Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2020, Blaðsíða 2
Siglfirðingablaðið2
SIGLFIRÐINGABLAÐIÐ
FRÉTTABLAÐ SIGLFIRÐINGAFÉLAGSINS
ÚTGEFANDI OG ÁBYRGÐ:
SIGLFIRÐINGAFÉLAGIÐ
RITSTJÓRI:
Gunnar Trausti
F
r
á
r
it
s
t
jó
r
a Ágætu Siglfirðingar!
Stofnaður hefur verið átaks-
hópur röskra manna og
kvenna til að koma í veg fyrir
áframhaldandi landbroti
á Siglu nesi við Siglufjörð.
Kunnugir telja að landbrotið
af Nesinu sem kemur í veg
fyrir að úthafsaldan eigi greiðan aðgang inn fjörðinn,
nemi um allt að 25-30 metrum. Einn í átaks hópn-
um minnist þess að afi hans, gamall skipstjóri talaði
um það uppúr 1970 að þetta ætti eftir að enda með
ósköpum Árið 2008 hóf Minja stofnun rannsóknir
á Nesinu vegna þess að fornar sjóbúðir á Siglunesi
lágu undir skemmdum vegna brims og ágangs sjávar.
Skýrsla var gerð um ástandið 2011 og þar kom ýmis-
legt skuggalegt í ljós: „Mest mæðir á norðvestur horni
nessins. Þar virðist gróðurþekjan hafa hörfað um 21
metra frá 1950 til ársins 2000 og um 5-6 metra frá
2000-2009.“ Ljóst er að bið í þessu máli getur kostað
það að miðjan á Nesinu brotni og þá verður ekki spurt
að leikslokum; Siglunesið mun brotna niður og gerir
hina góðu höfn á Siglufirði nánast ónothæf af völdum
öldugangs og álags og ekki mun hækkandi staða sjávar
bæta ástandið. Því er kallað hér með á alla sem telja
sig geta komið að gagni með tillögur og úrræði að
hafa samband við undirritaðan á netfangið gunnar@
siglocity.is Sími: 897 9746.
Efni blaðsins er fjölbreytt að venju.
FORSÍÐUMYNDIN: Stokkið af þaki Sjómanna-
heimilisins. Neðst eru þeir Kjartan Stefánsson og
Jónas Valtýsson en Guðmundur Skarphéðinsson er í
loftinu. Hannes Baldvinsson frétta ritari Þjóðviljans
tók nokkrar myndir af strák unum í apríl 1961
eftir að stórhríðarveður hafði fært allt í kaf. Ein af
myndunum birtist á baksíðu Þjóð viljans og vísar
á grein Kjartans: Bernskuminning Brekkugutta.
Þetta er fyrsta greinin um hin 7 hverfi Siglufjarða og
vona ég að í framhaldinu megi lesa hér um Suður-
ár bakka gutta, Útfrábakkagutta, Eyrargutta, Óla-
Gosana, Reitinn og síðast en ekki síst Villimanna-
hverfið ógurlega! Þá skrifar Hildur Guðbrandsdóttir
leikþátt um foreldra sína Guðbrand Magnússon,
kennara og Önnu Júlíu. leikkonu og söngkonu. Jóna
Möller tók hús á Gunnlaugi Skaftasyni, yngsta syni
Skafta á Nöf og ræddi við hann um hvernig var að
alast upp á síldarplani. Kristján Möller skrifar um
þingsályktunartillögu v. Hólsdalsgangna sem leysa af
hinn illræmda veg um Mánárskriður.
Gunnar Trausti
Jólaball 2020
Jólaball Siglfirðingafélagsins
verður haldið í sal
KFUM&K við Holtaveg,
Sunnudaginn 27. desember
kl. 16:00. Hljómsveit
skemmtir og jólasveinar
koma í heimsókn.
Við bjóðum uppá heitt
súkkulaði og vöfflur með
og krakkarnir fá nammi
frá sveinka.
Jólaballsnefndin
ALLIR VELKOMNIR