Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.07.2022, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 07.07.2022, Qupperneq 34
Útsala20-60% Fyrsta breiðskífa Árnýjar Margrétar, They Only Talk About the Weather, kemur út 21. október og fyrsta lagið af plötunni kemur út í dag. Á bak við verkið er tvítug tónlistarkona frá Ísafirði á þröskuldi heimsfrægðar. ninarichter@frettabladid.is Árný Margrét hefur vakið athygli fyrir einlægan f lutning og vand- aðar lagasmíðar sem ómað hafa um stór tónlistarhús erlendis, enda hefur hún farið í tónleikferðalög um Kanada og Evrópu og hitað upp fyrir stór nöfn í senunni. „Nafnið er svolítið stórt,“ svarar Árný Margrét, aðspurð um hvað bindi plötuna saman. „Veðrið er stórt í þessu, en það er ekki aðal- málið. Ég nota það mikið sem innblástur og nota það til að fela annað,“ segir hún hugsi. Úti í sveit í Danmörku Árný Margrét segir að á plötunni séu lög frá mismunandi tímabilum sem passi vel saman. „Reynsla og fólk og veðrið – allt í bland.“ Tíma- bilið sem um ræðir eru dagar heims- faraldurs, frá 2020 til 2021 og platan var tekin upp síðla síðasta sumars. Árný Margrét hikar áður en hún svarar því hvort heimsfaraldurinn hafi litað efnistökin á plötunni. Hún útskýrir að haustið 2020 hafi hún farið utan í nám. „Ég fór til Danmerkur í lýðháskóla á Norður- Jótlandi. Ég var í Danmörku þegar Covid byrjaði.“ Um var að ræða nám þar sem einblínt var á svokallaða fólk-rokk tónlistarstefnu. „Ég var þarna úti í sveit með vinum mínum allan daginn,“ segir hún. Sam- komu bann setti strik í reikninginn og tónlistarkonan f lutti heim til Íslands eftir eina önn. „Það er þetta með að sakna og vera einn. Svo er innilokun þarna líka, einangrunin gæti hafa litað þetta smávegis,“ segir hún. Ætti kannski að hitta Kidda „Það að hitta Kidda umboðsmann- inn minn og fólkið sem ég tók upp plötuna með, var svolítið skrýtið og gerðist mjög hratt.“ Umboðs- maðurinn sem um ræðir er Guð- mundur Kristinn Jónsson, þekktur sem Kiddi í Hjálmum, sem einnig er umboðsmaður Ásgeirs Trausta. Aðspurð um tildrög samstarfsins segist Árný Margrét hafa sett sig í samband við Högna Egilsson í lok árs 2019. „Þegar ég fór suður hafði ég samband við hann og spurði hvort við gætum hist, og við tókum upp nokkur demó,“ segir hún. „Svo hafði ég samband við hann aftur í apríl 2021 og þá sagði hann: Þú ættir kannski að hitta Kidda.“ Svo fór að Árný Margrét mætti í hljóðver og lék tíu lög sem hún átti á lager. „Svo gleymdi ég bara texta- möppunni minni og öllu á gólfinu hjá Kidda,“ segir hún og skellihlær. „Þá varð ég að koma aftur. Hann spurði mig þá hvort ég ætti fleiri lög, og þá tókum við allt upp á þremur vikum!“ Valáfangi úrslitavaldur Árný Margrét fór í tónlistarskóla að læra á píanó sex ára gömul. „Það var svona klassískt dæmi, og ég var líka í lúðrasveitum og hljómsveitum fyrir leikritin í menntaskóla,“ segir hún og nefnir að flestir fyrir vestan fari í tónlistarskóla, en tveir tónlistar- skólar séu á svæðinu og hefðin því sterk. „Ég fékk gítar í fermingargjöf þegar ég var 14 ára og fór í valáfanga í grunnskóla þar sem ég lærði svona venjuleg gítargrip.