Fréttablaðið - 25.06.2022, Page 6

Fréttablaðið - 25.06.2022, Page 6
Ódýrasta flugið úr landi nú og fram í lok ágúst er flug Wizz Air á Luton-völl í London. Því miður er það þannig að Icelandair upplýsir ekki alla farþega um þessi réttindi. Breki Karls- son, formaður Neytendasam- takanna Þriggja klukkustunda röskun í innanlandsflugi getur verið bótaskyld. Margir flugfarþeg­ ar eiga rétt á bótum án þess að vita af því. Hægfara flug­ stöðvar um allan heim valda því að fjöldi fólks sem mætir tímanlega missir samt af flugi. Prófmál fram undan. bth@frettabladid.is NEYTENDUR Misbrestur er á að flug­ félög upplýsi neytendur um rétt far­ þega til að sækja bætur ef röskun verður á flugi eða þau felld niður. Óvenju mikið hefur verið um raskanir undanfarið og þá ekki síst í innanlandsflugi Icelandair, eins og Fréttablaðið hefur fjallað um. Ef flug, gildir einu hvort flugið er innanlands eða milli landa, frestast um þrjár klukkustundir eða meira af öðrum ástæðum en veðri eða náttúruham­ förum, á farþegi rétt á bótum sem nema  ekki lægri fjárhæð en  250 evrum. Það nemur rúmum 35.500 krónum miðað við gengi gærdagsins. Breki Karlsson, formaður Neyt­ endasamtakanna, segir að haugur af málum hafi komið inn á borð Neytendasamtakanna undanfarið. „Þetta eru sumpart árstíðabundnar umkvartanir sem snúa að ferða­ mennsku, flugfélögum, pakkaferð­ um og öðru þegar flugfélög seinka ferðum eða fella niður og veita ekki upplýsingar um fullan rétt farþega um bætur og réttindi fólks,“ segir Breki. Ekki er þó aðeins um árstíðabund­ ið annríki tengt sumarferðalögum að ræða. Vegna vandræða í innan­ landsfluginu segir Breki mikilvægt að benda farþegum á að  þeir eigi rétt á stöðluðum bótum sem nema 250 evrum ef flug þeirra frestast um meira en þrjá tíma eða er fellt niður. „Það er ESB Evróputilskipun sem tryggir okkur þessi réttindi,“ segir Breki. Hann segir marga  hafa leitað til  Neytendasamtakanna vegna innanlandsflugsins en  einnig eigi Íslendingar í útistöðum við erlend f lugfélög og ferðaskrifstofur sem hækka verð eftir að farþegar telja sig hafa greitt fullnaðarverð. Farþegi sem telur sig eiga rétt á bótum getur nálgast eyðublað á vef Samgöngustofu. „Því miður er það þannig að Ice­ landair upplýsir ekki alla farþega um þessi réttindi,“ segir Breki. Annað mál sem er neytenda­ samtökum víða um heim hugleikið þessa dagana tengist sögulegu álagi á f lestum flugvöllum heimsins. Í kjölfar ferðasprengju að loknum lamandi áhrifum heimsfaraldurs Covid hefur ekki tekist að manna störf margra starfsmanna á f lug­ völlum eftir samdrátt. Þannig getur öryggisskoðun tekið marga klukku­ tíma. Mörg dæmi eru undanfarið um að farþegar sem mæta á réttum tíma fyrir brottför nái ekki að kom­ ast í tæka tíð að hliði sínu og missi því af flugi. Eftir því sem fram kemur hjá for­ manni Neytendasamtakanna eru dæmi um að það taki farþega allt að fimm klukkustundir að komast um f lugstöð frá anddyri á leiðar­ enda. Sögð eru dæmi um að afköst f lugvalla séu innan við 50 prósent miðað við hefðbundið ástand. Regnhlífasamtök neytendafélaga víðs vegar í Evrópu eru að undirbúa prófmál til úrskurðar eða dóms þar sem svarað verður hvort f lugfélög beri ábyrgð á farþega á flugvelli eða einstaklingurinn sjálfur. Fréttablaðið náði ekki tali af Ice landair til að fá viðbrögð f lug­ félagsins við gagnrýni formanns Neytendasamtakanna. Icelandair sagði fyrr í vikunni að tímaáætlun hafi staðist í fjórum af hverjum fimm flugum innanlands síðustu vikur og hafi orðið bragar­ bót. n Þriggja tíma bið geti skapað bótarétt ragnarjon@frettabladid.is  FERÐAÞJÓNUSTA Nóttin á almennu tveggja manna hótelherbergi hér á landi kostar nú í kringum 30­40 þúsund krónur, samkvæmt óform­ legri könnun Fréttablaðsins sem framkvæmd var í vikunni. Skoðað var verð á hótelum af handahófi í sex bæjarfélögum