Fréttablaðið - 02.07.2022, Page 72
frettabladid.is
550 5000
RitstjóRn ritstjorn@frettabladid.is
AuglýsingAdeild auglysingar@frettabladid.is
PRentun Torg ehf.
dReifing Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Óttars
Guðmundssonar
n Bakþankar
Ný og betri
reiðhjóla-
trygging
FERÐAPAKKI
ORKUNNAR
Veldu þínar 4 ferðavikur og tankaðu með 26 kr. afslætti
með Orkulyklinum í sumar. Þegar þú hefur skráð þínar ferðavikur
getur þú nælt þér í Ferðapakka Orkunnar sem er sneisafullur
af afþreyingu og snarli handa þér og þínum á ferðalaginu.
Ferðapakkinn verður fáanlegur á öllum Orkustöðvum á
meðan birgðir endast. Hafðu hraðar hendur og leyfðu
okkur að einfalda þér líð á veginum í sumar.
Orkan — fyrir ferðalagið
Nýjar sjóðheitar græjur og tilboð
GRÆJU
SUMAR
Reykjavík • Mörkin 3 | Akureyri • Undirhlíð 2
24.990
Spjaldtölvupakki
7” SPJALDTÖLVA,
TASKA OG ÞRÁÐLAUS
HEYRNARTÓL
SUMAR
PAKKINN
3
LITIR
Í síðustu för sinni til Þingvalla
ætlaði Snorri Sturluson að fá
skaðabætur fyrir bróðurson sinn
Tuma Sighvatsson. Hann treysti
því að Kolbeinn ungi vildi ljúka
eftirmálum Örlygsstaðabardaga.
Annað var uppi á teningnum.
Kolbeinn gerði Snorra mikla
háðung og hann fór sneyptur
heim í Reykholt.
Ég fór á Þingvöll í fyrri viku
með Guðna Ágústssyni vini
mínum til að spjalla um Jónas
Hallgrímsson. Veðrið var
íslenskt og margbreytilegt, sól-
skin, 7 stiga hiti og hífandi rok.
Með í för var Solveig Arnars-
dóttir leikkona og Karlakór
Kjalnesinga. Guðni fór á kostum,
Solveig las af innlifun og kórinn
söng Jónasarkvæði fyrir 200
veðurbarða gesti.
Þegar kom að mínum þætti
kárnaði gamanið. Veikindi
síðustu mánaða tóku öll völd. Ég
var lafmóður eftir gönguna niður
Almannagjá og átti fullt í fangi
með að koma frá mér ræðunni.
Röddin brást og mig rak í vörð-
urnar. Ég neyddist til að stytta
mál mitt verulega. Þetta varð því
engin frægðarför fremur en hjá
Snorra.
Ég hafði greinilega ofmetið
eigin heilsu og vanmetið kuldann
og rokið. Á þessari stundu rann
ég saman við Snorra frænda
enda skildi ég vel vonbrigði hans
eftir Þingvallaförina. Áleitnar
spurningar kviknuðu. Eru enda-
lokin nærri eins og hjá frænda?
Hvað þýðir hún þessi mæði?
Nokkrir læknar sýndu sam-
kennd og mikla tillögugleði. Þeir
vildu að ég færi í f leiri rannsóknir
og prófaði ný lyf. Ég setti hausinn
undir mig og tuldraði þessi orð
Árna Magnússonar þegar hann
gekk út úr brennunni í Kaup-
mannahöfn 1728. „Ég er þreyttur.
Nú mega goðin ráða.“ n
Á Þingvöllum