Fréttablaðið - 02.07.2022, Síða 68
Þetta var líka vinsælt í
gamla daga, þegar
myndir voru á filmum
og ekki var hægt að
senda á milljón staði í
einu, að byrja með
forsýningar utan við
bæjarmörkin.
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir
ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is,
TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Frábær heilsudýna með yfirdýnu fyrir enn
betri hvíld. 20 cm háir pokagormar sem eru
svæðaskiptir, mýkri á mjöðmum og öxlum
til að halda náttúrulegri sveigju í líkama
okkar á meðan við sofum. Samansett úr 5
lögum af mismunandi svampi með
4 cm minnissvampi sem aðlagast
fullkomlega að líkamanum.
Til í fleiri stærðum.
Fáðu fréttirnar fyrst um tilboð, afsláttarkóða
eða aðgang að útsölum á undan öðrum með
því að skrá þig á póstlista Dorma.
S.BEDDING
Dúnsæng. 1300g 85% smáfiður
og 15% hreinn andardúnn.
135 x 220 cm. Fullt verð: 14.900 kr.
DANADREAM
Ergo magic dúnkoddi með
innri kjarna úr minnissvampi.
Fullt verð: 14.900 kr.
50%
AFSLÁTTUR
CANNES
hægindastóll með skammel
Opið á sunnudögum á Smáratorgi 13-17
30%
AFSLÁTTUR
Nú 136.175 kr.
160x200 cm
Fullt verð: 164.900 kr.
Hægindastóll og skammel. Saddle, grátt,
svart eða rautt PVC áklæði. Verð 199.990 kr. Nú 139.993 kr.
Nú 7.450 kr.Nú 7.450 kr.
Stærð í cm
Fullt verð:
Dýna +Premium botn
Útsöluverð:
Dýna + Premium botn
Luxury 80x200 120.900 kr. 98.925 kr.
Luxury 90x200 124.900 kr. 102.425 kr.
Luxury 90x210 127.900 kr. 105.175 kr.
Luxury 100x200 128.900 kr. 105.925 kr.
Luxury 120x200 134.900 kr. 111.425 kr.
Luxury 140x200 144.900 kr. 119.925 kr.
Luxury 160x200 164.900 kr. 136.175 kr.
Luxury 180x200 184.900 kr. 152.425 kr.
NATURES LUXURY
heilsurúm
25%
AFSLÁTTUR
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
ninarichter@frettabladid.is
Katrín Oddsdóttir mætti á sam stöðu
fund á Austurvelli á fimmtudag, í
kjölfar skotárásar á hinsegin fólk í
Osló fyrir viku síðan. Tveir létust í
árásinni og á annan tug slösuðust.
„Þetta er svolítið svakalegt fyrir
mig, bæði sem hinsegin konu og svo
Að mæta hatri og fáfræði með fræðslu og ást
n Frétt vikunnar
Katrín Oddsdóttir
Katrín Oddsdóttir, lögfræðingur.
Heimir Bjarnason leikstjóri
leggur í sýningarferðalag um
landsbyggðina í næstu viku til
að kynna kvikmyndina Þrot.
arnartomas@frettabladid.is
Kvikmyndin Þrot er væntanleg
í kvikmyndahús landsins síðar í
mánuðinum. Leikstjóri myndarinn
ar, Heimir Bjarnason, vill gefa lands
byggðinni forskot á sæluna með því
að endurvekja gömlu roadshow (ísl.
sýningarferðalag) hefðina.
„Það eru margar fyrirmyndir að
þessu. Tarantino var til dæmis með
roadshow þegar hann var að kynna
The Hateful Eight,“ segir Heimir
sem mun túra ásamt hundinum
sínum Ripley um landsbyggðina til
að kynna myndina. „Þetta var líka
vinsælt í gamla daga, þegar myndir
voru á filmum og ekki var hægt að
senda á milljón staði í einu, að byrja
með forsýningar utan við bæjar
mörkin.“
Hugmyndina fékk Heimir þegar
tökur á myndinni stóðu yfir á Hótel
Laugabakka í vor.
