Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2019, Blaðsíða 21

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2019, Blaðsíða 21
Siglfirðingablaðið 21 var bara alltaf í fjörunni eða við hana, annaðhvort á kajak eða með hundinn. Ég átti minkahund, eða taldi hann allavega vera það. Hún hét Rósý, sem hljómar kannski ekkert veiðihundslega, en við strák­ arnir vorum alveg klárir á því að þetta væri minkahundur og löbb­ uðum um fjörurnar að leita að minkum, en veiðin var lítil. Svo var það auðvitað mjög sérstakt að sveifla sér á köðlum hér og þar, bæði yfir landi og sjó. Í tönkunum við mjöl húsið, sem sneru að Túngöt­ unni. Þar var kaðallinn bund inn við handriðið og bara brotajárn undir. Svo var kaðall á löndunar­ krananum þar sem maður týndi einhverjum stígvélum. Fótbolti var líka á vinsældalistanum og alltaf hægt að finna hentugan stað, þótt ekki væri nema í fjallinu. Ég varð snemma virkur þátttakandi í félagsstörfum. Mætti t.d. í kirkju á hverjum sunnudegi og um tíma ætlaði ég að verða prestur því Guðbrandur meðhjálpari sagði að ég tónaði svo vel. Við Addý vorum saman í stjórn Æskulýðsfélagsins, ég formaður og Addý varaformaður. Þegar Ungt fólk með hlutverk kom gekk ég í þann hóp. Mér fannst mjög indælt að alast upp á Siglu­ firði og get tekið undir það að manni leiddist aldrei þótt maður byggi ekki við sama útbúnað eða dót og núna. Veðrið er náttúrulega eitt eins og Alma nefndi. Þessar öfgar í því. Mér finnst vanta þessar sveiflur hér sunnan heiða, alltaf eitthvað hálfgert veður. Svo má ekki gleyma bíósýningunum hjá Oddi og Guðrúnu og bíóið kemur reyndar aðeins við sögu þegar ég fæddist því ég fæddist á sunnudegi, inn í ellefu ára afmæli hjá Jósef bróður og það var bara öllu afmælisliðinu smalað saman í bíó meðan tekið var á móti mér í Blöndalshúsinu. Líney: Allt sem komið er fram. Útivistin og allt brallið. Kajakgerðin þegar verið var að berja bárujárnið til og fá stálbik. Framhaldið var svo að fara á kajakanum undir bryggjur­ nar með veiðarfæri, veiða fisk og gera að. Krakkar fengju aldrei að gera þetta í dag. Svo var heldur betur hægt að vera uppi í fjalli og í Gimbraklettum. Það var alltaf eitthvað sem hægt var að hafa fyrir stafni. Eftirminnilegir eru bardagarnir á milli hverfa; Húnar, Villóar og Bakkar sem fóru í skipulögð slagsmál. Einhverjir létu vita hvað til stæði og menn mættu tilbúnir í slag, vopnaðir hinum ýmsu græjum. Svo eru það brenn­ AG Mér leiddist að vinna við borð í frystihúsinu, það eru lengstu mín­ útur sem ég hef lifað. Ég taldi meira spennandi að flaka og hafði mitt fram eftir að mér voru kennd handbrögðin við flökunina og að brýna. Danni Bald sýndi mér hvernig á að flaka og ég er með ör til minningar um það. Hnífar í höndum unglinga þóttu ekkert mál. Barnastúkan Eyrarrós nr. 68. Frá vinstri: Kristín Skúladóttir, Alma D. Möller, Arnfríður Guðmundsdóttir, Guðrún Blöndal, Jóhann Þorvaldsson, Aðalbjörg Pálsdóttir, Hulda Friðgeirsdóttir, Björn Ingimarsson, Jóhanna Hilmarsdóttir, Stefán Friðriksson.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.