Fréttablaðið - 02.07.2022, Blaðsíða 37
Forstjóri
Byggðastofnunar
Hæfnikröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun
á háskólastigi er æskileg
• Reynsla af stjórnun, stefnumótun og áætlanagerð sem nýtist í starfi
• Þekking á fjármálum og lánastarfsemi
• Afburða hæfni til samstarfs og samskipta
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
• Framsýni, drifkraftur, metnaður og skipulagshæfni
• Hæfni til að tjá sig og eiga samskipti í ræðu og riti á íslensku og ensku
Auglýst er eftir framsýnum leiðtoga til að takast á við áskoranir á sviði
byggðaþróunar. Einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á þróun og framtíð
byggðamála á Íslandi, metnað til að veita framúrskarandi þjónustu og ná
árangri í þágu almennings og atvinnulífs.
Forstjóri Byggðastofnunar stýrir stofnuninni og ber ábyrgð á rekstri hennar,
þjónustu og árangri. Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf
með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og
búsetu. Stofnunin fjármagnar og veitir lán með það að markmiði að treysta
byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun atvinnulífs á landsbyggðunum.
Stofnunin annast atvinnuráðgjöf í samstarfi við atvinnuþróunarfélög,
sveitarfélög og aðra haghafa og fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a.
með gagnasöfnun og rannsóknum. Byggðastofnun vinnur að stefnumótandi
byggðaáætlun fyrir allt landið í samráði við innviðaráðuneytið.
Byggðastofnun er staðsett á Sauðárkróki. Hjá stofnuninni starfa 25
starfsmenn í fjölbreyttum störfum.
Innviðaráðuneytið
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf um hvers vegna sótt er um
starfið og upplýsingar um árangur sem viðkomandi hefur náð í starfi og telur
að nýtist í starfi forstjóra Byggðastofnunar. Ráðuneytið hvetur alla hæfa
einstaklinga til að sækja um starfið, óháð kyni.
Ráðherra innviðaráðuneytis skipar forstjóra Byggðastofnunar til fimm ára
í senn að fenginni tillögu stjórnar Byggðastofnunar. Laun samkvæmt gildandi
kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskóla-
menntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Þorleifsdóttir, mannauðsstjóri innviða-
ráðuneytis, í síma 545 8200. Umsóknarfrestur er til og með 25. júlí n.k.
Umsóknum skal skila rafrænt á starfatorg.is.