„Ég labbaði inn í sal þar sem var
risastórt tjald og hljóðkerfi og fór
að hugsa með mér hvað það væru
margir svona staðir víða á landinu,
með frábæra aðstöðu til að sýna
mynd,“ segir hann. „Ég talaði við
hótelstjórann sem var mjög spennt
ur fyrir þessu og þaðan fór boltinn
að rúlla.“
Þannig er áætlunin að myndin
verði sýnd víðs vegar um land auk
þess sem Heimir mun sitja fyrir
svörum eftir sýningar. Þá verða
leikarar úr myndinni einnig gestir
á völdum sýningum.
„Það verður sérstök stemning á
þeim stöðum þar sem leikararnir
hafa tengingu, eins og til dæmis á
Patreksfirði þar sem Bjarni Snæ
björnsson ólst upp,“ segir Heimir.
„Við erum að reyna að gera þetta
frekar persónulegt.“
Bíóhúsin endurlífguð
Heimir er sjálfur mikill áhuga
maður um kvikmyndahús og er
spenntur fyrir því að upplifa bíó
stemninguna á landsbyggðinni.
„Það er líka gaman að þetta eru
ekki allt bíóhús, en þau voru það og
mér finnst það mjög heillandi,“ segir
hann. „Að koma í þessar byggingar
sem voru kvikmyndahús fyrir ein
hverjum áratugum og gera þau að
bíó í eitt kvöld í viðbót.“
Það er ansi líklegt að Þrot muni
hitta í mark hjá krimmaelskandi
Íslendingum en myndin er saka
máladrama sem segir frá dularfullu
morðmáli sem skekur smábæjar
samfélag. Gömul sár verða að nýjum
og fljótt verður ljóst að sögum ber
ekki saman og reynir á fjölskyldu
böndin sem aldrei fyrr eftir því sem
sannleikurinn skýrist. Með helstu
hlutverk fara Bára Lind Þórarins
dóttir, Anna Hafþórsdóttir, Bjarni
Snæbjörnsson, Pálmi Gestsson og
Guðrún S. Gísladóttir.
Hægt er að kynna sér dagskrá
sý ningar ferðalagsins betur á
Facebooksíðu kvikmyndarinnar
Þrots. n
Heimir og Ripley
leggja land undir Rover
Heimir og Ripley hefja rúntinn í kringum landið í næstu viku til að kynna myndina. MYND/AÐSEND
Þrot segir frá dularfullu sakamáli
sem skekur líf þriggja einstaklinga.
á ég trans barn. Þetta setur allt í sam
hengi og kemur beint á eftir þessum
hræðilega dómi í Bandaríkjunum,
þar sem réttindi okkar hinsegin fólks
hanga líka á þeirri spýtu,“ segir hún.
„Það var rosa gott að hittast á
Austurvelli og finna þessa ást og
samstöðu og að við látum ekki ýta
okkur til hliðar. En ég fæ verulegar
áhyggjur af stöðu mannréttinda hin
segin fólks og af öðrum jaðarsettum
hópum. Þetta er óvenjulega mikill
pakki í einu, finnst mér,“ segir hún.
Katrín bendir á samstöðu íslensku
þjóðarinnar sem vopn í baráttunni
gegn hatri á hinsegin fólki. „Það sem
við eigum hér heima er samstaða.
Maður finnur svo skýrt hvað mikið
af fólki vill standa með mannrétt
indum og breyta rétt. En það þarf
rosalegt átak í fræðslu núna. Það er
ekki hægt að mæta hatri og fáfræði
með neinu öðru en fræðslu og ást.“
Katrín kallar eftir aukinni fjár
veitingu í málaflokkinn.
„Samtökin 78, sem standa sig ótrú
lega vel þessi misserin, eru ekki full
fjármögnuð og það verður að breyt
ast. Svo verður að koma fræðsla inn
í alla grunnskóla og allar stofnanir
í landinu. Það gengur ekki að verið
sé að leggja hinsegin unglinga í slíkt
einelti að þeir taki líf sitt eins og kom
fyrir tvö börn á síðasta ári.
Við sjáum núna í löndum sem við
höfum ítrekað borið okkur saman
við, ekki bara í Bandaríkjunum held
ur líka Póllandi og Ungverjalandi, að
þetta er úti um allt. Við þurfum núna
að ákveða að við látum þetta ekki
gerast hér og þess vegna verðum við
að setja peninga í fræðslu.“ n
40 Lífið 2. júlí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