Fréttablaðið - 02.07.2022, Side 48
Café de Flore er tákn um
heillandi fortíð í frönsku
höfuðborginni París. Vart
er nokkuð franskara en að
taka sér tíma til að setjast
niður með kaffibolla eða
góðan espresso í einu
af þekktari kaffihúsum
borgarinnar.
sjofn@frettabladid.is
Café de Flore er sögufrægt og eitt
elsta og virtasta kaffihús Parísar.
Staðurinn hefur lítið breyst frá
seinni heimsstyrjöldinni. Að stíga
inn á Café de Flore er eins og að
stíga inn í tímahylki, inn í tímabil
þegar vinstri bakkinn var bóhem-
ískt athvarf manna eins og Pablo
Picasso og Ernest Hemingway. Til
staðar eru enn innréttingar sem
rekja má til fortíðar, hin klassíska
Art Deco innrétting, rauðklæddir
leðurbekkir, básar og stólar, falleg
mahoníborð og stórir speglar
ásamt pússuðum koparhandriðum
sem minna dálítið á franskt bistró.
Allir sem eitthvað þekkja til
staðarins vita að bestu sætin í
húsinu eru í raun og veru úti við
gangstétt, þar sem gestirnir sitja
utandyra og drekka í sig mann-
lífið, fólksmergðina sem leggur leið
sína fram hjá staðnum. Þú finnur
kaffihúsið á horni Boulevard Saint
Germain og Rue Saint Benoet í
Saint Germain des Pres í 6. hverfi
og það er vel þekkt fyrir að hafa
hýst nokkra af helsta mennta- og
frægðarmönnum sem sóttu stað-
inn hér á árum áður. Kaffihúsið
var opnað í kringum árið 1880
og nafnið er dregið af skúlptúr af
Floru, gyðju blómanna og árstíð
vorsins í rómverskri goðafræði.
Heimsfrægir fastagestir
Rithöfundarnir Joris-Karl Huys-
mans og Remy de Gourmont
voru tveir af fyrstu þekktu fasta-
gestunum. Í lok 19. aldar skrifaði
Charles Maurras bók sína Au signe
de Flore á fyrstu hæð kaffihússins.
Árið 1899 var tímaritið Revue
d'Action Francaise stofnað þarna.
Þetta tímarit studdi frönsku öfga-
hægri stjórnmálahreyfinguna sem
kallast Action Francaise. Kaffi-
húsið varð vinsæl miðstöð frægra
rithöfunda og heimspekinga á
árum áður. Hemingway, Georges
Bataille, Robert Desnos, Leon-Paul
Fargue og Raymond Queneau
voru allir fastagestir, sem og Pablo
Picasso.
Ógleymanleg upplifun
Hluti af upplifuninni er að sitja öxl
við öxl með ókunnugum sessu-
nautum í sæti á gangstéttinni.
Ferðamenn sækja staðinn og vilja
upplifa franska kaffihúsamenn-
ingu. Íbúar hverfisins næla sér
gjarnan í borð og taka með sér
bók og eyða síðdeginu í að narta
í croques mesdames og dreypa
á Kir Royales. Vín-, drykkjar- og
matseðillinn er ekta franskur og
það gerist ekki franskara en mat-
seðill Café de Flore. Heitt súkku-
laði er eitthvað sem allir ættu að
prófa. Verðið er í hærri kantinum
en það er sannarlega upplifun að
mæta á Café de Flore. Stjórnmála-
menn, listamenn, menntamenn,
hönnuðir og rithöfundar mæta á
kaffihúsið til að fylgjast með, leita
sér að innblæstri og til að hittast.
Besti tíminn til að njóta andrúms-
loftsins er á morgnana. n
Hið sögufræga kaffihús Café de Flore
Staðurinn er
upprunalegur,
virðulegur og
glæsleikinn alls-
ráðandi.
fréttablaðið/
getty
elin@frettabladid.is
Michael Kors hefur kynnt
til sögunnar fatnað, skart-
gripi og aðra fylgihluti,
til að heiðra regnbogaliti
Pride eða gleðigangna
þetta sumarið. Þetta er
lína sem samanstendur af
16 mismunandi hlutum
fyrir öll kyn á viðráðan-
legu verði. Allar vörurnar
eru merktar hinu fræga
MK merki í regnbogans
litum. Með þessu vill
tískuhönnuðurinn fagna
fjölbreytileikanum. Ágóð-
inn rennur til OutRight
Action International sem
eru samtök sem berjast
fyrir réttindum hinsegin
fólks.
Michael Kors hefur verið
ötull talsmaður hinsegin
fólks og segist fagna sköpunar-
kraftinum sem fylgir gleðigöngum.
Tískuiðnaðurinn hefur á margan
hátt skapað rými fyrir hinsegin
fólk til að tjá sig með eigin fata-
stíl og fagnar því fjölbreytileik-
anum. n
Fagnar fjölbreytileika
Merki MK í regnbogalitum.
Flott taska
fyrir sumarið.
Margir sem koma til Parísar kíkja inn
á Café de Flore.
Einfaldur morgunverður á fallegum
og frægum stað.
Kaffið er ekki bara bragðgott heldur
líka fallega fram borið.
Allir sem eitthvað
þekkja til staðarins
vita að bestu sætin í
húsinu eru í raun og veru
úti við gangstétt, þar sem
gestirnir sitja utandyra
og drekka í sig mann-
lífið.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460
Líttu við á
belladonna.is
Verslunin Belladonna
ZE-ZE Sanni kvartbuxur
Fást í 5 litum
Stærðir 36-48
Verð 8.990 kr
ZHENZI gallapils með buxum
undir
Stærðir 42-56
Verð 8.990 kr
FESTIVAL sokkabuxna-
leggings
Fást í fleiri litum
Stærðir 36-56
Verð 2.990 kr
ROBELL Marie gallakvart-
buxur
Fást í fleiri litum
Stærðir 36-54
Verð 13.980 kr
YEST/YESTA gallatreggings
Fást í fleiri litum
Stærðir 36-58
Verð 10.980 kr
YEST/YESTA hjólabuxur með
blúndu
Fást líka í svörtu
Stærðir 36-58
Verð 3.980 kr
6 kynningarblað A L LT 2. júlí 2022 LAUGARDAGUR