Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2020, Blaðsíða 8

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2020, Blaðsíða 8
Siglfirðingablaðið8 SIGLFIRSK FRÉTTASKOT Glæpir borga sig í dimmum drunga - 3 bækur Ragnars í efstu 10 sætum þýska met- sölulistans. CBS gerir þætti byggða á Dimmu Ferill glæpa sagna höfundarins Ragnars Jónas sonar hefur heldur betur tekið flugið á síðustu árum. Þrjár bóka hans eru á meðal þeirra tíu efstu á þýska met sölu listanum og sjón varps risinn CBS stefnir á sjón varps þætti byggða á bókinni Dimmu. Dan Brown fagnar „Já, já. Ég er búinn að fá hamingjuóskir héðan og þaðan eins og til dæmis frá Dan Brown vini mínum. Hann sendi mér mjög hlýja kveðju í síðustu viku og gaf mér góð ráð hvernig ætti að höndla svona,“ segir Ragnar þegar hann er inntur eftir viðbrögðum við Dan Brown og Ragnar á söguslóðum bóka Ragnars; Siglufirði. Nýjasta bók Ragnars heitir Vetrarmein en heitir á erlendum málum einfaldlega SIGLÓ! tíðindunum að vestan. „Hann hefur auðvitað farið þessa leið nokkrum sinnum,“ heldur Ragnar áfram og er varla á flæðiskeri staddur með annan eins ráðgjafa og höfund Da Vinci lykilsins sem þekkir vel þær flækjur og hnúta sem verða til þegar spennuskáld- skapur rennur saman við bandaríska kvikmynda- framleiðslu. Heiðar R. Ástvaldsson látinn Heiðar Ástvaldsson fæddist á Siglufirði 1936. Hann útskrifaðist frá Gagnfræðaskóla Siglufjarðar 1953. Hann lauk verslunarprófi og síðar stúdents- prófi frá Verslunarskóla Íslands 1955 og stundaði nám við lagadeild HÍ. Nam við City of London Collage í ensku, bókmenntum og alþjóðalögum, við Pitmans College latínu og frönsku, við Ham- burger Fremdsprachenschule í þýsku, við Euro- center í Barcelona í spænsku. Heiðar lauk prófi frá Imperial Society of Teachers of Dancing og er einnig með alþjóðleg dómararéttindi í sam- kvæmisdansi. Heiðar hefur í 50 ár starfað sem danskennari. Heiðar var kvæntur Hönnu Frí- mannsdóttur húsmóður (1936-2008) og áttu þau einn son Ástvald Frímann f. 1973. Heiðar rak eigin skóla, Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar frá 1966-2006 og kenndi dans í Ríkisútvarpinu um 5 ára skeið og sá um dans- lagaþátt útvarpsins í um 17 ár. . Heiðar var formaður danskennarasambandsins um árabil og fulltrúi Íslands hjá Alþjóðasambandi danskennara frá upphafi Hann var formaður Siglfirðingafélagsins 1974-1991. Siglfirðingafélagið þakkar Heiðari að leiðarlokum fórnfúst starf og sá sem heldur hér á penna þakkar honum þolinmæði á tímum danskennslu sem ég hóf hjá honum um 1960 á Siglufirði og lauk þegar hann hætti kennslu árið 2006. Gunnar Trausti

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.