Fréttablaðið - 02.07.2022, Síða 4
Við köstum út nýnas-
istum og rasistum.
Yfirlýsing 1984
Súrefnissamsætur eru
um 50 prósent af gos-
bergi.
ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300
OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LOKAÐ LAUGARDAGA JEEP.IS • ISBAND.IS
PLUG-IN HYBRID
RAFMAGNAÐUR
OG VATNSHELDUR
EIGUM BÍLA TIL AFHENDINGAR STRAX!
Farðu yfir ár og vötn af festu og öryggi með
Jeep® Wrangler Rubicon Plug-In Hybrid.
Rafmagnaður kraftur hvert sem leið þín liggur.
bth@frettabladid.is
VARNARMÁL „Baldur Þórhallsson
hefur fyrir löngu tekið sér stöðu
sem einn helsti stríðshaukur lands-
ins. Hann heyrir til þeim hópi fólks
sem lítur á það sem hálfgerðan
álitshnekki fyrir Ísland ef erlend
ríki standi ekki í röðum og vilji
sprengja okkur í loft upp,“ segir
Stefán Pálsson, sagnfræðingur og
varaborgarfulltrúi VG, sem fer fyrir
Samtökum hernaðarandstæðinga.
Stefán segir Baldur sjá alls konar
ógnir, öðrum ókunnar.
„Hugmyndir Baldurs um hernað
virðast helst fengnar úr borðspilum
og gömlum stríðsmyndum, með
þessari skringilegu hugmynd um
litla varnarsveit sem haldi öflugum
óvinaflota í skefjum á meðan beðið
er eftir liðsauka,“ segir Stefán.
Baldur, sem er prófessor í stjórn-
málafræði, lýsti þeirri hugmynd í
Fréttablaðinu í gær að brýnt væri
að kalla til fast erlent varnarlið, jafn-
vel skandinavískt, sem gæti hindrað
skemmdarverk eða brugðist við
innrás áður en stærra lið aðildar-
ríkja Íslands kæmi til bjargar.
Segir Baldur fá stríðshugmyndir úr borðspilum
Stefán Pálsson,
sagnfræðingur
Baldur Þórhalls-
son, prófessor
Íslenska vefhýsingarfyrir-
tækið 1984 segist ekki líða að
hvatt sé til ofbeldis eða haturs
en bandarísk síða sem þar er
hýst er til umræðu vegna gyð-
ingahaturs. Ríkissaksóknari
Massachusetts kannar málið.
kristinnhaukur@frettabladid.is
SAMFÉLAG Bandarísku samtökin
ADL, sem berjast gegn fordómum
gegn gyðingum, eru uggandi vegna
netsíðu sem vísar á heimilisföng
stofnana, fyrirtækja og skóla sem
mörg hver hafa tengsl við gyðinga.
Síðan, sem kallast The Mapping
Project, er hýst hjá íslenska fyrir-
tækinu 1984 og hefur meðal annars
vakið viðbrögð hjá þingmönnum
ytra.
Yfirskrift síðunnar er að berj-
ast gegn nýlendustefnu Ísrael og
Bandaríkjanna með því að „trufla“
eða „rífa niður“ þá sem styðja við
hana. Síðan nær til fylkisins Massa-
chusetts í norðausturhluta Banda-
ríkjanna og þar eru kortlögð heim-
ilisföng og tengingar milli stofnana,
skóla, fyrirtækja og jafnvel einstakl-
inga.
Helmingurinn af tæplega 500
heimilisföngum er hjá lögreglunni.
En meðal þess sem er kortlagt er
framhaldsskóli g yðingabarna,
samtök gyðinga með fötlun, spít-
alar, háskólar á borð við Harvard
og MIT og lyfjafyrirtækin Moderna
og Pfizer.
Stjórnmálamenn eru einnig kort-
lagðir á síðunni, þar á meðal hin
þekkta öldungadeildarþingkona
Demókrata, Elizabeth Warren.
Samflokksmaður hennar í neðri
deild, Josh Gottheimer frá New Jer-
sey, hefur vakið athygli á að síðan
hvetji til of beldis. „Við megum
ekki skella skollaeyrum við þess-
ari hvatningu til of beldis,“ sagði
hann samkvæmt fréttastofunni
AP. Þá sagðist Rachel Rollins, ríkis-
saksóknari Massachusetts, ætla að
rannsaka hvort síðan gangi yfir
mörk þess sem telst hættulegt og
ólöglegt. „Svona orðræða er hættu-
leg. Við þurfum að athuga hvað við
getum gert til að svæla þetta burt,“
sagði hún.