“ Þá vaknaði tón- listaráhuginn fyrir alvöru. Aðspurð um helstu áhrifavalda nefnir hún suðurafrísk-bandaríska tónlistarmanninn Gregory Alan Isa- kov sem algjört uppáhald, og segist einmitt hafa hitað upp fyrir tónlist- armann á tónleikum erlendis, sem hafi hitað upp fyrir Gregory. Tónlistarunnendur geta séð Árnýju Margréti á Airwaves-hátíð- inni í Reykjavík næsta haust, þar sem hún heldur tónleika í Fríkirkj- unni. n Tók upp fyrstu plötuna á þremur vikum Árný Margrét sendir frá sér sína fyrstu breiðskífu í október og fyrsta lag plötunnar kemur út á streymisveitum í dag. MYND/AÐSEND Það að hitta Kidda umboðsmanninn minn og fólkið sem ég tók upp plötuna með, var svolítið skrýtið og gerðist mjög hratt. ninarichter@frettabladid.is Kyana Sue Powers kom fyrst til Íslands árið 2018. Hún heillaðist svo af landinu að hún flaug heim til Boston, sagði upp starfi sínu, seldi eigurnar og f lutti til landsins. Í dag er hún einn stærsti ferða-áhrifa- valdur landsins með 33 þúsund fylgjendur á Instagram. „Ég verið með hálendisdellu undanfarið,“ segir Kyana. „Senni- lega vegna þess að hálendið er ólíkt nokkrum öðrum stað á Íslandi. Þetta eins og að vera á annarri plánetu. Það eru svo margir staðir á hálendinu sem maður veit ekki af,“ segir hún. Kyana segir að stundum sé fólk mett af heimsóknum á áfangastaði við hringveginn. „Þá er magnað að finna að maður geti farið á algjör- lega nýjan stað í hvert sinn sem maður fer á hálendið, af því að það er svo einangrað.“ Kyana rekur delluna til ferðar í Kerlingarfjöll síðasta sumar. „Ég hafði aldrei komið þangað áður og vissi ekki neitt um staðinn.“ Kyana skellti sér eina helgi á svæðið með vinum sínum. „Ég spjallaði við starfsfólkið í skálanum á svæðinu sem vissi allt sem hægt er að vita um svæðið. Þau lögðu til nokkrar göngu- leiðir, útsýnisstaði og heitar náttúru- laugar í nágrenninu. Þetta var algjört æði.“ Hún minnist síðan göngu sem hún fór í fyrir skömmu með þremur íslenskum vinum. „Þar hittum við þýska fjölskyldu sem spurði okkur hvaðan við værum og vinir mínir sem eru Íslendingar kynntu sig sem slíkir og sögðu að ég væri frá Banda- ríkjunum. Þjóðverjarnir svöruðu: Já, en gaman að þið séuð að sýna henni landið. Þá svöruðu Íslendingarnir: Já, reyndar skipulagði hún alla þessa ferð, við höfum aldrei komið hérna áður,“ segir Kyana og hlær. n Áhrifavaldur með hálendisdellu Sextíu og tvö þúsund fylgja Kyönu á Tiktok sem birtir þar myndbönd af íslenskri náttúru. MYND/AÐSEND ragnarjon@frettabladid.is Hljómsveitin Alcoholica stígur á svið í kvöld á tónlistarhátíðinni Eistnaflugi sem fram fer í Nes- kaupstað þessa helgina. Það sem aðgreinir hljómsveitina frá öðrum þungarokkssveitum á hátíðinni er að Alcoholica er eina karókí metalband Íslands. „Fólk fær texta og velur sér lag. Í rauninni er þetta bara alveg eins og venjulegt karókí fyrir utan að svo er full hljómsveit upp á sviði sem spilar alla helstu metal- og rokkslagarana og þú færð að góla með,“ segir trymbill sveitarinnar, Gottskálk Davíð Bernhöft. Hann bætir við að um fastan lista af lögum sé að ræða. „Jú, enda held ég að það væri mjög erfitt að gera þetta öðruvísi. Þetta eru alveg hátt í þrír tímar af lögum sem við erum með æfð.“ Meðlimir Alcoholica hafa spilað saman í áraraðir en sveitin er sprottin af hugmynd um að stofna hljómsveit sem spilaði ábreiður. „Þetta er afsprengi hljómsveitar sem er búin að vera til í fjórtán til fimmtán ár sem heitir Alchemia,“ segir hann. Hugmyndin hafi svo þróast þegar skipuleggjendur Eistnaflugs báðu þá um að vera með karókíviðburð fyrir nokkrum árum, nokkuð sem hljómsveitin hafði lengi hugsað um. „Það var svolítið eins og þetta ætti að gerast. Sérstaklega með þessari hátíð,“ segir Gottskálk. „Númer eitt tvö og þrjú erum við að þessu til þess að skemmta okkur og öðrum.“ n Alcoholica er eina karókí metalband Íslands Alcoholica gefur gestum tækifæri til að stíga á svið á Eistnaflugi. MYND/MARINÓ FLÓVENT n Ferðalangurinn Það var svolítið eins og þetta ætti að gerast. 26 Lífið 7. júlí 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 7. júlí 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.