Fréttablaðið - 07.07.2022, Page 18
Tori Lewis tón-
listarkona og
rithöfundurinn
Katrín Vinther
eru par og deila
að eigin sögn
fataskápunum
systurlega á
milli sín. Hér má
sjá Tori rokka
svörtum blazer
og buxum, töff
beisli og grófum
hælum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
„Ég heyri oft að ég líti út fyrir að
vera beint út úr Addams-fjölskyld-
unni,“ segir Katrín og hlær. „En ég
tek því svo sem bara sem hrósi og
þykir það passa stílnum mínum
ágætlega. Ég hef vissulega gaman af
svörtum fötum. Þau passa við allt
og eru alltaf móðins. Mér finnst líka
gaman að blanda saman mismun-
andi stefnum. Einn daginn klæði
ég mig eins og hvítvínsmamma úr
úthverfunum á leið í jarðarför fyrr-
verandi eiginmanns síns og aðra
daga myndi ég best passa inn á 80’s
Batcave klúbb. Oft er ég í látlausum
fötum með marga fallega skartgripi
sem fá að spila aðalhlutverkið. Það
fer allt eftir deginum og nenninu,“
segir hún.
Tori lýsir sér sem svalri og rólegri
að utanverðu en fullkomlega
kaótískri að innanverðu. „En ég geri
nú ráð fyrir að þannig sé flest annað
fólk líka. Fatastíllinn minn er mjög
breiður og inniheldur sitt lítið af
hverju. Ég klæðist allt frá slípuðum,
kvenlegum nútímalegum goth-
flíkum upp í karlmannleg street
goth-föt. Ef ég ætti að gefa stílnum
nafn þá myndi það vera „Minimal-
Extra“. Ég fæ innblástur frá Hara-
juku-strætisstílnum, metal-gyðjum
eins og Floor Jansen og frum-
kvöðlum eins og Iris Von Herpen
og Vivienne Westwood. Ég held að
stílgyðjan mín sé eins konar hilling
sem samanstendur af öllu því fagra
sem umkringir mig,“ segir Tori.
„Minn innblástur kemur frá alls
kyns fólki en líka bara ákveðinni
tilfinningu eða hughrifum,“ segir
Katrín um sitt stílgoð.
Notað og stundum nýtt
Báðar segjast þær reyna sem mest
að kaupa notaðan fatnað. „Mér
þykir jafnvænt um öll fötin mín
og leyfi mér örsjaldan að kaupa
eitthvað alveg glænýtt. Og þá passa
ég að það sé fallegt handverk gert
af fólki með mannsæmandi laun
og vinnuskilyrði. Þar af leiðandi
eru flíkurnar dýrari, en ég borga
líka fyrir það sem ég fæ,“ segir
Katrín. „Flestar mínar flíkur eru
líka second hand eða eitthvað
sem ég keypti mér fyrir mörgum
árum síðan. Ég reyni að safna fyrir
hönnunarvörum sem tala til mín,
en viðurkenni að ég enda stundum
á að ráfa eins og hungraður úlfur
um fatabúðirnar í bænum í áráttu-
kenndri leit að einhverju gómsætu,“
segir Tori.
„Uppáhaldsfatabúðirnar mínar
eru Blackwood Castle Clothing,
Nuit og Church of Sanctus og mig
blóðlangar í föt frá þeim öllum.
Draumurinn væri svo að eignast
eitthvað eftir Alexander McQueen,“
segir Katrín. Uppáhaldsfatabúðina
sína segir Tori vera: „fataskápurinn
hennar Katrínar?“ Hún hlær en
bætir við: „Bara grín. Eða ekki …
Annars kaupi ég mikið frá Rokki og
rómantík, það er ekki hægt að gera
mistök ef þú ferð að ráðleggingum
hinnar guðdómlegu Karlottu.
Uppáhaldsflíkurnar mínar eru
kímónóarnir mínir og einfaldur
svartur blazer-jakki. Hann passar
við allt og er galdur fyrir sjálfs-
traustið,“ segir hún.