Aðspurður um málið vísaði
Mörður Ingólfsson, framkvæmda-
stjóri 1984, í yfirlýsingu sem fyrir-
tækið lét gera á ensku. Þar segir að
nafn fyrirtækisins sé engin tilviljun
og vísi í vísindaskáldsögu Georges
Orwell. Að 1984 hýsi þá sem tali
gegn þeim valdamiklu og miskunn-
arlausu. Þar á meðal blaðamönnum
og aktívistum víðs vegar um heim
sem gætu átt yfir höfði sér fangelsis-
dóma eða jafnvel dauðadóma fyrir
að tjá sig.
„Það sem við gerum ekki er að
hýsa þá sem tala fyrir of beldi,
ógnun, bælingu eða hatri. Við
köstum út nýnasistum og rasistum,“
segir í yfirlýsingunni.
„Við höfum mátt þola endur-
teknar og alvarlegar netárásir, lög-
sóknir og hótanir um líkamlegt
of beldi frá hatursfullum hópum
af ýmsum toga sem reyna að fá
okkur til að taka niður vefsíður.
Við gefumst ekki upp, sama hvað
það kostar okkur í málskostnað,
öryggistryggingar eða hugarró.“
Málið er ekki það fyrsta þar
sem umdeild eða ólögleg erlend
starfsemi er hýst hjá íslenskum
fyrirtækjum. Fyrirtækið Orange
Website komst í heimsfréttirnar
er kom í ljós að hryðjuverkasam-
tökin ISIS hýstu síðu sína hjá því og
seinna hefur fyrirtækið hýst bæði
bandaríska nýnasista og breska
Covid-svindlara. Árið 2018 kom
upp tilvik þar sem 1984 lokaði léni
svindlara sem þóttust vera íslenska
lögreglan. n
Gyðingar uggandi vegna umdeildrar
síðu sem hýst er af fyrirtæki á Íslandi
Mörður Ingólfsson, framkvæmdastjóri 1984, segir fyrirtækið ekki hýsa þá
sem tala fyrir ofbeldi, hatri, bælingu og ógnun. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Nærri 500 heimilisföng eru kortlögð
á síðunni og hvatt til niðurrifs eða
truflunar. MYND/SKJÁSKOT
kristinnhaukur@frettabladid.is
VÍSINDI Samkvæmt nýrri grein í
tímaritinu Nature átti kvikan í eld-
gosinu við Fagradalsfjall uppruna
sinn að rekja til að minnsta kosti
þriggja mismunandi upprunastaða
í möttlinum undir Reykjanesskaga.
Meðal höfunda greinarinnar eru
Þorvaldur Þórðarson, prófessor
við Háskóla Íslands, og Ármann
Höskuldsson, rannsóknaprófessor
við sama skóla.
Skoðaðar voru súrefnissamsætur
sem eru um 50 prósent af gosbergi. Er
súrefni því góður vísir um uppruna
og þróunarferli kviku. Til dæmis er
samsætuhlutfall í möttlinum annað
en í skorpu. Þó er möttullinn undir
Reykjanesskaga eins leitur hvað varð-
ar samsætuhlutfall. Þó að áhersla
hefði verið á súrefni voru önnur
frumefni í berginu einnig greind. n
Kvikan kom af
þremur stöðum
Eldgosið var hvalreki fyrir jarðvís-
indamenn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
„Eitt skemmdarverk getur valdið
mjög miklum skaða í litlu ríki,“
sagði Baldur.
„Öryggi Íslands verður best
tryggt með því að beina orku og
fjármunum að þeim raunverulegu
öryggisógnum sem að okkur steðja,
svo sem á sviði náttúruvár, tölvu-
glæpa og sjúkdóma, í stað þess að
f lækja sig í hernaðarkerfi annarra
ríkja. Herstöð er skotmark, var sagt
hér fyrr á árum. Það á enn þá við,“
segir Stefán. Um það mat prófess-
orsins að slegið gæti á ágreining
ef herliðið kæmi frá Norðurlönd-
unum, segir Stefán að vangaveltur
um norrænt herlið hér séu „óraun-
sæjar með öllu“. n
gar@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Rúmlega tvítugur
maður sem grunaður er um að hafa
orðið nágranna sínum að bana í
Barðavogi 4. júní var í gær úrskurð-
aður í áframhaldandi gæsluvarð-
hald.
Samkvæmt tilkynningu frá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu
samþykkti Héraðsdómur Reykja-
víkur kröfu hennar um að varð-
haldið yfir manninum yrði fram-
lengt til 29. júlí. Hafi það verið gert
á grundvelli almannahagsmuna og
í þágu rannsóknar málsins. Maður-
inn var handtekinn á staðnum eftir
að lögreglu var gert viðvart um yfir-
standandi líkamsárás. n
Áfram í haldi
vegna árásar
4 Fréttir 2. júlí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