Fréttablaðið - 25.06.2022, Side 10
Ég er spennt, ég veit að
þetta er krefjandi og
mikið ábyrgðastarf.
Guðrún Aspelund, verðandi sótt-
varnalæknir
Guðrún Aspelund, yfirlæknir
sóttvarnasviðs hjá Embætti land-
læknis, var fyrr í vikunni ráðin sem
næsti sóttvarnalæknir. Hún var eini
umsækjandinn að starfinu og var
ráðin í kjölfar mats á umsókn og ítar-
legs viðtals. „Ég geri mér grein fyrir
að starfinu fylgir mikil ábyrgð og ég
hlakka til að takast á við verkefnin
sem eru fram undan,“ sagði Guðrún í
tilkynningu frá Embætti landlæknis.
Í samtali við Fréttablaðið sagðist
hún ekki hræðast það umtal sem
skapast hefur um embættið. „Ég
hef auðvitað séð það að Þórólfur
hefur verið í eldlínunni og komið
fram fyrir bæði hönd síns sviðs og
sóttvarnayfirvalda síðustu tvö ár
og auðvitað hefur það verið mjög
krefjandi,“ segir Guðrún og bætti
við að hún væri alveg tilbúin að taka
þetta að sér.
Guðrún segir ráðninguna leggj-
ast vel í sig. „Ég er spennt, ég veit að
þetta er krefjandi og mikið ábyrgð-
arstarf en þetta verður mjög áhuga-
vert,“ bætir hún við. Hún segir þetta
vera áskorun sem hún er tilbúin að
takast á við, enda hafi hún starfað á
sóttvarnasviði í tæp þrjú ár. „Það er
búið að vera mikið álag og mikið að
gera, þannig að mér finnst ég hafa
góða sýn á þetta starf, vita um hvað
það snýst og vera búin að fá góða
reynslu, fyrir utan þann bakgrunn
sem ég hef,“ segir hún.
Frá árinu 2019 hefur Þórólfur
verið næsti yfirmaður Guðrúnar.
Hún hefur starfað sem yfirlæknir
á sóttvarnasviði hjá Embætti land-
læknis, en sóttvarnalæknir er sviðs-
stjóri sóttvarnasviðs. Guðrún er
því ekki að færa sig langt og veit vel
hverju er búist við af henni í nýju
starfi.
Guðrún segist ætla að taka gott frí
í sumar áður en hún tekur við starfi
sem sóttvarnalæknir seinna í haust,
enda hafi það verið í kortunum áður
en hún var ráðin. Hún segir starfs-
menn sóttvarnasviðs hafa fengið
hvatningu til að taka sumarfrí, enda
hefur lítið verið um frí á sóttvarna-
sviðinu síðustu ár. n
Spennt fyrir krefjandi
starfi sem sóttvarnalæknir
Guðrún segir þetta vera áskorun sem hún er tilbúin til að takast á við.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Uppruni: Guðrún er fædd 12.
febrúar árið 1971. Hún ólst upp á
Öldugötu í Vesturbænum í Reykja-
vík en flutti síðan á Seltjarnarnes
þar sem hún bjó lengst af áður en
hún fór í háskóla.
Ferill: Guðrún hefur embættispróf
í læknisfræði frá Háskóla Íslands
og sérmenntun í bæði almennum
skurðlækningum og barna-
skurðlækningum. Guðrún hefur
einnig meistaranám í líftölfræði.
Á árunum 2007 til 2017 var hún
lektor og barnaskurðlæknir við
Colombia-háskóla. Í dag, og fram
að 1. september, starfar hún sem
yfirlæknir á sviði sóttvarna hjá
Embætti landlæknis.
Fjölskylduhagir: Guðrún og eigin-
maður hennar, Gunnar Jakobsson,
gengu í hjónaband árið 1998 eftir
að hafa verið í sambandi í rúm
fimm ár, þau kynntust á háskólaár-
unum. Saman eiga þau hjónin
tvær dætur en þær eru þrettán og
sextán ára.
Áhugamál: Áhugi Guðrúnar á
læknisfræði kviknaði á mennta-
skólaárunum. Hún fór í MR og
segist þar hafa fengið áhugann.
Guðrún segir áhugamál sín fara
mikið eftir veðri og árstíma, þá
helst að hjóla, skíða og ganga.
n Nærmynd
Guðrún Aspelund
Nýr sóttvarnalæknir hefur
verið ráðinn og tekur við
störfum 1. september næst-
komandi. Guðrún Aspelund
heitir sú sem tekur við starf-
inu af Þórólfi Guðnasyni, en
hún hefur starfað fyrir sótt-
varnalækni frá árinu 2019 og
er spennt fyrir verkefnunum
sem eru fram undan.
sigurjon@frettabladid.is
Tákn Byggðamerkis Húnabyggðar skal hafa tilvísun í áberandi
einkenni í náttúru svæðisins, sögu og ímynd.
Skilyrði er að merkið hafi skjaldarlögun og sé í samræmi við meginreglur
skjaldarmerkjafræðinnar, sbr. 4. og 5. grein reglugerðar um byggðar-
merki nr. R 112/1999. Tillögum skal skilað í tveimur útfærslum, í lit og
í svart/hvítu, sett upp á A4. Jafnframt skal fylgja lýsing á merkingu og
meginhugmyndum.
Tillögurnar skal senda í umslagi, merktar með fimm stafa tölu. Nafn
höfundar skal fylgja með í lokuðu umslagi, merktu með sama auðkenni.
Matsnefnd skipuð af sveitarstjórn velur merki úr aðsendum tillögum,
henni er jafnframt heimilt að hafna öllum eða vinna að útfærslu tillögu
með höfundi. Veitt er vegleg verðlaunaupphæð fyrir efstu þrjár til-
lögurnar, sem matsnefnd velur og leiðir til endanlegs merkis.
Húnabyggð er nýtt sveitarfélag sem varð til við
sameiningu Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps
árið 2022.
Húnabyggð
óskar eftir tillögum um byggðamerki
Frestur til að skila tilögum er til 1. september 2022.
Nánari upplýsingar: Einar K. Jónsson
einar@hunavatnshreppur.is og í síma 842 5800.
Sendist til: Matsnefnd byggðamerkis, Hnjúkabyggð 33,
540 Blönduós.
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut
10 Fréttir 25. júní 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