Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maj 2020, Qupperneq 27
.
27
steinsson er fremst allra í ís-
lensku sjónvarpi að finna
gamalt myndefni og vinna úr
því. En ég held að enginn bær
á Íslandi sé svona vel myndað-
ur eins og Siglufjörður. Aðrir
bæir eiga sér merkilega sögu en
Fleiri seríur?
Svo vel heppnaðir sem þættirn-
ir voru, þá hlýtur að vakna sú
spurning hvort Egill og sam-
starfsfólk hans ætli sér að halda
áfram á svipaðri braut og taka
fyrir sögu annarra bæja. Eru
fleiri seríur í vændum?
„Ja, varla svona stórar í snið-
um allavega. Þetta urðu fimm
fimmtíu mínútna þættir. Hins
vegar höfum við Pétur Ár-
mannsson haft á prjónunum
að gera þáttaröð sem fjallar um
byggingasögu nokkurra bæja
– það yrði í anda Steinsteypu-
aldarinnar sem við gerðum
saman fyrir nokkrum árum.
Við erum helst að einblína á
Akureyri, Hafnarfjörð, Ísafjörð,
Seyðisfjörð og Vestmannaeyjar.
Ég held að þetta gæti verið afar
skemmtilegt verkefni.“ IJ.
þessari hugmynd að gera þætti
um Siglufjörð. Ég vann með
Gunnari Trausta á Tímanum
þegar ég var að byrja í blaða-
mennsku og Árni er goðsögn
meðal blaðamanna – svo þetta
eru menn sem ég gat ómögu-
lega sagt nei við.
Því var haldið af stað.“
Frábært myndefni
Það vakti athygli allra sem á
horfðu hve frábært myndefnið
frá Siglufirði var. Maður ímynd-
ar sér gjarnan að lítið sé til af
lifandi myndum frá landsbyggð-
inni á fyrri áratugum.
„Já, ég held að það sé einstakt
hvað er til mikið af frábæru
myndefni frá Siglufirði. Eins
og ég hef sagt þá var þetta
myndrænasti staður á Íslandi
á síldarárunum. Við höfðum
allar klær úti, fengum meira
að segja myndir frá Rússlandi,
þær voru teknar á sovéttíman-
um 1949. Ragnheiður Thor-
það gæti vantað kvikmyndaefn-
ið sem við viljum helst nota.“
Fyrir Egil var þetta verkefni
hreinasta uppgötvun, einmitt
af því hann þekkti sögu Siglu-
fjarðar ekki sérlega vel fyrir.
„Nei, ég þekkti söguna ekkert
sérstaklega, en lagðist í heil-
mikla heimildavinnu. Og jú,
mig hafði ekki órað fyrir því
hvað var mikið og litskrúðugt
mannlíf kringum síldina og
hvað hún snerti líf margra. Það
var líka gaman að finna hvað
hún kemur víða fyrir í bók-
menntunum, myndlistinni og
tónlistinni. Það var einhvern
veginn sama hvar við bárum
niður, alls staðar spratt fram
eitthvað merkilegt og athyglis-
vert.“
Siglufjörður á blóma-
tímanum. Merkileg og
athyglisverð saga.
Jón Víðir, Ragnheiður
Thorsteinsson og Egill
Helgason,fólkið á bak
við frábæra þætti um
Siglufjörð - saga bæjar.