Fréttablaðið - 25.06.2022, Blaðsíða 18
Búast má við að fjöldi fólks sé
á ferðalagi um landið þessa
helgina og fátt er betra en
að gæða sér á góðum mat og
drykk á nýjum stöðum. Með
auknum fjölda innlendra og
erlendra ferðamanna hefur
bæst í veitingastaðaflóru
landsins og hér má finna
faldar perlur sem mælt er með.
birnadrofn@frettabladid.is
Einn fjölmargra kosta þess að fjöldi
ferðamanna um landið sé að aukast
er breiðari flóra veitingastaða. Hvert
sem ferðast er má finna veitingastaði
sem bjóða upp á fjölbreytta mat-
seðla og eru þeir jafnólíkir og þeir
eru margir.
Fréttablaðið tók saman fimm veit-
ingastaði á Íslandi sem mælt er með.
Við umfjöllun um hvern veitinga-
stað er QR-kóði. QR-kóðinn er nokk-
urs konar strikamerki sem geymir á
bak við sig upplýsingar. Skannir þú
QR-kóðana hér til hliðar með snjall-
tæki opnast staðsetning veitinga-
staðanna í Google-maps og þú getur
keyrt, gengið eða hjólað beina leið. n
Hinar huldu perlur veitinga
leynast víðs vegar um Ísland
Mika – Biskupstungum
Hjónin Michał and
Bożena Józefik
reka veitinga-
staðin Mika í
Reykholti þar
sem boðið er
upp á ljúffenga humarrétti ásamt
kjöt- og grænmetisréttum. Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
eru pitsurnar á Mika með þeim
betri á landinu og ekki er sparað í
álegginu.
Það sem gerir Mika sérstaklega
spennandi er að þar geta gestir
gætt sér á handgerðu súkku-
laði sem framleitt er á staðnum.
Andrúmsloftið er heimilislegt og
umhverfið fallegt.
Súsanna Sif Jónsdóttir, þrítug kona sem
glímt hefur við krabbamein í fimm
ár, segir sögu sína í forsíðuviðtali
þessa tölublaðs. Sagan er átakanleg en
Súsanna bendir sérstaklega á hversu
þungbærar fréttir það voru þegar henni var
greint frá því að í kjölfar krabbameinsmeðferðar
myndi hún þurfa að takast á við ófrjósemi.
Frjósemismeðferðir á Íslandi eru afar kostn-
aðarsamar og segir Súsanna það ósanngjarnt
að hópur fólks þurfi að leggja út háar upphæðir
fyrir eitthvað sem flestir geta gert ókeypis heima
hjá sér. Hún telur að ríkið eigi að taka frekari
þátt í frjósemismeðferðum.
„Ég sá mikið eftir sparnaðinum sem átti að fara
í eitthvað allt annað en að reyna að eignast barn
af því ég fékk krabbamein, við áttum ekki krónu
til að gera þetta,“ segir Súsanna, sem hefur greitt
fyrir þrjár meðferðir á Íslandi og eina í Grikk-
landi. Sú síðasta gekk upp og Súsanna eignaðist
dóttur. Dóttur sem hún hafði mikið fyrir að
eignast. Er sanngjarnt að sumir þurfi að borga
fyrir að eignast börn en aðrir ekki? Eða er rétt hjá
Súsönnu að ríkið ætti að taka frekari þátt í niður-
greiðslu frjósemismeðferða? n
Ófrjósemi í kjölfar
krabbameins
Er sann-
gjarnt að
sumir þurfi
að borga
fyrir að
eignast
börn en
aðrir ekki?
BIRNADROFN@FRETTABLADID.IS
Við mælum með
Úps – Höfn
Á veitinga- og
brugghúsinu Úps
á Höfn í Horna-
firði er virkilega
girnilegur mat-
seðill og er vegan
úrvalið sérlega gott. Staðurinn er
fjölskyldurekinn og ekki einungis
rekur fjölskyldan veitingastaðinn
heldur brugga þau sinn eigin bjór
og framleiða sinn eigin borð-
búnað úr leir.
Á matseðlinum má finna Bur-
rito, Tostada og Nachos ásamt
Edamame-baunum og kjúklinga-
vængjum svo dæmi séu tekin.
Bjórúrvalið má svo sjá á krítartöflu
við barinn. Úps er staðsettur á
Hafnarbraut 34.
Baccalá – Eyjafirði
Á Hauganesi í
Eyjafirði má finna
veitingastaðinn
Baccalá Bar. Á
staðnum, sem er
í um 25 mínútna
akstursfjarlægð frá Akureyri, geta
gestir notið útsýnisins yfir fjörð-
inn á meðan þeir njóta máltíðar á
staðnum sem er í líki víkingaskips.
Á fjölbreyttum matseðli má
finna saltfisk verkaðan á gamla
mátann ásamt fjölda annarra fisk-
rétta, hamborgara, pitsur, vöfflur
og ís. Mælt er með því að fólk bóki
borð fyrir fram.
Narfeyrarstofa – Stykkishólmi
Narfeyrarhús
í Stykkishólmi
var byggt árið
1908 og hýsir nú
Narfeyrarstofu
þar sem vatnið er
ekki sótt yfir lækinn því hráefnin
sem notast er við eru flest úr
næsta nágrenni.
Á matseðlinum er fjölbreytt
úrval fiskrétta, ásamt folalda-
lundum, falafel og hamborg-
urum. Nýr forréttur á matseðli
er burrata-ostur sem vakið hefur
mikla ánægju gesta.
Flak – Patreksfirði
Flak er sam-
komuhús og
pöbb í gömlu
verbúðinni á
Patreksfirði og
andinn þar list-
rænn. Matseðillinn er einfaldur
en mikið er lagt upp úr gæðum og
veglegheitum. Fiskisúpa úr fersku
fiskmeti er flaggskip staðarins
og laufa- & lemongrasssúpan er
virkilega góð, ekki spillir fyrir að
hún er vegan.
Á Flaki eru oft skemmtilegir
viðburðir og í kvöld spilar Teitur
Magnússon hin ýmsu lög af ferl-
inum og frítt er inn. Vert er að taka
fram að bjórúrvalið á pöbbnum er
afar fjölbreytt.
Hellisgerði í Hafnarfirði
Almenningsgarðurinn Hellisgerði
sem falinn er í hrauninu í Hafnar-
firði er einstaklega fallegur og tilval-
inn staður til að eiga góðan dag með
fjölskyldunni. Í garðinum er mikill
gróður og þar má finna fjölda trjá-
tegunda en fyrsta trénu var plantaði
í garðinum árið 1924. Sagan segir að
ekki sé einungis mannfólk í Hellis-
gerði heldur sé garðurinn heimili
fjölmargra álfa og huldufólks. n
18 Helgin 25. júní 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 25. júní 2022 LAUGARDAGUR