Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.07.2022, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 07.07.2022, Qupperneq 6
Þetta er engin fram- tíðarspá, þetta er að gerast núna. Við erum komin inn í The Handmaid’s Tale. Breki Karls- son, formaður Neytendasam- takanna Persónu- og hópnjósnir stór- fyrirtækja færast í vöxt, að sögn Neytendasamtakanna. Margs konar alvarlegar afleiðingar. Þingmaður segir ástæðu til að hafa áhyggjur. bth@frettabladid.is NEYTENDUR „Þetta er eitt stærsta neytendamál næstu ára,“ segir Breki Karlsson, formaður Neytendasam- takanna, um njósnir sem eiga sér stað um notendur internetsins á hverjum degi. Neytendasamtökin hafa hrundið af stað herferð og gefið út mynd- band á heimasíðu samtakanna þar sem vakin er athygli á umfangs- miklum netnjósnum sem eiga sér stað um neytendur á degi hverjum. Upplýsingarnar eru seldar hæst- bjóðanda í því skyni að hann geti markaðssett vöru sína og höfðað til kaupenda með ýmsum hætti að lokinni greiningu á venjum neyt- enda og þörfum, að sögn formanns Neytendasamtakanna. „Við leitum á Google, Google leitar á okkur. Við notum sam- félagsmiðla, þeir nota okkur. Jafnvel þvottavélin okkar hefur persónu- verndarstefnu,“ segir Breki. Neytendasamtökin segja að stór og smá fyrirtæki safni upplýsing- um um hvað okkur líkar, hvað við kaupum, þau reyni að hræða okkur, því tilfinningar selja. Þau skoði andlega og líkamlega heilsu okkar, kynhneigð, staðsetningu og stjórn- málaskoðanir. Að auki heimti sum forrit aðgang að myndum, mynda- vél, hljóðnema, tengiliðalista og dagatali. „Algrímið veit oft á tíðum meira um okkur en við sjálf,“ segir Breki og segir sögu því til staðfestingar. Amerískt fyrirtæki sendi 16 ára unglingsstúlku kort og óskaði henni til hamingju með óléttuna. Foreldr- ar hennar urðu þessa áskynja, urðu mjög reiðir yfir lyginni og höfðu samband við fyrirtækið. Örskömmu síðar kom á daginn að stúlkan þeirra var ófrísk. Gervigreindin hafði þá fundið út að ef konur á ákveðnum aldri kaupa átta vörur af tíu eru þær sennilega óléttar. Önnur og alvarleg skuggahlið netnjósna er að sögn Breka sá veru- leiki sem við blasir í Bandaríkj- unum eftir bann Hæstaréttar við þungunarrofi. „Nú geta fyrirtæki sagt með mik- illi vissu hvort kona, að líkindum ólétt, hafi ferðast á stað með þung- unarrof í huga. Þá erum við að tala um lögbrot. Þetta er engin framtíð- arspá, þetta er að gerast núna. Við erum komin inn í The Handmaid’s Tale,“ segir Breki og vísar þar til dramatískrar sjónvarpsseríu um eyðingu kvenréttinda. Í þessu samhengi má nefna að aðgerðasinnar í Bandaríkjunum hafa hvatt notendur til að losa sig við öpp um tíðarhring, enda fylgist stóri bróðir með smáforritunum. „Besta leiðin til að halda neyt- endum á Facebook er að höfða til til- finninga og albest að halda notend- um reiðum. Við erum gerð reið til að halda ákveðinni vöru að okkur, láta okkur fjárfesta í ákveðnum hlutum og fyrst þarf að breyta skoðunum okkar,“ segir Breki. „Margir eru þeirrar skoðunar að þetta útskýri af hverju Bandaríkja- maður fær á internetinu allt aðrar upplýsingar um heiminn en Íslend- ingur. Svona getur aukið pólaríser- ingu manna í millum, hugmyndir fólks um heiminn verða ólíkar. Svo verður allt brjálað þegar fólk hittist í raunveruleikanum,“ segir Breki. Erlendur blaðamaður komst að því fyrir skemmstu að Google og Facebook áttu um hann upplýs- ingar sem námu sex gígabætum af upplýsingum. Þá eru ónefnd áhrif á lýðræði, kosningaúrslit og fleira. Fjórir og hálfur milljarður notar netið daglega eða rétt um helming- ur mannkyns. Björn Leví Gunnarsson, þing- maður Pírata, segir ástæðu til að hafa áhyggjur af þessum málum. Miklum upplýsingum sé beint að hópum með notkun á vafrakökum. Þá sé einnig ansi viðamikið net af sýktum tölvum í gangi og þær séu nýttar í markaðs- eða ábataskyni. n Umfangsmiklar netnjósnir stundaðar um neytendur Formaður Neytendasamtakanna segir að algrímið viti jafnvel meira um neytendur en neytendur sjálfir. