Fréttablaðið - 25.06.2022, Qupperneq 36
Heilbrigðisstofnun á Vífilsstöðum
Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) auglýsa eftir rekstraraðila til að
reka heilbrigðisstofnun á Vífilsstöðum sem hefur það hlutverk
að starfrækja almenna líknardeild ásamt bráðaþjónustu fyrir
aldraða.
Um er að ræða tvískipta öldrunarþjónustu:
Annars vegar er um að ræða almenna líknardeild fyrir allt að 24
einstaklinga á hverjum tíma á fyrstu og annarri hæð hússins.
Hins vegar er um að ræða bráðadeild á þriðju hæð hússins fyrir
allt að 16 einstaklinga sem þarfnast skammtíma innlagnar vegna
versnandi ástands og fara heim að meðferð lokinni.
Fjárveiting til verkefnisins á ársgrundvelli, á verðlagi ársins 2022,
er 854,8 mkr. þar af er reiknað með að 115,4 mkr. fari í leigu hús-
næðisins.
Um þjónustuna gilda, sjá gögn hér
https://island.is/s/sjukratryggingar/vifilsstadir-tilbod
1. Almennir skilmálar Sjúkratrygginga Íslands um kaup á heil-
brigðisþjónustu.
2. Kröfulýsing fyrir líknarþjónustu og bráðainnlagnir aldraðra
3. Samningsdrög
Gerður verður leigusamningur við rekstraraðila um afnot af Vífils-
staðaspítala undir starfsemina.
Ríkið leggur til húsbúnað og lækningartæki og verður eigandi
þess. Rekstraraðili mun geta átt aðkomu að gerð búnaðar- og
tækjalista.
Gengið er út frá samningi til fjögurra ára með gildistöku 1. október
2022.
Áhugasamir aðilar eru beðnir um að senda útfyllt tilboðshefti
https://island.is/s/sjukratryggingar/vifilsstadir-tilbod á netfangið:
innkaup@sjukra.is, þar sem fram kemur hvað bjóðandi er tilbúinn
að starfrækja mörg rými af hvorri gerð fyrir þá fjárveitingu sem
upp er gefin fyrir verkefnið. Hlutföllin milli tegunda rýma skulu
vera sambærleg og að ofan greinir. Þá skal bjóðandi samhliða
tilboði senda SÍ kynningu á fyrirtækinu, lýsingu á gæðastefnu,
gögn sem staðfesta fjárhagslegt hæfi og upplýsingar um hvernig
uppfylla á kröfur sem koma fram í gögnum um verkefnið.
Fyrirspurnir má senda á ofangreint netfang.
Frestur til að til að senda inn tilboð er til kl.13:00 þann 15. júlí 2022.
Taka tilboða: SÍ munu taka hagstæðasta tilboði, þ.e. frá þeim
bjóðanda sem er tilbúinn að starfrækja flest rými fyrir uppgefna
fjárhæð að öllum skilyrðum uppfylltum. Séu tvö eða fleiri tilboð
jafngild mun hlutkesti ráða því við hvern verður samið. SÍ áskilja
sér rétt til að hafna öllum tilboðum séu þau ófullnægjandi eða um-
fram kostnaðarmat SÍ pr. rými.
kopavogur.is
Kópavogsbær leitar að öflugum verkefnastjóra til að ganga til liðs við framkvæmdadeild umhverfisviðs.
Verkefnastýringin snýr að verkefnum á sviði bygginga, gatna og veitna. Framundan eru spennandi
verkefni í nýjum og eldri hverfum Kópavogsbæjar, byggingar nýrra grunn- og leikskóla, gatnagerðar-
verkefni sem snúa að bættum samgöngum o.fl. Um er að ræða ögrandi og spennandi starf hjá fram-
sæknum og vaxandi vinnustað þar sem ríkir góð vinnustaðamenning og mörg tækifæri eru til þróunar
í starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
· Þarfagreiningar verkefna sem fyrirhugað er að fara í.
· Gerð kostnaðar-og framkvæmdaáætlana fyrir verkefni.
· Gerð útboðsgagna og innkaup.
· Verkefnastjórn hönnunarverkefna.
· Verkefnastjórn og kostnaðarstýring framkvæmda.
· Kostnaðareftirlit, skjölun og skráning gagna.
Helstu menntunar- og hæfniskröfur:
· Háskólamenntun í verk- og tæknifræði.
· Reynsla og þekking af verkefnastjórnun er skilyrði.
· Reynsla af hönnunarstjórnun bygginga, gatna og veitna æskileg
· Tölvukunnátta og upplýsingatækni sem nýtist í starfi.
· Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
· Góð samskiptahæfni og frumkvæði.
Nánari lýsing á verkefnum, menntunar- og hæfniskröfur eru á umsóknarvef.
· Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni í
starfið.
· Laun eru skv. kjarasamningi Sambandi íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
· Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið.
· Umsóknarfrestur er til og með 3. júlí 2022.
· Nánari upplýsingar veitir Stefán L. Stefánsson, deildarstjóri framkvæmdadeildar stefan@kopa-
vogur.is eða Ásthildur Helgadóttir, sviðsstjóri umhverfissvið asthildur.helgadottir@kopavogur.is
· Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt á vef Kópavogbæjar.
Verkefnastjórnun
í framkvæmdadeild umhverfissviðs
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is
10 ATVINNUBLAÐIÐ 25. júní 2022 LAUGARDAGUR