Fréttablaðið - 02.07.2022, Page 27
Innri endurskoðandi
Stjórn Kviku banka leitar að innri endurskoðanda bankans, sem jafnframt er forstöðumaður einingar
innri endurskoðunar. Innri endurskoðun starfar óháð öðrum deildum í skipulagi bankans, er þáttur
í eftirlitskerfi hans og ber ábyrgð gagnvart endurskoðunarnefnd og stjórn.
Kvika er öflugur fjártæknibanki sem stuðlar að umbreytingu
og samkeppni á fjármálamarkaði með áherslu á upplifun
viðskiptavina, nýsköpun og stafrænu vöruframboði.
Starfsumhverfið einkennist af sveigjanleika, samvinnu og liðsheild,
frumkvæði starfsfólks, jöfnum tækifærum, trausti, heilsusamlegu og
jákvæðu umhverfi. Vörumerki samstæðunnar eru meðal annars
TM, Kvika eignastýring, Lykill, Auður, Netgíró og Aur.
Meðal helstu verkefna eru:
• Ábyrgð á innri endurskoðun Kviku og dótturfélaga eins og fram kemur í erindisbréfi og starfslýsingu
• Leiðir, skipuleggur og stjórnar vinnu einingar innri endurskoðunar
• Samskipti við aðila innan bankans, stjórn, stjórnendur og aðrar eftirlitseiningar
• Samskipti við eftirlitsaðila og ytri endurskoðendur
Nánari lýsingu á starfinu og hæfnikröfum má finna á vef Kviku banka undir störf í boði. Umsóknarfrestur er til og með 17. júlí næstkomandi.
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
RÁÐGJÖF RÁÐNINGAR RANNSÓKNIR
Að gera betur í dag en í gær
er drifkraftur nýrra hugsana
og betri árangurs.
Starfsmenn eru lykill
að árangri allra fyrirtækja.
Rannsóknir auka þekkingu
og gera ákvarðanir markvissari
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára