Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2020, Blaðsíða 12
Siglfirðingablaðið12
Púkarnir og skrattinn
Í húsaröðinni við Lindargötu sem lá milli
Kirkjustíganna tveggja voru engir krakkar á mínum
aldri. Í einu húsanna bjó Barði Sæby, stúari.
Barði stamaði en var þekktur fyrir hnyttin tilsvör.
Ragnar Páll myndlistarmaður átti heima í Hótel
Siglufirði nokkrum árum fyrir mína tíð á Brekkunni.
Hótelið stóð í brekkufætinum á svipuðum stað
og kirkjutröppurnar sem steyptar voru löngu
síðar. Ragnar Páll minnist Barða skemmtilega í
færslu á netinu: „Þegar djöfulgangurinn í okkur
Brekkustrákunum gekk fram af Barða, sagði hann
með sinni einstöku ró: Þi- þi- þið eruð pú- púkarnir,
en Ra- Ragnar Páll er Skra- Skrattinn og þi- þið
dansið í kring um hann!“
Ekki fallegur leikur
Í einu húsanna við Kirkjustíg bjó kona sem kölluð
var Valla brjál. Hún var oft úti við og skammaði
gjarnan krakka sem áttu leið hjá. Við vorum allir
ótugt nema synir Hafliða bankastjóra. Þeir voru
englar í hennar augum.
Dæmi voru um að krakkar lágu í leyni, hentu grjóti
í þakið og skemmtu sér þegar Valla stökk út æf af
reiði. Þetta var ekki fallegur leikur.
Fallegt hús Jónasar rakara stóð stakt undir suðurenda
kirkjugarðsins og óljóst við hvaða götu, en er skráð
við Kirkjustíg.
Veglegt hús
Hólar, við Lindargötu 11, voru með glæsilegri
húsum á Siglufirði. Þar bjó besti vinur minn
Gummi Skarp. Afi hans og alnafni, Guðmundur
Skarphéðinsson, skólastjóri og frammámaður í
bænum byggði Hóla. Húsið, sem nú er horfið,
var í hálfgerðum herragarðsstíl. Við húsið var stór
garður með steyptri girðingu í kring og steinkúlum
ofan á sem skraut. Steypti veggurinn var ótrúlegt
mannvirki.
Vegna vináttu okkar Gumma voru Hólar eins
og mitt annað heimili um tíma. Foreldrar hans
Heddi á Hólum, Skarphéðinn Guðmundsson síðar
kaupfélagsstjóri, og Esther Jóhannsdóttir. Heddi var
margfaldur Íslandsmeistari í skíðastökki og keppti í
þeirri grein á olympíuleikunum árið 1960.
Börn Hedda og Estherar voru mörg. Fyrir utan
Gumma eru Ebba, Gilla og Jóhann á svipuðum aldri
og ég. Jóhann var félagi í KV. Á efri hæð Hóla bjó
Björg Skarphéðisdóttir, árinu eldri en ég.
Stutta leiðin
Algengt var að stytta sér leið í bæinn frá Brekkunni
með því að fara niður hallann norðan við
Lindargötu 9. Leiðin lá svo fram hjá húsi Jóns Bratta
og hlykkjaðist þaðan eftir snarbröttum stíg ofan við
verslunar- og íbúðarhús Gests Fanndals. Stígurinn
endaði í sundi við Suðurgötuna milli verslunar Gests
og Rakarastofu Jónasar. Þetta var aðalsamgönguæðin
Greinarhöfundur átta ára að aldri við Hverfisgötu 5 ánægður
með nýja bílinn sinn.
Brekkuguttar í garðinum við Hóla. Fremstir sitja frá vinstri
Kjartan Stefánsson og Guðmundur Skarphéðinsson. Í annarri
röð eru Jóhann Skarphéðinsson og Jónas Valtýsson. Í þriðju
röð Einar Pálsson og Jón Sigurbjörnsson. Aftast standa Karl
Alfreðsson, Sigmundur Stefánsson og Kristján Elíasson. Myndin
er líklega tekin 1960 eða 1961.