Fréttablaðið - 02.07.2022, Blaðsíða 57
Það er bara truflað að
hlaupa um þetta eldfjalla-
svæði þegar sólin er að
setjast.
Bróðir minn og frændi okkar,
Óskar Jónsson
frá Kolfreyju í Fáskrúðsfirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
þriðjudaginn 28. júní.
Útförin fer fram frá Sandgerðiskirkju
þriðjudaginn 5. júlí klukkan 13.
Valborg Jónsdóttir og frændsystkini hins látna.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Markús Ljubodrag Markovic
Markó
bátasmiður,
lést á Grensásdeild Landspítalans
aðfaranótt laugardags 25. júní í faðmi
barna sinna. Útförin fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi
miðvikudaginn 6. júlí klukkan 11.00.
Svetlana Markovic
María Markovic
Dusan Loki Markovic
Sanja Líf Markovic
Ívar Örn Sigurðsson
og afabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
samúð og hlýhug við andlát
Ólafs Ólafssonar
læknis og fyrrv. landlæknis.
Aðstandendur senda starfsfólki
Grundar þakkir fyrir umönnun
síðasta æviár Ólafs.
Ólafur Ólafsson Magnfríður S. Sigurðardóttir
Ásta Sólveig Ólafsdóttir Ágúst Kárason
Ingibjörg Ólafsdóttir
Bjarni Ólafur Ólafsson Margrét Sigmundsdóttir
Páll Ólafsson Sigríður Dóra Gísladóttir
Gunnar A. Ólafsson Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir
Grímur Ólafur Eiríksson Bryndís Unnur Sveinbjörnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristín Friðbjarnardóttir
Vestursíðu 9,
Akureyri,
lést á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð
miðvikudaginn 29. júní. Útför hennar fer fram
frá Akureyrarkirkju föstudaginn 8. júlí klukkan 13.
Ólafur Hermannsson Bjarnheiður Ragnarsdóttir
Elva Hermannsdóttir Einar Jóhannsson
Atli Hermannsson Ingibjörg Róbertsdóttir
ömmu- og langömmubörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jón J. Ragnarsson
skipstjóri,
Suðurhópi 1, Grindavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Víðihlíð
þriðjudaginn 28. júní. Útförin fer fram frá
Grindavíkurkirkju, fimmtudaginn 7. júlí klukkan 14.
Kristín Thorstensen
Magnús Jónsson Laufey Einarsdóttir
Ólína Jónsdóttir Ásmundur Guðmundsson
Steinunn Jónsdóttir Anton Pétursson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
Óskar Valdemarsson
Boðaþingi 5,
lést á heimili sínu þann 30. júní.
Útför verður auglýst síðar.
Anna McCall Steve McCall
Steinunn Helga Óskarsdóttir Arnfreyr Kristinsson
Kristmann Óskarsson Karitas Sæmundsdóttir
Matthías Óskarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigrún Stefánsdóttir
Hlíf 2,
verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju
laugardaginn 9. júlí klukkan 14.00.
Bjarni Jóhannsson Guðrún Guðmannsdóttir
Sigrún María Bjarnadóttir Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir
Jóhann T. Guðmundsson Tryggvi Snær Guðmundsson
og langömmubörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Heiðar Magnússon
Bjarkargrund 13, Akranesi,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á
Akranesi föstudaginn 17. júní. Útför hans
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Kolbrún Leifsdóttir
Óli Þór Heiðarsson Guðrún Sveinsdóttir
Valdís Heiðarsdóttir Hörður Jónsson
Lárus Heiðarsson Sigríður Björnsdóttir
Leifur Heiðarsson Ingibjörg Snorradóttir
afabörnin.
Íslendingum er hlaupið kapp í
kinn í svo mörgum skilningi, en
að sumri til er það ekki síst ferða-
mennskan um fjöll og dali sem
nýtur vinsælda, fótgangandi eða
á fjörlegri löppunum, en þar eru
utanvegahlaupin hvað vinsælust,
sumsé, að reima á sig vel sóluðu
skóna – og stinga af til fjalla.
ser@frettabladid.is
Eitt þessara hlaupa fer fram í dag og
fram á nótt, en það er Goshlaupið um
eldfjallasali Reykjanesskagans sem hafa
heldur betur látið á sér kræla á seinni
tímum eftir ríf lega átta hundruð ára
svefnríkt skeið.