Óaðskiljanlegar í ást og stíl
Þær Tori og Katrín hafa verið
saman í tæplega tvö ár. „Við hitt-
umst á Gauknum, heilagri kapellu
gothara á Íslandi,“ segir Tori. „Við
vorum kannski búnar að fá okkur
rauðvínstár,“ segir Katrín og Tori
bætir við: „Okkur hafði verið boðið
í einkapartí og flesta vini okkar
áttum við sameiginlega þrátt fyrir
að hafa ekki kynnst almennilega
áður. Við smullum strax saman
(eftir að hafa öðlast sjálfstraustið
sem rauðvín veitir) og höfum ekki
verið í sundur síðan,“ segir hún.
Aðspurðar neita þær því að eld-
veggur hafi verið reistur á milli fata-
skápanna á heimilinu. „Merkilegt
nokk þá getum við deilt fataskáp-
unum. Tori er til dæmis iðin við að
stela fötum úr mínum skáp. Áður
en við bjuggum saman velti ég oft
fyrir mér hvað hefði orðið um hina
og þessa flík, til þess eins að komast
svo að því að þær voru komnar inn í
skáp heima hjá henni,“ segir Katrín.
Tori bætir við að þetta hafi byrjað
mjög sakleysislega hjá þeim, svona
eins og gerist oft hjá pörum. „Hjá
okkur byrjaði þetta á stutterma-
bolum en núna lánum við hvor
annarri kjóla og harness/beisli til
að fara út á lífið,“ segir Tori.
Ætlað að fæða hval
Tónlistarkonan Tori Lewis flutti
til Íslands frá Frakklandi árið 2016.
„Þá var ég nítján ára. Ég kem frá
lítilli borg rétt fyrir utan París. Ég
ólst upp í mjög frönsku húsi rétt við
skóginn umkringd dýrum og man
að það var mjög mikill hávaði og
mikil lykt, en aðallega yfirþyrm-
andi. Mér fannst ég aldrei vera nógu
góð og gæti ekki hugsað mér að búa
þarna aftur.
Ástæðan fyrir því að ég flutti til
Íslands var barnabók sem ég las
þegar ég var sjö ára; um háhyrninga
í hafinu við Húsavík. Eftir það var
ekki hægt að halda mér í Frakk-
landi. Ég fylgdi innsæinu eins og ég
er vön og gæti ekki verið lukkulegri
með það. Ég hef fundið mitt heimili
hér á Íslandi og gæti ekki hugsað
mér að vakna á morgnana fjarri
hafinu og ferska loftinu. En ég var
þó heppin að geta notið náttúr-
unnar í sveitinni þegar ég var barn
og ég er þakklát fyrir það.
Ég hef verið gagntekin af
háhyrningum síðan ég var bara
barn og mig dreymir reglulega um
að fæða einn slíkan,“ segir Tori, sem
mun eflaust gera það í einhverjum
skilningi, enda bæði skapandi
og hæfileikarík. Tori vinnur í
nokkrum ólíkum verkefnum en
setur fókusinn á nám sitt í Söng-
skóla Sigurðar Demetz þar sem hún
lærir söng hjá Elsu Waage. „Klass-
ískur söngur, eins erfiður og hann
er, gefur mér meira en allt annað.
Núna einbeiti ég mér að raddverk-
um fyrir nokkur safarík verkefni
sem líta vonandi bráðum dagsins
ljós. Í sumar spila ég með bandinu
mínu Necksplitter á Eistnaflugi og
Norðanpaunki. Restin af sumrinu
fer í að skrifa og taka upp fyrir loka-
verkefni vinar míns úr Kvikmynda-
skólanum,“ segir Tori.
Gefur út Eiðrofa
Katrín á líka sterkar rætur í
sveitinni líkt og Tori. „Ég ólst upp
á Akureyri og varði líka löngum
stundum í Ljósavatnsskarði, en
mamma mín er einmitt þaðan. Mér
finnst sveitin alltaf eiga í mér stóran
part og mig langar mikið að skrifa
smásagnasafn eða ljóðakver um
náttúruna. Ég flutti suður í janúar
2015 til þess að fara í háskólann og
ég væri að ljúga ef ég segðist ekki
sakna Norðurlands, en mér líður
líka mjög vel hérna í Reykjavík,“
segir Katrín, sem stundar nám í
ritlist í Háskóla Íslands og mun á
komandi vikum gefa út sína fyrstu
ljóðabók. Bókin nefnist Eiðrofi og
er unnin upp úr meistaraverkefni
hennar.
