Fréttablaðið - 25.06.2022, Qupperneq 52
Ég sagði
bara: út
með það,
er ég með
krabba-
mein?
Súsanna Sif Jónsdóttir greind-
ist með krabbamein árið 2017
og hefur glímt við ófrjósemi
síðan hún fór í sína fyrstu
lyfjameðferð. Súsanna eignað-
ist stúlku í febrúar eftir fjöl-
margar tilraunir en krabba-
meinið hefur ágerst og stefnir
Súsanna nú á stofnfrumumeð-
ferð í Svíþjóð í ágúst.
Ég vissi að ég var veik en mig
grunaði ekki að ég væri
með krabbamein,“ segir
Súsanna Sif Jónsdóttir, en
hún greindist fyrst með
krabbamein árið 2017, þá aðeins 26
ára gömul.
„Ég var búin að vera veik lengi og
fara á milli lækna en þeir héldu allt-
af að þetta tengdist vefjagigt sem ég
hafði greinst með sem barn,“ segir
Súsanna. Þar til hún greindist með
krabbameinið hafði hún í langan
tíma verið slöpp og þreytt með hita
ásamt því að hún hafði grennst
mikið.
„Það var svo að ég held sjötti
læknirinn sem ég fór til sem tók eftir
því að ég var rauð á olnboganum og
ákvað að taka sýni. Mér fannst þetta
eitthvað skrítið af því ég hafði ekk-
ert farið til hennar út af þessu en
hafði verið svona í þrjú ár, hélt að
þetta væri bara þurrkblettur,“ segir
Súsanna.
Í ljós kom að hvítblóðkorn var
að finna í sýninu og Súsanna var
með eitilfrumukrabbamein. „Þegar
læknirinn hringdi í mig var ég akk-
úrat á leiðinni til hennar og hún
sagði mér að sleppa því bara og fara
upp á spítala og hitta lækni þar,“
útskýrir hún.
„Ég spurði bara strax hvað væri
í gangi og hún sagði að það væri
varðandi sýnið og vildi ekki segja
mér meira í gegnum símann, ég
sagði bara: út með það, er ég með
krabbamein eða ...?“
Súsanna segir að þegar læknirinn
hafi svarað spurningu hennar ját-
andi hafi henni verið mjög brugðið
og kviðið því að segja fjölskyldu
sinni fréttirnar. Súsanna er enn með
Grunaði ekki að ég væri með krabbamein
Súsanna greind-
ist með eitil-
frumukrabba-
mein árið 2017. Í
kjölfar krabba-
meinsmeðferða
hefur hún glímt
við ófrjósemi en
í febrúar eignað-
ist hún dóttur
með eiginmanni
sínum eftir frjó-
semismeðferð í
Grikklandi.
Fréttablaðið/
anton brink
Súsanna varð mikið veik og missti allt hárið í sinni fyrstu lyfjameðferð.
krabbameinið sem hefur fylgt henni
í fimm ár og margt hefur breyst hjá
henni á þeim árum.
„Þegar ég greindist var mér sagt
að við værum ekki mörg hérna á
Íslandi með þetta krabbamein og
að ég sé á fyrsta stigi og hafi líklega
verið á því í mörg ár,“ segir Súsanna.
„Svo var mér bent á að 90 pró-
sent þeirra sem greinist með þetta
krabbamein í heiminum fari aldrei
af fyrsta stigi yfir á annað, þriðja eða
fjórða stig og deyi því ekki úr sjúk-
dómnum heldur með hann.“
Raunin varð önnur hjá Súsönnu
sem hefur þurft að fara í fjölda
geisla- og lyfjameðferða til að reyna
að sigrast á krabbameininu. „Flest-
ir sem greinast með eitilfrumu-
krabbamein finna það þegar eitl-
arnir stækka en mitt var fyrst bara
í húðinni og kom fram í þessum
blettum, eins og blettinum sem var
á olnboganum,“ segir Súsanna sem
er með fjölda bletta á líkamanum
sem líkjast, líkt og henni fannst
fyrst, einna helst þurrk- eða exem-
blettum.
„Þarna fyrst eftir að ég fékk að
heyra að þetta væri á fyrsta stigi og
verði líklega þannig, varð ég ekki
beint hrædd eða stressuð og grunaði
ekki að þetta væri svona alvarlegt.
Ég átti bara að fara í ljósameðferðir
og halda þessu niðri þannig,“ segir
Súsanna, sem kláraði ljósameðferð
og var farið að líða betur þar til hún
fann einn daginn hnúð undir húð-
inni.
Við það breyttist allt og krabba-
meinið var ekki lengur eins auðvelt
viðureignar og litið hafði út fyrir í
upphafi. Það hafði stökkbreyst og
Súsanna átti að fara í lyfjameðferð
viku eftir að stökkbreytingin fannst.
„Ég skildi ekkert hvað var að gerast
og að ég væri ekki ein af þessum 90
prósentum sem talað hafði verið um
að myndu ekki deyja úr þessum sjúk-
dómi heldur með hann,“ segir hún.
30-70 prósent líkur á ófrjósemi
Í vikunni sem leið áður en Súsanna
fór í lyfjameðferðina fóru læknarnir
hennar vel yfir það sem fram undan
var með henni. Þá fékk hún þær
upplýsingar að um 30-70 prósent
líkur væru á því að í kjölfar með-
ferðarinnar yrði Súsanna ófrjó.
Á heimasíðu Krafts, stuðnings-
félags fyrir ungt fólk sem greinst
hefur með krabbamein og aðstand-
endur þeirra, segir að konum sem
gangast undir krabbameinsmeð-
ferð sé ekki ráðlagt að verða barns-
hafandi meðan á meðferð stendur
þar sem krabbameinsmeðferðin
geti skaðað fóstrið. Slíkar meðferðir
geti haft mismunandi áhrif á frjó-
semi bæði karla og kvenna.
Þá sé í vissum tilfellum hægt að
örva eggjastokka kvenna áður en
meðferð hefst til að hægt sé að ná
úr þeim eggjum til að nota síðar
í tæknifrjóvgun. Súsanna hafði
nauman tíma áður en lyfjameðferð
átti að hefjast og gat því ekki geymt
egg. Hún var þá viss um það að hún
vildi eignast barn en Súsanna eign-
aðist andvana son árið 2010.
„Ég hef verið móðir án barns í 12
ár og vissi strax að ég ætlaði að eign-
ast barn og það tók á mig að heyra
hversu miklar líkurnar á ófrjósemi
væru hjá mér eftir lyfjameðferðina,“
Birna Dröfn
Jónasdóttir
birnadrofn
@frettabladid.is
24 Helgin 25. júní 2022 LAUGARDAGURFrÉttablaðið