Fréttablaðið - 25.06.2022, Page 16
hoddi@frettabladid.is
FÓTBOLTI Vanda Sigurgeirsdóttir
hefur verið í 116 daga í embætti frá
því að hún endurnýjaði umboð sitt
sem formaður KSÍ. Í kosningabaráttu
sinni talaði Vanda mikið um 100
daga áætlun sína í starfi og þar ætlaði
hún að ýta hinum ýmsu verkefnum
af stað.
„Ég er einmitt núna að vinna
skýrslu um 100 dagana til að senda á
félögin,“ segir Vanda í svari við fyrir-
spurn Fréttablaðsins hvernig gengið
hefði að fylgja eftir áætluninni.
Vanda og Guðmundur Ari Sigur-
jónsson, samstarfsmaður hennar,
tóku niður þau atriði sem félögin
í landinu nefndu. „Við flokkuðum
þau niður og við hjá KSÍ höfum
verið að vinna að framgangi þeirra,
annaðhvort að ljúka við eða koma í
ferli. Þetta eru mörg og ólík verkefni
sem snúa að þáttum eins og fræðslu,
mótamálum, leyfiskerfi og stuðningi
við félögin,“ segir Vanda.
Vanda hefur setið fundi með
fimm ráðherrum til að leysa úr
þeim vandamálum sem eru á borði
KSÍ. „Við höfum rætt um stuðning
ríkisvaldsins við knattspyrnu, um
útbreiðslu, aðstöðu, lýðheilsu og
þann félagslega og fjárhagslega
ávinning sem fjárfesting í fótbolta
og öðrum íþróttum hefur í för með
sér. Við höfum miklar væntingar
um að þessir fundir muni skila sér í
auknum stuðningi,“ segir Vanda.
Á næstunni ætlar Vanda svo með
skrifstofu sína á ferð og flug um land-
ið. „Þá ætlum við að vera með skrif-
stofu KSÍ á ferð um landið, það er
að fara á staðina, vera með fundi og
fræðslu, svara spurningum og fleira.“
Einnig er unnið að stefnumótun með
hjálp UEFA. „Þá eru nokkrir starfs-
hópar annaðhvort teknir til starfa
eða eru í burðarliðnum, meðal ann-
ars starfshópur um þjóðarleikvang
og um varalið. Ekki má gleyma einu
stærsta málinu, sem er stefnumótun
KSÍ til 2026 sem er unnin með UEFA.
Þar á bæ hefur slík stefnumótun
verið framkvæmd í mörgum löndum
og skilað mjög góðum árangri.“ n
Von á skýrslu frá Vöndu um starfið
Eftir yfirburðasigur er Vanda ánægð
með það hvernig tekist hefur til á
um 100 dögum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Áður en íslenska kvenna-
landsliðið hefur leik á Evr-
ópumótinu í Englandi þarf að
vinna mörg handtök til að allt
skipulag á mótinu virki.
helgi@frettabladid.is
FÓTBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið undirbýr sig nú af krafti fyrir
lokakeppni Evrópumótsins sem
fram fer í Englandi í sumar. Það eru
þó ekki bara leikmenn sem þurfa
að undirbúa sig fyrir átökin innan
vallar, heldur eru verkefni starfs-
fólks utan vallar ansi mörg. Óskar
Örn Guðbrandsson, starfsmaður
KSÍ, segist finna fyrir því í skipu-
lagningu mótsins að knattspyrna í
kvennaflokki sé vaxandi í Evrópu.
„Við finnum það. Við erum með
f leira starfsfólk. Reynslan hefur
kennt okkur ýmislegt. Staðallinn
hefur bara hækkað, bæði hjá UEFA
og okkur,“ segir Óskar. Hann starf-
aði einnig hjá KSÍ þegar kvenna-
landsliðið fór síðast á stórmót, EM
í Hollandi, þá sem fjölmiðlafulltrúi.
Alls eru 27 starfsmenn á vegum
Knattspyrnusambands Íslands sem
starfa í kringum landsliðið á mót-
inu. Í þeim hópi eru þjálfarateymið,
leikgreinendur, f jölmiðlateymi,
kokkur, sjúkrateymi, búningastjór-
ar, öryggistjóri og f leira starfsfólk.