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata thorgrimur@frettabladid.is SJÁVARÚTVEGUR Alþjóðaviðskipta- stofnunin (WTO) komst í júní síðastliðnum að samkomulagi um regluverk í kringum niðurgreiðslur ríkja til sjávarútvegs eftir áratuga- langar samningaviðræður. Samkvæmt samningnum, sem var samþykktur á ráðherrafundi WTO í Genf, verður sett bann á ríkisstyrki til ólöglegra, óskráðra og óstýrðra veiða, bann við ríkis- styrkjum úr ofveiddum fiskistofn- um og bann við ríkisstyrkjum til úthafsveiða. „Samningaviðræður hafa staðið í rúma tvo áratugi og hófust fyrir tilstuðlan hóps ríkja sem kalla sig „Vini fiskins“,“ segir Dúi Jóhanns- son Landmark, upplýsingafulltrúi matvælaráðuneytisins, í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins. „Ísland er í þeim hópi og hafa fastanefnd Ísland og utanríkis- ráðuneytið tekið virkan átt í samn- ingaviðræðunum frá upphafi. Við- ræðurnar hafa gengið treglega og lögðust í dvala um tíma en á síðustu árum hefur verið vaxandi þrýsting- ur á að ljúka þeim.“ Dúi segir að aukinn kraftur hafi færst í viðræðurnar með til- komu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, sem kveða á um að banna skuli skaðlega ríkisstyrki í sjávarútvegi. „Í fyrsta skipti er því á vettvangi WTO gert samkomulag um bann við ríkis- styrkjum vegna sjálf bærnisjónar- miða en ekki eingöngu út frá við- skiptasjónarmiðum.“ Að sögn Dúa hefur samningur- inn tvíþætt óbein áhrif á íslenskan sjávarútveg. „Annars vegar geta styrkir skekkt samkeppnisstöðu fyrirtækja, en það fer eftir eðli þeirra, og hins vegar geta ríkisstyrkir til sjávarútvegs ýtt undir ofveiði og skaðað þannig fiskistofna,“ segir í svari Dúa. „Þessi niðurstaða er gott fyrsta skref og bannar ríkisstyrki til skað- legustu veiðanna. Ákveðið var að halda áfram viðræðum um að ríkisstyrkir til annarra veiða, það er innan lögsögu ríkja og á grunni svæðasamstarfs úr stofnum sem ekki eru ofveiddir, verði háðir því skilyrði að veiðarnar séu sjálf- bærar.“ n Reynt að hindra ólöglegar veiðar Samið var um samninginn á 12. ráð- herraráðstefnu WTO í Genf í júní. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Haustið 2019 tóku til starfa níu íbúaráð Reykjavíkurborgar. Innan íbúaráða á sér stað samráð íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda. Fulltrúar í íbúaráðunum eru kjörnir í borgarstjórn, skipaðir af grasrótarsamtökum í hverfunum og einn valinn með slembivalsaðferð. Með slembivali er átt við að einn fulltrúi í hvert íbúaráð er valinn af handahófi úr hópi borgarbúa sem náð hafa 18 ára aldri og boðið að taka sæti í viðeigandi íbúaráði. Íbúaráðin voru samþykkt sem tilraunaverkefni til ársloka 2020, en þann 10. febrúar 2022 samþykkti Borgarráð að festa íbúaráðin í sessi til frambúðar. Sérstök athygli er vakin á því að þátttaka í íbúaráðum byggist ávallt á samþykki þeirra sem fá boð um þátttöku. Til að fá upplýsingar um íbúaráðin, slembivalið og réttindi borgarbúa samkvæmt persónuverndarlögum bendum við á vefinn okkar https://reykjavik.is/slem- bival-fyrir-ibuarad