Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2020, Blaðsíða 26

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2020, Blaðsíða 26
26 SIGLUFJÖRÐUR ÖRLAGAVALDUR Í MINNI FJÖLSKYLDU Tengsl Egils Helgasonar við Siglufjörð höfðu lítil sem engin verið þegar hann hófst handa um gerð hinnar frábæru sjónvarpsseríu um sögu staðarins. En þó reyndist Siglufjörður hafa ráðið örlögum í fjölskyldu hans. Sjónvarpsþáttaröð Egils Helga- sonar um Siglufjörð var gerð af slíkri hind, skilningi og þekk- ingu á sögu staðarins að flestir áhorfendur hafa sjálfsagt reikn- að með að kynni hans af Siglu- firði hafi verið löng og mikil. En svo er þó alls ekki. „Nei, ég kom ekki á Siglufjörð fyrst fyrr en 2011 að mig minn- ir,“ segir Egill. „Þá gerði ég innslag í Kiljuna um bók Ör- lygs Kristfinnssonar Svipmynd- ir úr síldarbæ. Þau voru þá með mér Ragnhildur Thor- steinsson og Jón Víðir Hauks- son, sem síðan voru samstarfs- fólk mitt í Siglufjarðarþáttun- um. Ég heillaðist af bænum eins og hann birtist mér í afar líflegum og innlifuðum frásögn- um Örlygs. Sá maður er í miklu uppáhaldi hjá mér!“ Samkoma í herhúsinu Svo tengsl þín við Siglufjörð eru ekki mikil? „Alls ekki. Ég hef í raun engin tengsl við Siglufjörð. Ég hreifst bara af verkefninu og vann svo mína vinnu af öllum þeim áhuga og metnaði sem ég bý yfir. En ég get þó greint frá einu hér sem hefur ekki komið fram. Afi minn Ólafur Ólafs- son kristniboði var á síld á Siglufirði 1914. Hann var þá að leita leiða til að komast til Kína, sem var draumur hans. Hann langaði svo að boða Kín- verjum kristna trú. Afi fór á samkomu í Herhúsinu og kynntist þar norskum síldar- skipstjóra, Lars Slotsvik, sem tók hann að sér, fór með hann til Noregs og kostaði hann til mennta. Og loks komst afi til Kína. Þannig voru síldin og Siglu- fjörður vissulega örlagavaldur í minni fjölskyldu. Ef hann hefði ekki farið til Siglufjarðar á þessum tíma hefði hann ekki farið til Kína á þeim tíma sem hann gerði. Þar með hefði líf hans þróast allt öðruvísi og líf afkomenda hans líka.“ Hvernig komu þessir sjónvarps- þættir til? „Það voru Siglfirðingarnir Gunnar Trausti og Árni Jörgen- sen sem báðu mig að koma og hitta sig. Þeir töluðu mjög mjúklega og læddu að mér Egill og hans fólk býst til að taka viðtal við Örlyg

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.