„Ég var líka með verk í smá-
sagnasafninu Það er alltaf eitthvað,
sem kom út árið 2019. Síðan hef
ég skrifað kvikmyndagagnrýni
fyrir Engar stjörnur. Ég hef hingað
til mest unnið með ljóð en öll
skapandi skrif heilla mig mjög. Ég
hef alltaf verið algjör lestrarhestur
og um leið og ég kunni eitthvað
aðeins á Word fór ég að skrifa sögur.
Minningin af því er alveg ljóslif-
andi. Ég sat í herbergi bróður míns
og stalst til að skrifa á fartölvu
sem mamma var nýbúin að kaupa
sér fyrir háskólanámið sitt. Sagan
var um einhverja hunda, skrifuð
með alveg hreint óbærilega ljótum
skrautfonti,“ segir hún hlæjandi og
bætir við: „Eiðrofi kemur út ásamt
tveimur öðrum ljóðabókum eftir
þær Sólveigu Eir og Sunnevu Krist-
ínu. Það ætti að skýrast á næstu
vikum hvar og hvenær útgáfuhófið
verður svo ég hvet áhugasama til að
fylgjast vel með.“
Glitur sem kitlar heilabúið
Tori og Katrín leita báðar inn-
blásturs í lífið og tilveruna. „Í raun
finn ég innblástur í lífinu eins og
það leggur sig. Bæði sigrum þess
og áföllum. Náttúran og þjóðsögur
veita mér líka innblástur, og hafa
gert síðan ég var barn,“ segir Katrín.
„Tilfinningar af öllu tagi veita
mér innblástur. Það hefur alltaf
verið erfitt fyrir mig að skilja og
aðgreina tilfinningar og ég hef lært
samúð gegnum árin sem hvetur
mig til dáða. Hún hjálpar mér að
fylgjast með, eins og dagbók, til að
skilgreina kenndir út frá hljóði og
hávaða. Annars leita ég líka mikið
í listamenn eins og Bruno Coulais,
Pierre-Henri, Messiän, Jules Vernes,
ýmsar hljómsveitir og listamenn.
Ég gæti aldrei nefnt þau öll,“ segir
Tori og bætir við:
„Goth-senan á Íslandi er eins og
fjölskylda sem samþykkir, stað-
festir, styður þig tilfinningalega og
veitir þér öryggi til að opna þig, sem
er það fallegasta sem ég veit. Þetta
er hrá ást sem hefur auðvitað sína
há- og lágpunkta. Sköpunarlega
séð þá er það mjög hvetjandi fyrir
mig að vera í kringum þetta gáfaða
og uppfinningasama fólk. Það er
hægt að sogast inn í samtal í marga
klukkutíma og koma út úr því upp-
full af heilaglitri. Þarna eiga sér stað
jöfn og stöðug samskipti sem lætur
manni líða dásamlega,“ segir Tori.
Þetta frjóa og skemmtilega par
hefur að sjálfsögðu leitt hugann að
því að vinna saman að skapandi
verkefnum. „Við erum með einhver
verkefni í bígerð. Hljóð, orð og
myndefni sem flæðir saman við
lifandi flutning og margt fleira sem
kitlar heilabúið,“ segir Tori. „Það er
aldrei að vita hverju við tökum upp
á næst,“ bætir Katrín við. Það er því
rík ástæða til þess að fylgjast með
þessum áhugaverðu karakterum. n
Jóhanna María
Einarsdóttir
jme
@frettabladid.is
Tori (t.h.) og
kærastan
hennar, Katrín
(t.v.), hittust
á Gauknum
fyrir tæpum
tveimur árum
og kviknaði þar
ástarneistinn
sem brennur
enn heitt.
MYND/AÐSEND
Það er hægt að
sogast inn í samtal
í marga klukkutíma og
koma út úr því uppfull af
heilaglitri.
Tori Lewis
2 kynningarblað A L LT 7. júlí 2022 FIMMTUDAGUR