Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2019, Blaðsíða 5

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2019, Blaðsíða 5
Siglfirðingablaðið 5 knattspyrnuyfirvalda fyrir ungum leikmönnum heldur einungis leyfi foreldra. Formaður KS hringdi í for mann KSÍ og viðurkenndi sá síðarnefndi að mönnum innan stjórnar KSÍ hefðu orðið á mistök þegar þeir leyfðu Sigurjóni að leika með. Hefði þá ekki verið réttast að láta liðin mætast aftur? Svokallað Siglufjarðarmál Úrslitaleikur Þróttar og Breiðabliks átti að fara fram í byrjun september en áður en af því varð kærði KS málið til dóm­ stóls Íþróttasambands Íslands. Framkvæmdastjórn ÍSÍ vísaði málinu aftur til KSÍ á þeim forsendum að um væri að ræða sérgreinamál og að ekki væri hægt að fjalla um slík mál nema á tveimur dómstigum. En dómstóll KSÍ ákvað 23. september að fyrri úrskurður skyldi standa. Daginn sem úrslitaleikurinn fór fram, 28. september, mótmælti KS enn einu sinni, án árangurs, og Þróttur komst upp í 1. deild eftir 9:0 sigur á Breiðabliki. Tómas mætti á ársþing KSÍ í nóvember og var vígreifur, sam­ kvæmt blaðafréttum. Jafnvel var fullyrt að utanbæjarfélögin ætluðu að kljúfa sig frá KSÍ. Á ársþinginu kom fram tillaga um „svokallað Siglufjarðarmál“ en henni var vísað frá en samþykkt lagabreyting sem koma átti í veg fyrir „að annað Siglufjarðarmál“ gæti orðið til í framtíðinni. Þannig atvikaðist það að lið KS fékk ekki að keppa um efsta sætið í sínum riðli og síðan um lausa sætið í efstu deildinni. En tímarnir hafa svo sannarlega breyst. Nú reyna meistaraflokkar að nýta sér efnilega unga leik­ menn allt niður í fimmtán ára aldur – og eru stoltir af því. Enda hefur KSÍ breytt sínum reglum til samræmis við slíkan hugsunarhátt. Gullaldarliðið vann samt En í lok september 1964 varð Knattspyrnufélag Siglufjarðar Norðurlandsmeistari í knatt­ spyrnu. Þá fékk Sigurjón að vera með, enda árinu eldri. Liðið var að mestu leyti skipað sömu leikmönnum og árið áður. KS hafði unnið fjóra leiki í riðlakeppninni með 28 mörkum gegn 2. Úrslitaleikurinn var við Þór á Akureyri og Siglfirðingar unnu með 3 mörkum gegn 1. Bragi Magnússon varaformaður KS skrifaði langa grein um kærumálið í Ný vikutíðindi um miðjan nóvember 1963. Þar birtist þessi teikning hans og í myndatexta sagðí: „Fígúrurnar bak við markið eiga að tákna dómstól og stjórn K.S.Í.“Bragi mun einnig hafa teiknað aðra mynd sem birtist í dagblaði en hún hefur ekki fundist. Þar kom storkur fljúgandi með Sigurjón í bleyju inn á völlinn.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.