Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maj 2019, Side 30
Siglfirðingablaðið30
Svipmynd: Ásbjörn Blöndal
Í höfuðið á hverjum heitir þú?
Afa mínum í móðurætt,
Birni Jóhannessyni úr Fljótum
Maki?
Jóhanna Guðmundsdóttir, sjúkraliði
Börn?
Ásbjörn Þór, Berglind Soffía,
Guðmundur Óli, Bryndís og Egill
Bifreið?
JEEP
Fyrsti bíllinn?
Volksvagn, VW
Fallegasta land sem þú hefur
ferðast til?
Noregur
Mesta gleði í lífinu?
Börnin öll
Mestu vonbrigði lífsins
John Lennon skotinn til bana
Besta bók
Sjálfstætt fólk
Besta plata
Dark side of the moon
Hvað myndirðu gera ef þú yrðir
ósýnilegur einn dag?
Veiða með Erik Clapton í Grímsá
Áhugamál
Blues og Jazz tónlist, matseld, veiðar
og ferðalög með fjölskyldu og vinum
Helsti veikleiki
Get verið átakanlega ófélagslyndur
Helsti kostur
Siglfirðingur
Uppáhaldsmatur
Sjóbirtingur grillaður eða steiktur
Uppáhaldsdrykkur?
Ískalt Coca Cola úr lítilli glerflösku
Uppáhaldsfréttamiðill
RÚV
Uppáhaldshljómsveit
Genisis
Versti matur
Súrt lambakjöt
Uppáhaldstónlist
Blúsinn
Uppáhalds íþróttamaður
Egill sonur minn (Judo)
Besta kvikmynd
Unforgiven
Besti leikari
Antony Hopkins
Besta leikkona
Meryl Streep
Vest í fari annarra?
Hroki
Best í fari annarra?
Einlægni
Uppáhaldsfélag í íþróttum
Judofélag Selfoss
Fallegsta kona fyrir utan maka
Sophia Loren
Uppáhalds sjónvarpsefni
Fóstbræður
Hvað veitir mesta afslöppun
Veiða
Hvað ætlarðu að gera í
sumarfríinu?
Tónleikar í London og svo áfram í
frí á Spáni
Hvaða áherslu leggur þú mest á
í þjóðmálum?
Skilvirkni
Kærasta æskuminning
Leikir okkar æskuvinanna í fjallinu
ofan Hávegar (syðri)
Neyðarlegasta atvikið
Þegar ég kynnti mig og minn bak
grunn á afskræmdri dönsku í all
löngu máli, en bara fyrir röngum
hóp okkar nýnema við Álaborgar
háskóla!
Við hvað ertu hræddur?
Hraðann í neikvæðum breytingum
á loftslagi og Trump.
Ásbjörn Blöndal er fæddur á Siglufirði. Foreldrar hans voru Óli J. Blön
dal forstöðumaður Bókasafns Siglufjarðar og kona hans Margrét Björns
dóttir. Börn Óla og Margrétar eru fimm og er Ásbjörn númer 3 í röð
inni fæddur 25.11.1954.
Að námi loknu við Gagnfræðaskólann á Siglufirði tók við nám í rafvirk
jun og rafvélavirkjun. Hann tók rafvirkjapróf 1974. Vann ýmis störf
eins og aðrir en mest hjá Síldarverksmiðjum ríkisins og fyrirtæki Guð
mundar Lárussonar, Freys Sigurðssonar og Jóhannesar Friðrikssonar,
sem seinna hlaut nafnið Raffó. Ásbjörn stundaði verkfræðinám við
Háskólann í Álaborg í Danmörku 19811986 og að afloknu námi
stundaði hann rannsóknir við skólann og kenndi til 1988.
Ásbjörn starfaði sem veitustjóri hjá Selfossveitum 19892007.
Hann hefur verið frkv.stjóri Þróunarsviðs hjá HS Orku frá 2007.