Allir hittast í lokin
Hlaupið hófst raunar í nótt sem leið, í
glannabítið klukkan 04.00, en þá fóru
einna harðsvíruðustu hlaupararnir af
stað sem ætla sér að skokka hundrað
kílómetra fram á kvöld.
Aðrir hlauparar – og vel að merkja,
það er enn hægt að skrá sig á fésbók
Reykjanes Volcano Ultra – fara af stað
klukkan 18.00 í kvöld og eiga fyrir hönd-
um fimmtíu kílómetra, klukkan 20.00
leggja þeir af stað sem ætla sér þrjátíu
kílómetra og loks fara tíu kílómetra
hlaupararnir í skóna klukkan 11.00.
Lagt er í hann frá Salthúsinu – og þar
munu hóparnir safnast saman um og
undir miðnætti til að skiptast á skoð-
unum um upplifunina sem Ívar Trausti
Jósafatsson, einn af forkólfum hlaupsins,
segir að verði engu lagi lík, en hann byrj-
aði með hlaupið á síðasta ári – og svo vel
tókst til að engin ástæða er til annars en
að endurtaka leikinn.
Frelsið er áþreifanlegt
„Það er bara truflað að hlaupa um þetta
eldfjallasvæði þegar sólin er að setjast,“
segir hann og það má heyra af hljómi
orðanna að hann er vart samur maður
eftir hlaupið í fyrra þegar um fimmtíu
manns tóku þátt, en hálfu fleiri taka að
minnsta kosti þátt í ár.
„Þetta er sannkallað upplifunarhlaup
– og frelsið sem maður finnur fyrir á
leið yfir virkt og óvirkt eldfjallalandið
er eiginlega áþreifanlegt,“ bætir Ívar
Trausti við.
Hann segir mikilvægt að skóa sig vel,
enda er hlaupið yfir hrjúft hraun og
skreipa stíga, „en spáin er góð,“ segir
Ívar Trausti, eftirvæntingarfullur. „Sólin
verður með okkur á enda,“ bætir hann
við í lokin um leið og hann hvetur lands-
menn til dáða, enn sé hægt að skrá sig í
hlaupið, ellegar mæta bara í Salthúsið og
fylgjast með þessari hollustuveislu með
snakk í annarri og drykk í hinni. n
Upplifunarhlaup um eldjallasalinn
Andrea Kjartansdóttir, sigurvegari í 100 kílómetra Goshlaupinu á síðasta ári. MYND/AÐSEND
1178 Þorlákur helgi Þórhallsson vígður Skálholtsbiskup í
Niðarósdómkirkju.
1849 Jón Sigurðsson og fleiri alþingismenn gera þá kröfu
að Alþingi verði háð í heyranda hljóði.
1874 Á Oddeyri í Eyjafirði og víðar á Norðurlandi er haldin
þjóðhátíð í minningu þúsund ára byggðar í landinu.
Slík hátíð er haldin mánuði síðar annars staðar.
1876 Alls 752 Norðlendingar leggja af stað til Ameríku
með skoska gufuskipinu Verona.
1937 Snekkja Adolfs Hitlers, Aviso Grille, kemur til Ís-
lands.
1990 Golfklúbbur Kópavogs er stofnaður.
1998 Skáldsagan Harry Potter og leyniklefinn eftir J. K.
Rowling kemur út.
2000 Frakkar sigra Ítali 2-1 í lokaleik Evrópukeppninnar í
knattspyrnu.
2001 Fyrsta sjálfvirka gervihjartað er grætt í Robert Tools
í Bandaríkjunum.
Merkisatburðir
FRÉTTABLAÐIÐLAUGARDAGUR 2. júlí 2022 Tímamót 29