Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - May 2019, Page 26

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - May 2019, Page 26
Siglfirðingablaðið26 Árum saman birtust greinar í Mánudagsblaðinu eftir mann sem nefndi sig Ajax. Voru þær taldar besta efnið í því blaði. Sumir sögðu að höfundur þeirra hefði verið Ólafur Hansson menntaskólakennari. Haustið 1974 skrifaði Ajax grein þar sem fjallað var um síldina og Siglufjörð. JR. Siglufjörður fór ekki að vaxa neitt verulega fyrr en á síðustu áratugum nítjándu aldar. Þá færð­ ist miðstöð íslensku síldveiðanna norður þangað, en hafði áður verið á Austfjörðum, aðallega á Seyðisfirði. En uppgangur staðarins varð mjög hraður á fyrstu áratugum þessarar aldar. Og í augum íslensku þjóðar­ innar varð hann rómantískt ævintýraland. Á sumrin flykktist þangað fólk af öllum landshornum til að fá sér vinnu í síldinni. Það var þá mikill árstíðamunur á Siglufirði. Á sumrin var þar líf og fjör og manngrúi, en á haustin færðist kyrrð yfir allt og Siglfirðingar voru einir eftir í bænum sínum. Innfæddir Sigl­ firðingar brugðust ýmislega við þessum árstíðaskiptum, sumir vörpuðu öndinni léttar, þegar aðkomulýðurinn var horfinn, öðrum leiddist fásinnið á veturna. Miklar þjóðsögur gengu um tryllt ástalíf í Siglufirði um sumartímann. „Þær voru indæl­ ar andvökunæturnar uppi í Hvanneyrarskál,“ eins og þar stendur. Líklega voru margar af þessum sögum meira og minna sannar en þátttakendur í ástalífinu voru víst sjaldnast innfæddir Siglfirðingar heldur aðkomufólkið, ekki síst hið sunnlenska. Hér í Reykjavík þótti það í þann tíð mesta mildi ef reykvísku síldarstúlkurnar komu aftur úr síldinni á haustin án þess að vera óléttar. Útlendingar settu mikinn svip á mannlífið á Siglufirði á sumrin Hálfgerð heimsborg og rómantískt ævintýraland Siglufjarðarkossarnir voru blautir og langir

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.