Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maj 2019, Qupperneq 22

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maj 2019, Qupperneq 22
Siglfirðingablaðið22 urnar uppi í fjalli á gamlárskvöld, sem löngum tíma var eytt í að safna í. Maður var bara smákrakki að safna spýtum og kom stoltur með hverja spýtuna á fætur annarri. Svo komu óvinirnir og stálu úr köstunum og kveiktu jafnvel í þeim. Það voru margir krakkar í hverfinu og oft var farið í leiki á Hlíðarveginum svo sem fallin spýta, yfir, ein króna og feluleikir. Svo má ekki gleyma leikjum í snjónum, hvort sem var að stökkva ofan af húsþökum, fara á skíði og keppa á skíðum og snjóþotum. Ég keppti nokkrum sinnum í skíðastökki og vann minn hóp, stökk minnir mig 30 metra. Þegar ég hugsa til baka þá rifja ég upp að mamma var í kirkjukór, kvennakór og leikfélagi og oft fékk ég að fara með henni. Svo var þarna lúðrasveit og karla kór og maður mætti á alla viðburði hjá öllum þessum félögum. Það eru svo mikil forréttindi að hafa alist upp við allt þetta. Þurftum ekkert endilega að hafa þekkingu né kunnáttu en öðluðumst hana með því að fá að gera ýmislegt. Við vorum mjög heppin að fá að alast þarna upp og lentum inni í skemmtilegu tímabili. Ég man aldrei eftir að mér hafi leiðst eða einhver vandræði verið. Hvað sjáið þið helst í þessum þáttum sem gert hefur ykkur svona áræðin og tilbúin til að gegna ábyrgðarstörfum? Viðmælendur voru sammála um það sem hér fer á eftir. Félagslegt uppeldi, eins og fram kemur hér á undan, skipti verulegu máli. Við höfðum lausan taum að mestu leyti og okkur var ekkert pakkað inn í bómull. Náttúruöflin styrktu menn og stældu. Það var barist í skólann í hvaða stórviðri sem var, ekkert verið að skutla manni neitt. Upplifun uppvaxtar­ ára okkar flestra var að Siglufjörður væri ekki neinn smábær, væri eigin­ lega stórbær, og við vorkenndum fólki í smá bæjunum í kring. Á Siglufirði voru verslanir í tugatali; Mjólkurbúð, matarbúðir, bakarí, fatabúðir Anna Lára, Guðrún Rögnvalds, Óli Tóra, tvær bókaverslanir, verslunarfélag, útibú frá Kaupfélag inu bæði í norður­ og suðurbæ og saumastofa svo eitthvað sé nefnt. Við fórum mjög snemma að vinna og oftast sömu vinnu og fullorðnir. Mörg störf ber á góma: Barna­ pössun, vinna í sjoppu, útburður blaða, sendilsstörf á símstöðinni, vinna í saltfiski, skreið, frystihúsi, síld, verslunarstörf, stúarastarf. Við lærðum að flaka, fletja, hausa, brýna. Allt lærdómsríkt og áhersla á stundvísi og vinnusemi. Í skólanum var agi og ákveðinn kúltúr fyrir lærdómi og skólagöngu og góð kennsla að mestu leyti. Á heimilum okkar allra var áhersla lögð á að mennta sig í framtíðinni. Sambland af umhverfinu, skóla­ göngu á veturna og skilningur á vinnumenningunni á sumrin, kenndi okkur stundvísi og vinnu­ semi og gaf okkur góða innsýn í atvinnulífið og það hvað hægt er að vinna margs konar vinnu. Hvað úr langri skólagöngu finnst ykkur nýtast best í störfum í dag? Alma: Það er ýmislegt. Þekking sem maður hefur aflað sér og virðing fyrir námi og þekkingu. Eftir því sem maður lærir meira þá skilur maður hvað lítið maður veit og gerir sér grein fyrir að það eru margar hliðar á öllum málum. Maður temur sér aga í vinnubrögð­ um og að gera hlutina vel. Allavega hef ég reynt að sinna mínu námi þannig. Ég hef einstaklega gaman af að læra og er eilífðar stúdent. Það verður skemmtilegra að læra með árunum þá er nefnilega hægt að tengja nám við reynslu og þú sérð að teorían er rétt. Ég er markvisst að endurnýja mig og skipti um í starfi með nokkurra ára millibili. Þannig fást alltaf nýjar áskoranir. Svo er auðvitað skemmtilegra að vinna þegar maður er vel undir­ búinn. Störfin sem við erum í eru ekki bara tilviljun heldur undirbúningur og tækifæri sem spila saman. Lárus: Það hjálpar óneitanlega í lögfræð­ inni að vera lögfræðimenntaður! En allt utan hins venjulega skóla kemur sér líka mjög vel. Maður er búinn að vera í formennsku í AM: Lalli þú varst alltaf svo krambúleraður þegar þú varst lítill. LB: Er það, ég man ekkert eftir því ­ en það hefur líklega verið af því að ég sé ekkert með öðru auganu. Allar stelpurnar: Já alveg rétt, við munum eftir sjónprófinu sem þú fórst í hjá skólahjúkkunni. LB: Já þegar ég lét hana fara yfir alla stafina á spjaldinu og sá ekki einn einasta staf, ekki einu sinni þann stærsta. Hún var mjög hissa svo ég sagði eins og satt var: Ég sé ÞIG ekki einu sinni! Alma á björgunaræfingu 1990 á Sigló.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.