en einnig er hægt að hafa samband við mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar í síma 665-4862 milli kl. 09:00 og 16:00 virka daga. Þá má senda okkur fyrirspurn á slembival@reykjavik.is. In the autumn of 2019, 9 new residents’ councils were founded/established. The residents’ councils consult with residents, NGO‘s, the business community and City authorities. Each council consists of elected representatives, representa- tives from active grassroots organisations and one individual chosen by random selection. The random selection means that one representative is selected randomly from the residents within the district and is invited to take a seat on the council, the individual must be at least 18 years of age. The residents’ councils were approved as a pilot project until the end of 2020, but on February 10th the City Council agreed to extend the project permanently. It is important to note that participation in the councils is always dependent on the consent of those who have been invited to participate. For more information about the residents’ councils, the random selection, or the rights of residents according to data protection and the processing of personal data laws please see https://reykjavik.is/slembival-fyrir-ibuarad. You may also send an email to slembival@reykjavik.is or phone The Reykjavik Human Rights and Democracy Office at 665 4862 on weekdays between 9 am - 4 pm. Jesienią 2019 roku utworzono 9 nowych Rad Mieszkańców. Rady mieszkań- ców są platformą konsultacyjną dla mieszkańów, organizacji pozarządowych, środowiskich biznesowych i władz Miasta Reykjavik. Każda rada składa się z przedstawicieli wybranych w wyborach, przedstawicieli aktywnych organizacji pozarządowych oraz jednej osoby wybieranej w drodze losowej. Wybór losowy oznacza, że jeden przedstawiciel jest wybierany losowo spośród mieszkańców danej dzielnicy i jest zapraszany do zajęcia miejsca w radzie, osoba ta musi mieć ukończone 18 lat. Rady mieszkańców zostały zatwierdzone jako projekt pilotażowy do końca 2020 roku, jednak 10 lutego 2022 Rada Miasta wyraziła zgodę na przedłużenie projektu na stałe. Przypominamy, że udział w radach jest uzależniony od zgody osób, które zostały do nich wybrane w drodze losowania. Więcej informacji na temat rad mieszkańców, losowania, lub praw mieszkańców zgodnie z przepisami o ochronie danych osobowych i ich przetwarzaniu można znaleźć na stronie https://reykjavik.is/slembival-fyrir-ibuarad . Zapytania można również wysłać na e-mail slembival@reykjavik.is lub zadzwonić do Biura Praw Czlowieka i Demokracji Miasta Reykjavik tel. 665 4862 w dni powszednie w godzinach 9.00-16.00. Slembival í íbúaráð Random Selection to the Residents’ Councils Losowanie do Rad Mieszkańców ninarichter@frettabladid.is ÍTALÍA Rocco Morabito, mafíuforingi sem talinn er einn umsvifamesti fíkniefnasmyglari heims, er nú í Róm eftir framsal frá Brasilíu. Interpol handsamaði Morabito í fyrra eftir 28 ár á flótta, með stuttri viðkomu í fangelsi í Úrúgvæ. Morabito var í 2. sæti á lista yfir eftirlýsta mafíósa á Ítalíu. Hann var dæmdur í þrjátíu ára fangelsi í Mílanó árið 2001 fyrir eiturlyfja- smygl á vegum skipulögðu glæpa- samtakanna 'Ndrangheta. Eru við- skiptin talin hafa hlaupið á mörgum milljörðum evra. n Mafíósi framseldur eftir 28 ár á flótta Rocco Morabito. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY 6 Fréttir 7. júlí 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.