hringinn í kring­ um landið. Hægt er að finna ódýrari herbergi en það er í f lestum tilfellum á gisti­ heimilum eða farfuglaheimilum. Þá fylgir yfirleitt ekki morgunverður og þjónustan ekki eins mikil og á hefðbundnum hótelum. Samk væmt verðgreiningu á hótelum frá Ferðamálastofu hefur mikið ris orðið í verðlagi hótela frá 2020, en það ár lækkuðu hótelher­ bergi mikið í verði vegna heims­ faraldurs sem þá geisaði. Verðið er nú að leita í eðlilegt far á ný, að sögn Jakobs Rolfssonar, forstöðumanns rannsókna og töl­ fræðisviðs Ferðamálastofu. „Það er yfirleitt verið að bera saman til dæmis  2019 og 2022 og við erum að sjá að þetta er að leita í sömu mynstur,“ segir Jakob. Hann telur þó ekki rétt að tala um að verð sé orðið of hátt. „Þótt Íslendingum finnist 40 þúsund fyrir hótelherbergi mikið á háannatíma á þéttsetnum ferðamannastað þá er það alls ekkert brjálað, miðað við hver eftirspurnin er núna,“ segir Jakob. Snorri Pétur Eggertsson, fram­ kvæmdastjóri sölu­ og markaðs­ sviðs Kea hótela, segir að fullyrða megi að eftirspurn sé komin á sama stað og 2019 á f lestum stöðum á landinu. Snorri segir að með vaxandi eftir­ spurn muni verð hækka. „Verðlagn­ ing er langt yfir því verði sem var í gangi í Covid og eftirspurnin hefur boðið upp á verðlagningu sem er meira að segja stundum hærri en 2019,“ segir hann og bætir við: „Í Covid nýttu Íslendingar sér lága verðlagningu á þeim tíma, sem var gott fyrir báða aðila. En sú verðlagn­ ing stendur ekki undir hótelrekstri á Íslandi.“ Aðspurður segir Snorri að Íslend­ ingar séu að bóka í mun minna mæli en áður. „Með hækkandi verði þá fækkar Íslendingum verulega, sér­ staklega á lægra verðlögðum hót­ elum, þriggja stjörnu hótelum. Þau eru orðin of dýr fyrir Íslendinga svona almennt séð,“ segir Snorri. n Hótelherbergi aftur á fullu verði Jakob Rolfsson, forstöðumaður rannsókna og tölfræðisviðs Ferðamálastofu ninarichter@frettabladid.is FERÐALÖG Ódýrasti f lugáfanga­ staðurinn í sumar miðað við verð dagsins er til Lundúna með ung­ verska flugfélaginu Wizz air. Hægt er að bóka þriggja daga helgarferð til borgarinnar í ágúst, með flugi fram og til baka fyrir 14.500 krónur. Næst­ ódýrustu ferðirnar á tímabilinu eru ferðir með flugfélaginu Easy­Jet. Wizz Air hefur flugleiðir frá Dam­ mam, konungsríkinu Sádi­Arabíu, til Rómar, Vínar og Abu Dhabi í septem­ ber 2022. Nýju áfangastaðirnir þykja marka tímamót í aðgengi íbúa Sameinuðu arabísku furstadæmanna að lág­ gjaldaflugi til Evrópu, og aðgengi Evrópubúa að svæðinu. Ódýrustu fargjöldin eru auglýst á 3.500 krónur aðra leið frá meginlandi Evrópu. Sé leitað að hagstæðasta verði á pakkaferðum til sólarlanda fyrir f jögurra manna fjölskyldu hjá íslenskum ferðaskrifstofum frá deg­ inum í dag og fram í lok ágúst, bjóða Heimsferðir besta verðið, samkvæmt óformlegri könnun blaðsins. Þar er boðin átta nátta ferð til Tenerife á 63.975 krónur á mann. n Ódýrast að fljúga til London í sumar Þegar ferðinni er heitið til London er ódýrast að lenda í Luton. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Íslenskir ferðalangar hafa lent í alls konar flugvandræðum síðustu vikur. Sumir flugvellir virðast aðeins vera á hálfum afköstum og eru bótakröfur tíðar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Flugsprettur TENERIFE báðar leiðir 27. júní - 05. júlí frá 49.900 kr. ALMERÍA báðar leiðir 27. júní - 07. júlí frá 49.900 kr. ALICANTE aðra leið 28. júní frá 19.900 kr. MALLORCA báðar leiðir 29. júní - 06. júlí frá 49.900 kr. MALAGA báðar leiðir 30. júní - 11. júlí frá 29.900 kr. VERONA báðar leiðir 03. - 10. júlí frá 39.900 kr. FLEIRI FLUG Í BOÐI TIL ÍTALÍU Á ÓTRÚLEGU VERÐI ! ÚTSALA!SÍÐUSTU SÆTIN Í JÚNÍ VERÐIÐ LÆKKAR EN BENSÍNIÐ HÆKKAR! info@plusferdir.is www.plusferdir.is 6 Fréttir 25. júní 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.