbarokki,“ segir
ennfremur í skýrslunni.
Húsin flokkast að öðru leyti mörg
hver undir byggingarstíl sem nefnd-
ur er nýklassík. Kantar við gafl-
brúnir, mæni og kvist eru aðeins
viðbótarskraut.
Misjafnt er hversu mikinn svip
þetta skraut setur á húsin og formið
er örlítið breytilegt, einkum við
upphækkun við mæni.
Siglfirsku gaflarnir eru sérstaklega
áberandi á mörgum steindum
húsum.
Þá er gaflbrúnin oftast hvítmáluð
sem og kantaða skrautið við enda
og mæni.
Um helmingur steinhúsa
á fjórða áratugnum
Í skýrslunni eru myndir af öllum
húsum sem byggð hafa verið á
Siglufirði og standa enn. Greint
er frá byggingarári, hönnuði ef
hann er þekktur og helstu ein-
kennum húsa lýst.
Eftir fljóta yfirferð taldist mér
til að um 45 steinhús hefðu þetta
tiltekna útlit og voru þau byggð á
árunum 1925 til 1949. Þar af
voru 36 hús byggð á árunum
1930 til 1939, en fjórði áratugur-
inn var blómaskeið þessara húsa.
Alls voru byggð um og yfir 70
steinhús á fjórða áratugnum á