Þá mun enska knattspyrnusam-
bandið útvega tvo starfsmenn sem
verða til taks fyrir íslenska hópinn
meðan hann dvelur á Englandi,
auk rútubílstjóra til að sjá til þess
að hann komist leiðar sinnar.
Óskar segir góða blöndu af nýju
og reynslumeira fólki í hópi starfs-
manna í kringum landsliðið á EM.
„Þetta er blanda af reynslumiklu og
öflugu fólki sem hefur verið í þessu
í mörg ár og nýrra fólki sem kemur
með nýjar og ferskar hugmyndir.
Blandan er svipuð og í leikmanna-
hópnum,“ segir Óskar, en alls eru
ellefu leikmenn í íslenska liðinu að
fara á sitt fyrsta stórmót, í bland
við reynslumeiri leikmenn sem eru
vanari stærsta sviðinu.
Langur undirbúningur
Það þarf að horfa til margra þátta,
líkt og gistingar, rútuferða og svo
framvegis. Alls eru gistinæturnar
meðan á Evrópumótinu stendur
650 talsins. Ef allt gengur að óskum
verða þær f leiri. Það byggist allt á
því hversu langt stelpurnar okkar
ná á mótinu.
Undirbúningur KSÍ fyrir mótið
hefur tekið langan tíma, enda í mörg
horn að líta. „Ég veit ekki hvernig
ég á að lýsa því í tíma, dögum eða
klukkustundum, en þetta er gríðar-
lega umfangsmikið,“ segir Óskar.
„Við vorum byrjuð að undirbúa
okkur um leið og liðið tryggði sig
inn á mótið. En hópurinn sem hefur
verið mest í undirbúningnum er
búinn að vera frá því í haust. Hann
hefur verið í samskiptum við UEFA,
enska knattspyrnusambandið og
skoðað aðstæður úti í Englandi,
bæði hótel og velli,“ sagði hann að
lokum.
Tæpar 300 milljónir í boði
Töluverðir fjármunir eru í boði á
mótinu en ofan á þær 600 þúsund
evrur sem KSÍ fær fyrir það að liðið
hafi komist inn á mótið geta ýmiss
konar aukagreiðslur bæst við. Fyrir
hvern sigur á mótinu fást það sem
nemur rúmar 14 milljónir króna.
Fyrir jafntef li fæst helmingur af
þeirri upphæð. Þá fær KSÍ hátt í 29
milljónir króna í vasann, takist lið-
inu að komast upp úr sínum riðli.
Færi Ísland einnig áfram úr 8 liða
úrslitum og í undanúrslit, fengi það
hátt í 45 milljónir króna og tækist
liðinu að komast alla leið í úrslit
væri það öruggt með 59 milljónir
króna. Fyrir að vinna mótið fást svo
um 92 milljónir króna. Þetta þýðir
að Evrópumeistararnir munu fá
um 292 milljónir króna þegar allt
er tekið saman. n
Reynsla utan vallar skiptir
miklu máli fyrir stórmót
Það þarf mikinn
undirbúning
fyrir stórmót
í knattspyrnu.
Stelpurnar
okkar eru klárar
í slaginn fyrir EM
í Englandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Dagskrá Íslands
Ísland hefur leik á Evrópu-
mótinu þann 10. júlí. Þá
mætir liðið Belgum. Auk
þeirra eru Ítalir og Frakkar
einnig í riðli með Stelpunum
okkar á mótinu.
Áður en íslenska liðið
heldur til Englands til að
mæta Belgum í fyrsta leik
riðlakeppninnar ferðast það
til Póllands og leikur vináttu-
landsleik við heimakonur.
Sá leikur fer fram 29. júní,
ellefu dögum fyrir fyrsta leik
Íslands á EM. Þaðan mun liðið
svo ferðast til Þýskalands þar
sem það heldur undirbúningi
sínum fyrir EM áfram.
16 Íþróttir
25. júní 2022 LAUGAR-
DAGURÍÞRÓTTIR 25. júní 2022 LAUGARDAGUR
15 EM KVENNA
Í FÓTBOLTADAGAR Í