Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2020, Blaðsíða 26
Siglfirðingablaðið26
Miklar framkvæmdir voru í Síldarbænum á þessu
milda sumri. Mesta annríkið við síldariðnaðinn
að baki, enda komið fram í ágústlok og haustið á
næstu grösum. Allur snjór horfinn úr Strákahyrnu
sem gnæfir tignarleg yfir Hvanneyrarskálinni og
geymir minningar og leyndarmál frá heitu sumri.
Sumarsólin er farin að lækka á lofti en sendir þó
geisla sína yfir bæinn og glampar á suðurgöflum. Á
horni Aðalgötu og Túngötu rís stórbygging Útvegs-
banka Íslands, glæsilegt hús upp á fjórar hæðir ásamt
kjallara og rishæð. Arkitektinn er ungur Siglfirð-
ingur, Óskar Sveinsson, búsettur í Svíþjóð, sonur
Sveins á Steinaflötum. Á þessarri eftirsóttu horn lóð
stóðu áður Thóraturnarnir, sælgætis- og ölstofa í
húsi með tveim turnum á þakinu í eigu Hinriks
Thorarensen læknis. Thorarensen seldi Útvegsbanka-
num hornlóðina dýru og fékk í staðinn vestur-
helminginn af götuhæðinni dýru á horni Aðalgötu
og Túngötu. Byggingameistaranir voru að sjálfsögðu
„Sveinn og Gísli“, Sveinn Ásmundsson og Gísli
Þorsteinsson, harðduglegir menn sem byggðu fjölda
nýbygginga ásamt aðstoðarsmiðum og lærlingum.
Myndin sýnir steypuvinnu á fjórðu hæð þar sem
steypuhrærivélin stendur við endann á vöru-
bílnum, en steypan var hífð upp í stáltunnu sem
hékk í stálvír á heimasmíðuðum gálga. Hrærivélin
var með spili, sem hífði alla steypuna upp á hæðirnar
og henni keyrt síðan í hjólbörum og hellt í mótin.
Annað var unnið með handafli því byggingarkranar
þekktust ekki hérlendis í þá daga. Laugardaginn
19. október 1946 var Útvegsbankahúsið vígt.
Bankastjórinn var Hafliði Helgason. Fleiri stór-
byggingar voru reistar á Siglufirði á þessu mikla
athafnasumri eins og S.R.46, Síldarverksmiðja
Ríkisins, sem talin var stærsta síldarverksmiðja
heims og stóra mjölskemman. Vegurinn um Siglu-
fjarðarskarð var opnaður fyrir bílaumferð og Siglu-
fjörður kominn í vegasamband. Nóg var að gera
hjá 8 ára drenghnokka að fylgjast með frá degi
til dags. Vestan (til vinstri) við Bankahúsið sést
„Samúelshúsið“ Túngata 1 æskuheimili Páls
Samúelssonar og systkina, seinna í eigu Þorgríms
og Ingibjargar Jónsdóttur, sem ráku verslun þar
á jarðhæðinni. Austan megin við Bankahúsið var
Kaupélag Siglfirðinga og Kjötbúð Siglufjarðar, sem
var á horni Aðalgötu og Lækjargötu. Viðbyggingin
norðan við Kjötbúðina var kjötvinnslan og þar
á efri hæðinni var Gildaskálinn, veitingahús og
skemmtistaður. Lágreistu húsin á torginu voru
Hattaverslun Guðrúnar Rögnvalds og Skóvinnustofa
Sumarliða Guðmundssonar. Einnig sjást vinnu-
bekkir til að beygja steypstyrktarjárnin í nýbyggingu
Útvegsbankans.
Ragnar Páll Einarsson listmálari
Ráðhústorg á Siglufirði 1946