Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2020, Blaðsíða 14

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2020, Blaðsíða 14
Siglfirðingablaðið14 Nefstaðir misstu ekki tengsl sín við Fljótin því Skeiðsfjölskyldan flutti svo í húsið. Börnin voru mörg en aðeins eitt nálægt mér í aldri, Jón Sigurbjörns. Smábarnaskóli Valeyjar og Búðarhóll Merkilegur skóli var rekinn á Nefstöðum í nokkur ár, smábarnaskóli Valeyjar Jónasdóttur. Þar lærði ég að lesa, skrifa og reikna. Valey hafði einkar gott lag á krökkum og kom fram við okkur eins og jafningja. Skóli Valeyjar var ekki fyrsti skólinn á Brekkunni. Árið 1866 var byggt timburhús á Búðarhóli sem stóð í brekkunni upp af höfninni. Húsið var ekki nema 33 fermetrar en samt var starfrækt þar veitingasala í mörg ár og samkomuhús. Hreppurinn keypti húsið og þar tók fyrsti barnaskóli á Siglufirði til starfa árið 1883. Húsið var rifið 1924. Vopnabúr í snjóhúsi Annað og reisulegra hús var byggt síðar á Búðarhóli, húsið að Lindargötu 16. Þar bjó Hafliði Helgason bankastjóri og Jóna, kona hans. Synir þeirra voru fimm. Við leiki á Brekkunni man ég mest eftir Einari, Sigga og Ragga. Hafliðastrákarnir létu nokkuð til sín taka. Þeir voru öðrum snjallari í að byggja snjóhús. Þeir grófu inn í stóran snjóskafl sem myndaðist við húsið á veturna og gerðu snjóbyrgi með tveimur eða fleiri herbergjum með göngum á milli. Einn veturinn byggðu þeir tveggja hæða snjóhús í Holunni. Ákveðið var að í einu herberginu yrði vopnabúr með snjókúlum ef Brekkuguttar þyrftu að verja sig. Ég þykist muna að hafa tekið þátt í því að hnoða mjúkar kúlurnar og stafla þeim upp. Nokkrum dögum seinna voru Eyrarguttarnar mættir og ætluðu að lúskra á okkur. Kúlunum úr vopnabúrinu var dreift á strákana og tekið á móti árásarliðinu með kúlnahríð. Eyrarguttarnir hrökluðust undan með óhljóðum. Einn þeirra lá jafnvel eftir hálfrotaður. Dagana á undan hafði verið frost og snjókúlurnar mjúku höfðu breyst í nokkuð skeinuhætt vopn. Gústi og járnrörið Annar hverfaslagur er mér í fersku minni. Þá þustu Eyrarstrákarnir tugum sama suður Lindargötuna og staðnæmdust rétt áður en komið var að Hólum. Þar stóðu þeir, hristu barefli sín og hrópuðu vígorð. Einn þeirra, sonur Hildar í Hólakoti, hafði rauðan tóbaksklút bundinn um höfuð sér og lepp fyrir auga. Leit út eins og alvöru sjóræningi. Strákarnir á Brekkunni höfðu mikinn liðsafnað og hópunum laust saman. Ég hef kannski verið sex ára og alltof ungur til að taka þátt í þessum slag. En Stúlkur á Brekkunni. Fremstar eru Kristjana Lilliendahl og Jóhanna Hauksdóttir. Í miðröðinni eru Ragna Hannesdóttir (heldur á Jakobi Kárasyni),þá frænkurnar Guðný Skarphéðinsdóttir (Gilla) og Stefanía Skarphéðinsdóttir. Aftast eru Dagný Jónasdóttir og Guðrún K. Sigurðardóttir, gestkomandi á Brekkunni. Myndina tók Björg Skarphéðinsdóttir, systir Stefaníu, fyrir framan Hóla árið 1962. Í fjallinu ofan Brekkunnar og séð yfir bæinn. Frá vinstri Sigurður Hafliðason, Gunnlaugur Valtýsson og Sigurbjörn Fanndal (Brekkugutti sem bjó á Suðurgötunni). Myndina tók Jónsteinn Jónsson. Krakkar í sólinni fyrir framan Hverfisgötu 2. Frá vinstri Sigmundur Stefánsson (forsprakki KV), Jóna Þorkelsdóttir (hálfsystir Stjána Heiðu), Theódóra Óladóttir (Dóra Óla Geirs) og Anna Birna Ólafsdóttir, sem bjó í númer 2 en fluttist snemma á Krókinn.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.