Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2020, Side 11

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2020, Side 11
Siglfirðingablaðið 11 Jónsson, Jónas Valtýsson, Kristján Elíasson, Kjartan Bragason, Sigmundur Stefánsson, Karl Alfreðsson, Rafn Elíasson. Við æfðum einnig ýmsar frjálsar íþróttir og kepptum í þeim. Úrslitin eru skráð í KV-bók. Afmörkun Brekkunnar Áður en lengra er haldið er vert að átta sig á því hvar hið merka hverfi Brekkan liggur þótt gatnakerfið á Siglufirði sé á köflum ruglingslegt svo ekki sé meira sagt. Hverfið afmarkast í suðri af vegi sem lá upp frá Suðurgötu/Lindargötu að Hávegi. Ég man ekki til þess að sá vegur hafi haft nafn, enda ekkert hús skráð við hann, en heitir víst Skriðustígur (á sumum götukortum nefndur Heiðarvegur). Vesturmörkin eru í fjallinu og í norðri eru mörkin við Kirkjustíg og byrjun Lindargötu. Kirkjugarðurinn var og er hluti af Brekkunni en væntanlega gerði Óla Gosa hverfið líka tilkall til hans að hluta. Austurmörkin í mínum huga voru aðallega við Lindargötu en töluvert var um það að krakkar, sem bjuggu við Suðurgötuna neðan Lindargötu, leituðu upp á Brekkuna. Þess má geta að einn Brekkugutti kom frá Skaftaplaninu. Það var Gestur Jónsson lögmaður en hann dvaldi hjá afa sínum, Skafta á Nöf, á sumrin. Kindahús og Kobbi malló Ágætt er að hefja ferð í huganum um Brekkuna við norðurenda Lindargötu. Fljótlega er komið að Lindarbrekku. Húsið, sem nú er horfið, stóð neðan við kirkjuna. Í Lindarbrekku bjuggu sæmdarhjónin Helgi og Alfa, foreldrar Páls kennara. Ég hændist að þeim og þau tóku mér vel. Þau höfðu kindur í kofa í garðinum og leyfðu mér að fylgjast með þegar kindunum var gefið. Skammt frá, fyrir neðan götuna, bjó einstæðingur- inn Kobbi mall eða malló í hrörlegu húsi. Forvitnilegt var að kíkja inn til hans, moldargólf og skrítin lykt. Kobbi var oft á vappi utandyra. Ég sé hann fyrir mér með fiskstykki á disk kallandi á kettina sína skrækri röddu. Sumir krakkar gerðu at í Kobba, gengu upp á hús hans, trömpuðu á þakinu og ruku burt þegar karlinn kom út. Kúrði undir kirkjugarðsveggnum Kirkjustígur gengur upp frá Lindargötu á tveimur stöðum, annars vegar liggur hann að norðurhlið kirkjugarðsins og hins vegar upp að miðjum garðinum að austan. Við Kirkjustíg stóðu nokkur hús. Doddi Þorleifs bjó í einu þeirra, litlu húsi sem kúrði undir kirkjugarðsveggnum. Þar áttu heima vaskir Brekkuguttar. Sá elsti, hinn landsfrægi söngvari Þorvaldur Halldórsson, var fluttur að heiman þegar ég man eftir mér. Bræður hans, Leifur og Jónas, voru leikfélagar okkar, báðir eldri en ég. Í þessu litla húsi bjó stór fjölskylda. Jónas sagði mér að hann hefði á fullorðinsárum búið einn í húsinu um tíma en flutt út af því að honum þótti það of lítið! Á skíðum fyrir neðan Hverfisgötu 4. Frá vinstri Stefanía Jóhannsdóttir, Indriði bróðir hennar, og Steingrímur Lillien- dahl. Verið að undirbúa að fara á Jónstúnið. Mynd úr safni Steingríms Lilliendahl. Í slábolta í Holunni. Vor í lofti en nægur snjór. Fremst er Páll Helgason, til vinstri Kristín Þorgeirsdóttir skíðadrottning (í heimsókn á Brekkunni), aftast Helgi Pétursson og til hægri Stefanía dóttir Jóhanns Þorvaldssonar. Myndin líklega tekin um 1953. Til vinstri er Hverfisgata 1. Þá sér í Kirkjustíg 9, hús Jónasar rakara, sem ber við kirkjuturninn. Einhver er að sóla sig á útbyggingu húss sem stóð við Lindargötu 10. Húsið eyðilagðist í eldi 1978. Ljósmynd: Steingrímur Lilliendahl.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.