Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2020, Blaðsíða 18

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2020, Blaðsíða 18
Siglfirðingablaðið18 sukkum upp að öxlum. Við Gummi og Nóni vorum svo frægir að mynd af okkur birtist á baksíðu Þjóðviljans er við vorum að stökkva þar síðla vetrar 1961. Algengt var að krakkar reyndu eitthvað að plampa á skíðum á Brekkunni. Svo einkennilegt sem það kann að virðast þá var engin almennileg skíðabrekka í hverfinu þrátt fyrir Brekkunafnið. Krakkarnir fóru því oft á Jónstúnið, sem tilheyrði Suðurbænum, til að renna sér eða í gryfjuna í Reitnum. Niður brekku reiður rann Fyrir daga snjóþotunnar voru magasleðar skemmtileg leiktæki á veturna. Krökkt var af krökkum að renna sér niður Kirkjugarðsveg. Vegurinn var brattur sérstaklega efst uppi við Háveg. Þeir sem fóru alla leið þangað hentust á fleygiferð niður og þá var hrópað „frá, frá“ þegar farið var fram hjá krakkaþvögu. Hraðinn var svo mikill að ekki tókst alltaf að stoppa sleðana við Lindargötuna. Margir krössuðu á skúr sem var norðan Hóla og gengu lemstraðir frá. Það var sælt að rifja þennan tíma upp í sumar er ég hitti Jónas Halldórs og Sverri Ellefsen, sem bjó á Hverfisgötunni um tíma. Eitt sinn er faðir minn var á leið heim úr vinnu varð hann vitni að því að ég hrópaði frekjulega til að reka krakka frá en þeir svörðu mér fullum hálsi. Ég sagði þeim að halda kjafti og henti mér á sleðann. Þegar ég kom heim beið mín þessi vísa sem pabbi hafði sett saman: Niður brekku reiður rann, rauður mjög í framan. Kjartan kaldi heitir hann og haltu þér svo saman. Hættuför í harðfenni Áður var minnst á fjallið en það var síður en svo hættulaust að vera þar á ferð, ekki síst fyrir óreynda krakka. Eitt vorið fóru strákar í leiðangur upp í Fífladal. Í förinni voru Gummi, Nóni, Stjáni Heiðu, greinarhöfundur og fleiri. Á bakaleiðinni komum við að gili sem var að venju fullt af snjó. Okkur langaði að renna okkur niður en hikuðum því harðfenni var. Nóni bauðst til að fara fyrst og kanna leiðina. Hann stoppaði á þúfu og kallaði að allt væri í lagi. Við stukkum út á hjarnið. Í fyrstu var gaman en síðan runnum við stjórnlaust niður, framhjá Nóna og enduðum neðst niðri í grjóti og urð, allir blóðrisa og rifnir. Ég var með skíðastaf í hönd og oddurinn á stafnum hafði stungist í annan fótinn á mér. Ég er enn með ör eftir sárið. Einhverjir okkar renndu sér á svokölluðum Hansapappa sem var húðaður öðru meginn og rann vel á honum. Seinna kom í ljós að Nóni hafði slasast á fæti þótt hann fyndi ekki fyrir neinu í fyrstu og átti hann lengi í þeim meiðslum. Einstakur eljumaður Hávegurinn var ekki jafnþéttbýll og Hverfisgatan. Þó bjuggu þar allmargir krakkar á mínu reki. Fyrst skal nefna Steina Kára góðan leikfélaga og líklega var hann með okkur í hættuför í harðfenni. Á Hávegi bjuggu margar skólasystur mínar þær María Pálsdóttir, Ragna Hannesar, uppeldissystir Steina Kára, Lilja Guðmunds, Sigrún Steins, og Sólveig Júll. Við Háveginn bjó einnig Björgvin Sveinn, bekkjarbróðir minn og Rúnar, bróðir Lilju, en hann var skólabróðir Simma. Ekki er hægt að tala um Háveginn án þess að minnast á Júlla Gull bakara. Hann var einstakur eljumaður sem átti fáa sína líka. Hann byggði tvö stór hús á Háveginum af miklum hagleik samhliða fullri vinnu í bakaríinu og er ekki allt upp talið af iðjusemi hans. Láki á plankanum og kusa Ingibjargar Einn íbúi á Háveginum hafði skemmtilegt viðurnefni, Láki á plankanum. Hann var sagður hafa sagað sig í sjóinn. Í einu húsi sunnarlega á Háveginum bjuggu Guðmundur og Ingibjörg og höfðu kú sér til nytja og seldu einnig mjólk í áskrift. Krakkarnir kölluðu hana „kusu Ingibjargar“. Guðmundur hafði gert tún í gróðurlitlum mel í bröttu fjallinu af mikilli útsjónarsemi, Guðmundartún. Hann fjarlægði grjót og er sagður hafa notað fiskimjöl sem áburð. Ég byrjaði yfirreið um Brekkuna í fjárhúsi og því er við hæfi að enda hana í fjósi.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.