Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2020, Blaðsíða 10

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2020, Blaðsíða 10
Siglfirðingablaðið10 Kjartan Stefánsson Bernskuminning brekkugutta Ég fæddist á Eyrinni 1951 og bjó bernskuárin mín, 1952 til 1960, á Brekkunni en eyddi unglings- árunum í Villimannahverfinu. Þótt ég flyttist burt sótti ég upp á Brekkuna í nokkur ár á eftir og leit á mig og lít enn sem Brekkugutta. Ég tók því vel þegar ég var beðinn um að skrifa um Brekkuna í Siglfirðingablaðið en það er þó ekki einfalt mál. Ef gera ætti öllu skil yrði það of langt mál og ekki pláss fyrir það í blaðinu. Ég mun því aðeins stikla á stóru, nefna helstu leikfélaga og skólasystkin og hvað við tókum okkur fyrir hendur. Einnig koma við sögu nokkrar minnisverðar persónur. Þar sem sjónarhornið miðast við mína upplifun valdi ég greininni heitið „Bernskuminning Brekkugutta“. Gott væri að fleiri sem ólust upp á Brekkunni á misjöfnum tíma muni stíga fram á ritvöllinn til að fylla inn í myndina. Sjónarhorn stelpna vantar í þessa grein þar sem stelpur og strákar léku sér ekki mikið saman. Auðveldlega mætti fylla eina bók eða fleiri með sögum af Brekkunni ef margir tækju sig saman. Hótað með Bola Ég átti heima á Hverfisgötu 1 fyrstu ár mín á Brekk- unni. Foreldrar mínir voru Hulda Sigmundsdóttir og Stefán Friðbjarnarson. Bróðir minn, einu og hálfu ári eldri en ég, er Sigmundur. Fyrsta minning mín frá Hverfisgötu 1 er þegar systir mín Sigríður fæddist heima sumarið 1954. Ég var þá þriggja og hálfs árs. Við Simmi vorum óþekkir að vanda. Pabbi var að fara á taugum, reyndi að hasta á okkur en ekkert dugði fyrr en hann lokaði okkur inni á salerni. Þar var lúga í loftinu upp á háaloft. Okkur var hótað því ef í okkur heyrðist að hin hryllilega ófreskja, Boli, myndi koma niður og taka okkur. Þarna sátum við á gólfinu lafhræddir þar til Sigga systir mín kom í heiminn og bjargaði okkur úr prísundinni. Barnaskari á Brekkunni Eitt af einkennum Brekkunnar var mikill barnaskari. Líklega voru þar 60 krakkar eða fleiri, fæddir árin 1949 til 1953. Ekki eru tök á því að nefna þá alla eins og áður segir. Á þessum tíma léku börn sér úti. Göturnar voru leiksvæði okkar. Innarlega á Hverfisgötunni fyrir framan Aðventistakirkjuna var farið í fótbolta, slábolta og yfir. Boltanum var þá hent yfir kirkjuna. Nefna má fleiri leiki. Það var helst að stelpur og strákar léku sér saman í slábolta og yfir. Einnig var stundum laumast inn í garða nágranna þar sem rifsberjarunnar uxu til að fela sig í ræningja- leik eða bara til að næla sér í rifsber. Þeir hugrökku voguðu sér í garðinn hjá Sillu á Steinaflötum. Fjallið hafði mikið aðdráttarafl, einkum Gimbra- klettarnir. Ósjaldan var farið upp á hól til leikja en hóllinn var litlu ofan við Háveginn. Kirkjugarðurinn var líka vinsælt leiksvæði þótt sumum þætti óhugnanlegt að vera þar innan um öll leiðin. Eitt sinn datt einn ofan í opna gröf og stökk upp í hryllingi. Eins gerði ungur maður, sem bjó í öðru hverfi, sér að leik að sveipa sig hvítu laki eftir að skyggja tók, læðast um milli leiða og hræða krakka á Brekkunni. Stórt leiksvæði við Holuna Aðalleiksvæði okkar var Holan svonefnda. Hún var við Lindargötuna, beint neðan og austan við Hverfis- götu 5, þar sem ég bjó í nokkur ár. Holan var gamall húsgrunnur sem grafinn var snemma á síðustu öld en ekki varð þá úr byggingarframkvæmdum. Holan var eins og sérsniðinn leikvöllur. Þar reis löngu síðar húsið að Lindargötu 14. Óbyggt var einnig á lóðinni norðan við Holuna, við Lindargötu 12. Léleg eða engin girðing var í kring- um lóðina við Hverfisgötu 5. Þarna var því stórt samfellt athafnasvæði fyrir krakkana. Rétt er að rifja upp að á þessum árum voru rammgerðar girðingar í kringum flestar lóðir til að halda blessuðum bæjarrollunum frá blómum og öðrum skrautgróðri. KV, fótbolta- og íþróttafélag Á Brekkunni var starfrækt merkilegt íþróttafélag, Knattspyrnufélagið Vörn, eða KV. Simmi beitti sér fyrir stofnun þess og var leiðtogi. Simmi skrifaði litla minnisbók um félagið, KV-bók, sem er samtíma- heimild. Þar eru frásagnarbrot um leiki og uppátæki 30 til 40 gutta, ekki allt Brekkuguttar þó. Félagið var stofnað 1961 og keppti sinn fyrsta leik við KS um haustið. KV tefldi þessum knáu strákum fram: Marteinn Kristjánsson, Leifur Halldórsson, Kjartan Stefánsson, Guðmundur Skarphéðinsson, Gestur

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.