Fréttablaðið - 02.07.2022, Síða 23

Fréttablaðið - 02.07.2022, Síða 23
KYNN INGARBLAÐ ALLT LAUGARDAGUR 2. júlí 2022 Guðni Einarsson hefur notað MariCell Footguard í fjölda ára. Hann segist finna mikinn mun á fótunum á sér þegar hann notar það. MYNDIR/AÐSENDAR Mýkri fætur og betri líðan með MariCell Vestfirðingurinn Guðni Einarsson hefur notað MariCell Footguard með góðum árangri í fjölda ára. Hann var með þurra og sprungna hæla en það vandamál er nú úr sögunni með notkun á Footguard. Hann segist hiklaust mæla með vörunni. 2 Dua Lipa er meðal þeirra sem koma fram á Hróarskelduhátíðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY elin@frettabladid.is Hróarskelduhátíðin stendur nú sem hæst. Um 130 þúsund gestir eru mættir til að hlýða á poppstjörnur á borð við Dua Lipa, Post Malone, Tyler, The Creator og St. Vincent auk tuga annarra. Hátíðin hefur legið niðri í þrjú ár vegna heims- faraldurs og nýjar kynslóðir eru að uppgötva hana í fyrsta sinn. Hróarskelduhátíðin hefur verið haldin í 50 ár. Í fyrra átti að halda upp á afmælið en úr því gat ekki orðið. Fyrsta hátíðin fór fram árið 1971 en það voru menntaskóla- strákar, Jesper Switzer og Mogens Sandfær, sem áttu hugmyndina að þessari víðfrægu tónlistarhátíð sem er ein sú stærsta í Evrópu. Þeir félagar höfðu horft á bíómynd um bandarísku Woodstock-hátíðina sem haldin var 1969 sem gaf þeim hugmynd um danska tónlistar- hátíð. Margir íslenskir tónlistarmenn Hátíðin hefur dregið að sér gesti og tónlistarmenn víðs vegar að úr heiminum. Þar á meðal eru fjöl- margir íslenskir tónlistarmenn eins og Björk, Mezzoforte, Of Monsters and Men, Ásgeir Trausti, Mínus og Sigur Rós svo einhverjir séu nefndir. Á Hróarskelduhátíðinni er lögð mikil áhersla á sjálfbærni og umhverfissjónarmið. Allir matsölu- staðir þurfa að fylgja reglum um úrgangsstjórnun. Gestir eru beðnir um að koma ekki með einnota tjöld heldur velja vandaðan útilegu- búnað sem hægt er að nota aftur. n Hróarskelda í fimmtíu ár B Ä S T A I T E S T Bäst-i-Test 2022.s e BESTA SÓLARVÖRNIN 7 ár Í RÖÐ Fæst í Apótekum, Hagkaup, Fríhöfninni og víðar | nánar á evy.is og celsus.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.